Kormákur að hressast:)

Núna er Kormákur búin að vera heima það sem af er af þessari viku. Hann er að hressast og fer sennilega í skólan á morgun. En er einhver sem veit um barn eins og hann - hann var með yfir 39 stiga hita og getur spilað í tölvu og vildi helst ekki sofa. Hann á bara svo leiðinlega mömmu sem vildi endilega að hann leggði sig, það gekk nú ágætlega á endanumSmile.

Ég tók Kormák með mér í skólann í dag. Ég tók nú tölvu með handa honum líka, spiderman 3 og einn leik, þannig að honum myndi ekki leiðast. Eins og alltaf er tölvan mjög góð barnapía og varð ég varla vör við hann. Ég bjóst við að vera þarna í svona 1 - 1.1/2 tíma en við vorum 2.1/2 tíma. Það er alveg ótrúlegt hvað allt þarf að taka langan tíma, en að sjálfsögðu brosir maður bara og reynir að reka aðeins á eftirGrin.

Ágústa mín ég þarf semsagt að hafa fyrir því að finna út hvað litla Dís heitirSmile, jæja ég kemst að því vonandi þegar ég er búin að skrifa þetta.

Jæja elskurnar bið að heilsa ykkur.

Kossar og knús

Bergþóra og co


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband