Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2007

AFMÆLISKVEÐJA:)

Elsku Aðalheiður og Hlynur innilega til hamingju með 4 ára afmælið ykkarWizard. Þau eiga afmæli i dag, þau eiga afmæli í dag.........Whistling

1000 kossar og knús frá okkur öllumKissing.

Kyssið mömmu, pabba og Ingimund frá okkur líkaGrin.


AAAAAAAAAARRRRRRRRRRRGGGGGGGGGGG:)

Ég bað Jón að leita að kassanum þar sem efni í aðventuskreytingarnar mínar er, jú hann fann kassann og viti menn þarna voru jólakökudunkarnir mínir. Ég var alveg viss um að ég hafði gleymt þeim á Íslandi og keypti því 10 stauka í Tiger (kostuðu alls ekki mikið, en samt). Núna er líka búið færa Sörurnar úr plastpokum í stauka (Jóni finnst þetta stundum óþarfa pjatt, þetta bragðast eins segir hann, hehehehe.KARLMENNGrin, maður bara verður að elska þá suma fyrir hófsemina), mér finnst voða gaman að hafa jólasmákökurnar í flottum dunkumSmile.

Varð bara að segja ykkur frá þessu, var pínu hneyksluð á sjálfri mér að GLEYMA þessu stóra atriði, hehehe. Við fundum reyndar plast dúkinn okkar, en ég var að spá í að fara í Rúmfatalagerinn að kaupa einn jólaplastdúk, hjúkket að ég gerði það ekki, þá hefðum við endanlega farið yfirumSmile. Jón er að skamma mig núna, honum finnst vera pjatt hjá mér að ég vilji raða td sörunum með súkkulaðið upp en ekki bara setja þær í,en ekki dunkarnir mínir, heheheLoL.

Elska ykkur öll.


Vikan:)

Vikan er búin að vera frekar róleg hjá okkur, ég var í skólanum á Mið og Fim, það var fínt nema að grúbban mín var að sjálfsögðu ekki undirbúin til að vinna verkefnið sem við áttum að gera, aaaaaaaarrrrrrrggggggg. Ég vona bara að það reddist því að það á að vera í skýrslunni sem ég á að gera eftir starfsnámið. 

 Á föstudaginn fór Jón með Óla til Þýskalands að versla rauðvín ofl fyrir jólin. Bíllinn var var vel hlaðin, en þó var mest frá Óla hí, híGrin. Við fórum svo út að borða á hlaðborð í Give, mjög gott og svakalega ódýrt. Þegar við komum heim fór ég að baka SörurSmile, og gekk það mjög vel.

Á laugardaginn komu Ásta, Óli og co þar sem við Ásta vorum að gera Sörurnar saman. Jón, Óli og Eydís fóru á búðarflakk og við Ásta vorum heima með rest til að klára Sörurnar. Við náðum að klára Ástu skammt og svo rak ég þau heim vegna veikinda, maður nennir nú ekki að hafa einhverja pestagemlinga hjá sérLoL. Ég kláraði svo okkar skammt og Jón tók meira að segja aðeins til hendinni og hjálpaði mér, ekkert smá duglegurTounge. Þegar baksturinn var búinn slökuðum við öll á og fórum snemma í háttinn þar sem ferðinni var heitið til Koben á sunnudag.

Við vorum kominn til Koben um tíuleitið í gærmorgun og fórum á hótelið til Kristínar og Kalla. Þau voru í afslöppun á meðan þau biðu eftir okkur, enda ágæt þreyta í gangi eftir mikið labb hjá þeim síðan á fimmtudagSmile. Þau komu líka með óvæntan glaðning að heiman, þau höfðu verslað íslenskt nammi handa okkur í Fríhöfninni ,mmmmTounge. Við fengum svo sendingu frá ömmu og afa á Höfn, þau vildu að við keyptum jólagjöf handa strákunum frá þeim, við vorum ekki lengi að þvíGrin. Við fórum svo í Fields að versla jólagjafir og föt á Kormák. Ég og Jón ákváðum að við skildum taka lestina, að venju höfðu strákarnir gaman að því, sérstaklega í Metro lestinni þar sem enginn lestarstjóri er. Við vorum í Fields allan daginn og K og K buðu okkur í mat þarna, algjört æði. Mér fannst að sjálfsögðu nauðsynlegt að labba Strikið fyrst að við vorum kominn til Koben, ég var pínu fúl að það var ekki búið að kveikja á jólaskrautinu þar, en samt alltaf gaman að kíkja þar við þó að engar búðir séu opnarSmile. Eftir langan og skemmtilegan dag brunuðum við heim á leið, við vorum varla lögð af stað þegar Kristófer var sofnaður, en Kormákur hélt sér nú vakandi þrátt fyrir að klukkan var margt. Hann var svo upptekin að leika með nýja Transformers kallinn sinn, þeir fengu nefnilega sitthvorar 100 krónurnar sem þeir máttu kaupa það sem þeir vildu fyrir, Kristófer valdi sér Tmnt karl, þeir ekkert smá ánægðirGrin.

