5.8.2008 | 17:50
Greinilegt að sonur minn skemmtir sér vel:)
á Íslandi. Það er svo gaman hjá honum að hann má greinilega ekki vera að því að tala við okkur. Við reyndum í gær en þá var hann í bíó, í fyrradag var hann að leika við vin sinn (þá er tímanum ekki eitt í að tala við mömmu sína). En það er nú gott að honum leiðist ekki og hann á örugglega eftir að hafa nóg að gera allan tíman
. Sennilega er þetta erfiðast fyrir mig, en ég sakna hans alveg hryllilega og hann er nú bara búin að vera í 4 daga
.
Ég er byrjuð í 6 mánaða starfsnámi á leikskóla, þessi leikskóli er hér í Vejle og er alveg æðislegt að vera þarna. Skemmtilegt starfsfólk og frábærir krakkar. Að sjálfsögðu er þetta ekki allt leikur og þarf ég nú að lesa slatta og skrifa eitthvað, en ég hef góða tilfinningu gagnvart staðnum og leiðbeinandanum mínum
.
Kristófer er hæstánægður að vera kominn í leikskólann aftur og skemmtir sér mjög vel. Í gær fóru þau út í rigninguna og skyldi kennarinn ekkert af hverju fötin hans voru svo blaut að hægt væri að vinda þau eftir þessa útiveru. Skýringin kom fljótlega þegar hún var að segja mér frá þessu, innan frá stofunni heyrist "hann lagðist niður í pollinn", Kristófer fór að skellihlæja og sagði "JÁ, það er rétt", "af hverju lagðist þú ofan í pollinn Kristófer" segi ég, "hann var svo stór og skemmtilegur", ég gat nú ekki annað en hlegið, en hann lofaði að gera þetta ekki aftur heldur bara leika í pollunum
(hmmmmm ætli það haldist). Honum fannst nú pínu erfitt í morgunn þar sem ég þurfti að opna leikskólann sem ég er á og vöknuðum við því kl 5:30
.
Lítið sem ekkert að frétta af Jóni, hann er bara í vinnunni, laga tölvurnar mínar og eitthvað.
Knús og koss
Bergþóra og co
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Bloggvinir
Eldri færslur
- Október 2010
- September 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
244 dagar til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.4.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.