29.2.2008 | 12:48
Allir frískir núna:)
Kormákur fór hress í skólann í morgun, hann var voða feginn að geta farið, því að hann veit að hann á meiri möguleika á að fara á skauta á morgun þá. Pabbi vinar hans hringdi svo og Kormákur vildi fara með honum heim, þannig að þeir hafa verið þokkalega ánægðir að hittast aftur.
Ég fór með Fordinn á verkstæði í morgun og labbaði niður á lestarstöð til þess að taka lestina í skólann. Það fór nú ekki alveg svona vel, þegar ég kem út frá verkstæðinu rigndi ekkert smá, eins og hellt væri úr fötu. Ég var tíu mín að labba niður á lestarstöð og það var ekki þurr þráður á mér, þá meina ég að nærbuxurnar mínar voru ekki einu sinni þurrar, þannig að ég tók strætó og fór heim til mín í staðinn
.
Í síðustu viku var ég rosalega ánægð því að Toyota ætlaði að ná í bílinn minn upp í skóla og keyra hann þangað aftur, þegar búið væri að gera við hann. Það þarf að gera við læsinguna á bílnum og hann er í ábyrgð, þannig að ég nota að sjálfsögðu tækifærið. Það átti semsagt að ná í bílinn í gær kl 9, þannig að ég fer út þá og bíð þar í 10-15 mín, en enginn kemur, ég hringi og hann segir að það verði hringt í mig þegar hann verði sóttur. Klukkan 11 gafst ég upp og ég var sjálf búin í skólanum, þannig að ég hringi aftur, nú ertu að fara núna, við héldum að hann yrði þarna allan daginn, aaaaarrrrrrrgggggggggg, þannig að ég fékk nýjan tíma. Vonandi gengur það betur. Mér finnst þetta bara ótrúlegt að ef maður á tíma á að koma þá en ekki 2-4-6 tímum síðar
.
Jæja er að fara að ná í Kristófer
Kossar og knús
Bergþóra og co
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Bloggvinir
Eldri færslur
- Október 2010
- September 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
244 dagar til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.4.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.