En jæja elsku Kristín og Kalli takk fyrir frábæran dag, nammið og matinn, það var svaka gaman að hitta ykkurSmile. Amma og Afi takk fyrir strákana, við erum búin að kaupa helminginn af gjöfinni og hinn kemur seinna. Ég hringi nú ykkur og læt ykkur vita hvað við keyptum, ástarkveðja frá okkur öllumHeart.

Síðast en ekki síst vil ég óska Rögnu, Kristni og Margréti innilega til hamingju með litla prinsinn sem fæddist á þriðjudaginnKissing.

Kossar og knús

Bergþóra og co


Hææææ!

Mig langar að byrja á því að óska Gyðu til hamingju með daginn (hún átti afmæli á fimmtudaginn). Hún Rúna vinkona átti svo afmæli í gær, til hamingju með það elskaWizard. Ég er búin að vera svolítið gleyminn síðustu daga, en eins og ég segi alltaf, "betra er seint en aldrei". 

Þá er enn ein helgin búin og Kormákur kvartar. Hann sagði við mig í gær "Er skóli á morgun", "Já Kormákur minn, það er sunnudagur í dag", "ég veit það, mér finnst helgin bara of stutt"Smile. Ég gat nú alveg verið sammála því, tíminn flýgur alltaf áfram.

Við eyddum helginni í bakstur fyrir jólin, við erum búin að baka fimm sortir og eigum eftir að baka eitthvað. Kormáki hlakkar mest til að gera piparkökur og kókskúlur, því að það er svona sullumall við þaðGrin. Ég set inn myndir þegar allt þetta er búið.

Ég var að segja þeim í vinnunni í dag hvernig við skreytum fyrir jólin og þær voru nú bara frekar hissa að við erum bara með marglitaðar jólaseríur. Maður fær þær nefnilega ekki í Danmörku. Já Danir eru skrítnir (eða kannski við, það er ykkar að dæma það)Wink. Þessi sem ég talaði við setur líka upp jólatréð sitt um 22 des og tekur það niður fyrir nýárið, mér finnst nú bara varla taka því að setja það upp fyrir svona stuttan tímaSmile.

Jæja nóg í bili, nenni ekki að skrifa meira. Munið að kvitta.

Heyrumst síðar!

Kossar og knús

Bergþóra og co


Fundurinn!

Gekk vel! Kormákur er að sjálfsögðu rosalega duglegur í skólanum og vill hafa krefjandi verkefni svo að honum leiðist ekkiGrin. Þær eru mjög hissa á því hvað hann er fljótur að læra dönskuna og finnst hann hafa framyfir aðra að kunna ensku svona vel og geta haldið tungumálunum aðskildumHappy. Hann er sá fyrsti sem fer úr móttöku bekknum, en hinir eiga víst einhverja mánuði eftir ennþá. Þannig að við erum ekkert smá ánægð með strákinn okkarLoL.

Þegar við vorum búin á þessum fundi fórum við heim til Jóns og Kristófers, en þeir voru saman heima í dag. Jón vinnur ekki lengur á föstudögum og Kristófer fékk hitavellu í gær og var því ákveðið að hafa hann heima í dag. Við fórum að hnoða upp í smákökur sem á svo að baka á morgun, við gerðum þrjár sortir í dag og svo hnoðum við eitthvað meira á morgun ef við höfum tíma. Við gerðum nefnilega mömmukökur í dag og þær taka nú bara dágóðan tímaSmile.

Við Kormákur fórum til læknis í gær og Kormákur er með exem og fékk sterakrem á olnbogana sína og er hann strax skárri. Þannig að þetta getur ekki verið mjög alvarlegt, sem er nú fínt.

