26.3.2008 | 19:29
Komin aftur:)
Jæja góðan daginn, við erum komin aftur heim. Ég ætla að byrja á því að koma með afmæliskveðju til Margrétar en hún átti afmæli 24.mars. Svo er það líka Vilborg Helga, hún átti afmæli 23.mars, þar fengum við ljúffengar kökur og gátu frændsystkinin leikið sér svolítið saman áður en við yfirgáfum Ísland og héldum heim á leið
, takk fyrir okkur mjög gaman að spjalla um allt og ekkert
.
Ferðin okkar til Íslands var alveg frábær í alla staði, að vísu náðum við bara ekki að fara og hitta alla sem okkur langaði
. Elsku Svala mín meðal þeirra varst það þú sem ég hitti ekki og þykir mér það mjög leiðinlegt
. Við eyddum mestum okkar tíma með fjölskyldunni okkar, spjölluðum, borðuðum og skemmtum okkur
. Verst hvað þetta var fljótt að líða, okkur fannst við stoppa örstutt og þurfa aðeins lengri tíma
.
Árni Þór fermdist á skírdag og var mikið að gera í kringum það. TIL HAMINGJU MEÐ ÞETTA ELSKA. Fermingin gekk rosalega vel og allir skemmtu sér mjög vel. Við fórum öll í myndartöku, þar voru myndirnar teknar í hollum svo á að setja þær saman í tölvunni og búa til fjölskyldumynd, það voru teknar myndir af krökkunum sér líka og gekk það ekki nógu vel fyrr en Halldór fór að fíflast og náðust þá góðar myndir af þeim öllum hlægjandi, já það getur verið erfitt að fá fimm börn á aldrinum 4-8 ára að brosa á sama tíma og horfa í myndavélina
, en það tókst.
Við viljum þakka öllum fyrir okkur, mat, skemmtun, gistingu osfrv..
Það var nú svolítið erfitt að koma sér af stað í morgun í skóla og vinnu, en það tókst og voru allir mjög ánægðir að koma í skóla og leikskóla aftur. Kristófer er víst búin að vera í skrítnu, en mjög skemmtilegu skapi í dag. Kormákur er búin að haf öðruvísi dag í skólanum, það var vinnufundur hjá kennurum og foreldrar sáu því um kennslu í staðin. Mér finnst þetta svolítið sniðugt, þetta er líka gert á leikskólum hérna. Það er að vísu lokað marga aðra daga í leikskólum hér. Mjög margir leikskólar eru lokaðir á milli jóla og nýárs, hjá Kristófer er lokað vikuna fyrir páska, 1og2 maí en svo er að vísu bara lokað eina viku í sumar, þannig að mér finnst þetta í lagi
. Í mínum skóla var haldin sýning fyrir 150 krakka (þeim var skipt niður í tvo hópa), okkar markmið var að fá þau til að sitja alveg kyrr, hlusta, taka þátt (ef það var) osfrv, þetta tókst rosalega vel og voru allir mjög ánægðir með okkur. Þannig að þetta var mjög skemmtilegur dagur í skólanum hjá mér
. Jón Óskar fékk sér 2 tíma rúnt í morgun (hann lagði af stað um 5 í nótt), þegar hann var hálfnaður á leið í vinnuna var hringt í hann og hann sendur heim aftur, vegna þess að það var of mikill snjór til að vinna
, Jón var alveg sáttur við þetta og fannst mjög notalegt að vera heima í dag
.
Jæja segjum þetta gott í bili, er svolítið tóm núna.
Kossar og knús
Bergþóra og co.
P.S það koma myndir fljótlega, nenni því ekki núna.
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Breytt 1.5.2008 kl. 08:20 | Facebook
Bloggvinir
Eldri færslur
- Október 2010
- September 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
244 dagar til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.4.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Tölvan biluð svo stutt núna. Sakna ykkar strax.
Kveðja Jóhanna
Jóhanna (IP-tala skráð) 27.3.2008 kl. 11:27
Hæ hæ elskurnar. Æðislegt að hafa ykkur. Vildi bara óska að þið hefðuð geta verið lengur :( En svona er víst lífið:)
Vorum að breyta aðeins heimasíðunni okkar þannig að núna ætti að vera hægt að kommenta á það sem við skrifum á blogghluta heimasíðunnar.
Endilega prófið það. Svo eiga líka að vera tveir linkar á forsíðunni. Annar á brúðarkjólaleiguna en hinn á myndasíðuna okkar. Endilega látið okkur vita ef þeir birtast ekki hjá ykkur. En þú ættir sósum að vera með sama link að myndasíðunni síðan við létum ykkur fá hann seinast. Ég er bara að tékka því í sumum tölvum sjást ekki þessir linkar.
Ég dreif mig loksins í vinnuna í dag. Fór með hóp upp í Ingunnarskóla með Ölmu og svo löbbuðum við lengri leið heim því við vorum líka að taka myndir. Það var svo kalt að á tímabili fann ég ekki fyrir puttunum á mér og ég var í vettlingum! Það var skítkalt! Fer svo á námskeið á morgun frá 9-16 en allt um þetta á heimasíðunni okkar.
Jæja, nóg í bili
ástar- og saknaðarkveðjur,
Valgerður og Halldór
Valgerður og Halldór (IP-tala skráð) 27.3.2008 kl. 20:54
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.