Mamma og pabbi eru búin að kaupa flugmiða til að koma til okkar. Þau koma á annan í jólum og verða hjá okkur yfir áramótin. Við erum bara spennt, en ákveðin í að halda þessu leyndu fyrir strákunumGrin. Það verður gaman að sjá svipinn á þeim þegar þau birtast í kaffinu, heheLoL.

Biðjum að heilsa í bili.

Kossar og knús

Bergþóra og co


Kormákur!

Hann Kormákur Helgi er á leiðinni í almennan bekk, þeim finnst hann svo duglegur að tala dönsku og telja hann því tilbúinnGrin. Það er fundur með kennaranum hans á föstudaginn, hún vill vita hvað okkur finnst. Mér finnst hún ekkert þurfa að spyrja, auðvitað viljum við að hann fari í annan bekk ef hann er tilbúinnSmile. Við erum ekkert smá ánægð með hann, enda líka duglegur strákur á ferðLoL.

Það sem er af þessari viku er búið að vera rólegt. Ég er búin að fara í vinnuna, en samt er ég ekki þar. Ég er búin að vera með í hálsinum og eins og ég sé með hita, en nei ég get ekki bara verið veik, heldur bara þetta leiðinlega slen. Við Kormákur erum samt að fara til læknis á morgun, ég hef grun um að hann sé að fá exem á olnbogana og vil fá eitthvað á það sem fyrst.Í leiðinni ætla ég að láta taka stroku hjá mér og ath hvort ég sé með streptokokka (veit ekki hvernig á að skrifa þetta).

Ég er bara svo ánægð með strákinn minn og vildi monta mig aðeins, læt ykkur vita hvernig fer á fundinumGrin.

Valgerður og Halldór velkomin heimSmile.

Kvitta takk elskurnarKissing.

Knús og kossar

Bergþóra og co


Jón uppgefinn eftir píanóflutninga:)

Við vorum samt ekki að fá okkur píanó.  Óli plataði Jón að koma í dag og hjálpa honum að flytja píanó ofl, við skelltum okkur svo uppeftir í dag og Jón er bara búinn á því. Ég hvatti þá að sjálfsögðu áfram "koma svo, þetta getur ekki verið svo erfitt" (píanóið bara 15o kg)LoL. Áður en við fórum upp í Give fórum við á loppemarked, eina sem við fengum út úr því var að kafna úr reykingalykt þarna inni. Þegar við komum heim var borðað og svo erum við bara á chillinu, spjallaði aðeins við Jóhönnu og Steina og það er alltaf jafn gaman að heyra í ykkur þarna heima.

Á föstudaginn var bara afslöppun og pizzabökun. Í gær byrjuðum við á því að versla og fórum svo með Óla og Ástu á "jólamarkað", sem var svo bara sýning og nánast ekkert í sambandi við jólinWoundering. Kormákur var eftir heima hjá Óla og Ástu að leika við Ragnar og skemmtu þeir sér mjög vel, Kormákur var dauðfegin að þurfa ekki að koma meðSmile. Þegar við komum heim elduðum við Íslenskt lambalæri og drukkum að sjálfsögðu rauðvín með, það var bara gottGrin.

Þannig er nú helgin okkar búin að vera, róleg og notaleg. Nema kannski fyrir Jón í smástund í dagSmile.

Kossar og knús

Bergþóra og co

 


Komið helgarfrí:)

Núna er ég búin að vera eina vinnuviku á leikskólanum og er búin að fá einn leiðsagnarfund. Hann gekk vel og er Mona bara ánægð með mig. Henni finnst ég ná góðu taki á krökkunum og ná öllu fljótt. Hún vildi að vísu að ég lagaði markmiðin mín, en það voru mest svona athugasemdir sem mér fannst eðlilegt að maður gerði og ég bætti því við og vona að þetta sé þá í lagi núnaSmile. Annars hefur vikan verið afskaplega róleg.

Fréttir af strákunum og dönskunni. Kormákur talar bara orðið dönsku í skólanum og þá líka við krakkana, ekkert smá duglegurGrin. Ég er stundum farin að spyrja hann hvernig maður á að segja hlutina, æði fyrir migErrm. Kristófer Ingi talar líka orðið meira og er talkennarinn hans mjög ánægð, segir að hann sé líka alltaf að spyrja hvað er þetta og reynir mikiðSmile.

Um helgina er svo planað að vera heima, slappa af og elda íslenskt lambalæri sem mamma og pabbi sendu Elísabet og Nicolai með til okkar, þetta verður örugglega algjört æði,mmmmmGrin.

Kossar og knús

Bergþóra og co


Fyrsti dagurinn búin!

Dagurinn í gær var mjög rólegur, við fengum okkur göngu á göngugötunni þar sem frúin á heimilinu vildi kaupa sér svona gamaldags hakkavél eins og mamma á, en það er hluti af jólabakstrinum að nota þetta. Ég sá eina auglýsta á 100 dkr, mér fannst það nú ekki mikið, en til mikillar óhamingju var lokað, þannig að ég verð að fara seinna. Við týndum laufblöð í leiðinni sem við ætlum að spreyja með gullspreyi og reyna svo að föndra eitthvað úr þeim. Þegar við komum heim fórum við að mála postulíns piparkökur sem á að hengja á jólatréð, þær eru ekkert smá flottarGrin.

Ég fór í Kernen í dag, en það var fyrsti dagur í starfsnámi þar. Þetta var ágætt en ég veit ekki hvort þetta sé eitthvað fyrir mig. En það gæti bara verið svona í byrjun, kemur í ljósSmile. Eftir vinnudaginn hringdi ég í Jón "hæ getur þú komið heim, ég þarf að fara á starfsmannafund" gaman svona fyrsta daginnErrm. En fundurinn var fínn, mér fannst bara verst að ég sá strákana mína svo stutt í dag, maður er svo vanur að vera alltaf með þeimGrin. Áður en ég fer er ég að kyssa strákana bless og Kristófer segir "ok mamma við verðum bara heima á meðan og Kormákur passar mig", "hmmm já elskan eða kannski bara pabbi þinn", " en mamma ferðu bara alein, er enginn sem fylgir þér", honum fannst þetta pínu skrítið. Þegar ég kem svo heim aftur kemur hann " hæ mamma var gaman á fundinum", "ég held að það hefði verið meira gaman að vera bara heima" sagði ég, "láttu ekki svona mamma, var ekki gaman"LoL.

Látum þessa færslu enda með þessum orðum.

Kossar og knús

Bergþóra og co


Halló!

Við fórum á foreldrafund hjá Kristófer Inga í gær, það er venja að kalla inn foreldra hjá tvítyngdum börnum eftir þrjá mánuði til að ræða framfarir þeirra. Þetta gekk alveg mjög vel, hún finnur að hann meðtekur alveg helling, en hann er ekki alveg tilbúin að nota dönskuna mikið á krakkana. Hann talar aftur á móti mikið við starfsfólkið og skilur orðið yfirleitt allt, stundum þarf að útskýra hlutina fyrir honum en þá kveikir hann straxSmile. Hann virðist líka vera feiminn, já ég sagði að Kristófer væri feiminn. Hann vill allavega ekki taka mikinn þátt í leikfimi þegar það eru margir, en svo þegar það eru svona 6-7 saman í hóp þá er það fínt. Hann er mikið fyrir músíkina og syngur mikið þar, hann syngur nú líka bara dönsku löginn hérna heimaSmile, ég er farinn að halda að hann muni ekki mikið af þeim íslenskuErrm.

Við fórum í gær og í dag í jólagjafaleiðangur, það gekk nú alveg furðuvel og tókst okkur að klára mestalltGrin. Nú er bara að pakka inn, klára jólakortin og senda þetta til Íslands. Við fórum að versla í Kolding í gær en fengum okkur rúnt alveg í Esbjerg í dag (um 90-100 km), það er flott göngugata þar og við ákváðum að þangað yrði farið aftur á góðum sumardegiSmile. Á leiðinni heim var komið við á videoleigunni og TMNT myndin tekinn á leigu, núna er svo verið að fara að horfa á hana. Við prófuðum Lambalundir frá nýja sjálandi, gerðum appelsínusósu með og drukkum rauðvín. Þessar lambalundir voru bara mjög góðar og fundum við ekkert "ullarbragð" (mér persónulega finnst nú samt íslenska lambakjötið betra)Smile.

Elsku mamma takk æðislega fyrir blaðið, er að fara að skoða það almennilega, en líst samt mjög vel á þaðLoL.

Jæja er að fara að horfa á TMNT, heyrumst síðarSmile.

Kossar og knús

Bergþóra og co


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband