Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2008

Innilega til......

hamingju með afmælin ykkar elsku Aðalheiður og HlynurWizard. Þið verðið örugglega risastór þegar ég sé ykkur loksins, 5 ára, það er ekkert smá áfangiGrin. Afmælis og saknaðarkveðjur frá okkur í DanaveldiInLove.

Jæja það er kannski komin tími til að skrifa aðeins um þennan fund sem ég var á á mánudaginnSmile. Kennarinn minn kom á leikskólann til þess að fá að heyra hvernig gengi og að heyra formlega hvort ég væri búin að ná starfsnáminuCrying. Ég var svo stressuð að þið getið ekki ímyndað ykkur það. Ég byrja á því að sína honum leikskólann og leist honum mjög vel á, þegar við komum inn á skrifstofuna er svo það fyrsta sem hann segir "ég veit ekki til hvers ég er hérna, það lítur allt svo vel út á skýrslunni", mér létti mikið, og var hann mest spenntur að heyra hvað við værum að vinna með og hvernig. Þetta var mjög afslappað og fínt, og fékk hann og ég að vita formlega að ég væri búin að náTounge, en ég get sagt ykkur það að lappirnar á mér voru eins og hlaup þegar ég stóð upp eftir þettaGrin.

Annars gengur allt sinn vanagang hér á bæ, brjálað að gera hjá öllum, ekki hægt að segja að okkur leiðist. En mikið verður gott að komast í jólafríHappy.

Jæja, nenni ekki meiru. Er að fara að baka sörur, mmmmmmSmile.

Knús og koss

Bergþóra og co


Jæja þá er netið komið aftur:)

Vikan hjá okkur er búin að vera róleg, ég varð veik á laugardaginn. Fann bara hvernig hitinn steig á leiðinni upp í Ikea, við þurftum líka upp í Álaborg að ná í dót fyrir Jón, þar sem hann verður í Arhus næstu vikurnar. Ég svaf mest allan tíman sem við vorum á ferð, þannig að þetta var ekki mjög ánægjuleg ferð, en hafðistSmile. Ég var svo heima mánudag og þriðjudag frá vinnu, en var mjög glöð að fara  aftur í vinnu á miðvikudagGrin.

Fordinn var bilaður eins og ég sagði frá síðast og fengum við hann úr viðgerð í dag. Maðurinn hélt að heddið væri farið, en sem betur fer var það bara heddpakkningin. Ég er samt búin að komast að því enn og aftur að TOYOTA eru bestu bílarnirGrin.

Kormákur er hjá vini sínum núna og gistir þar, við notuðum tækifærið og skelltum okkur upp í Give til að kaupa hluta af jólagjöfinni hansWhistling og svo í baksturinn, þannig að hægt sé að bara einhverjar smákökur fyrir jólin.

Ég er núna að láta mig kvíða fyrir fundinum sem ég verð með á mánudaginn, með leiðbeinandanum á leikskólanum og kennara frá skólanum, þarna förum við yfir hvernig allt hefur gengið. Ég veit að ég verð góðkennd, en leiðbeinandinn minn er búin að vera í fríi alla vikuna og veit ég ekkert hvernig þetta verður eða hvað hún hefur skrifaðBlush. En ég segi ykkur betur frá þessu á mánudaginn.

Þar til næst, verið góð hvert við annaðInLove.

Knús og koss

Bergþóra og co


Sorrrryyyyyy

En betra er seint en aldreiSmile. Internetið var nú líka að stríða okkur eftir flutningana, en datt loksins inn í dag, jeiGrin. Það er nú mikið búið að gerast hjá litlu familien í danaveldi. Núna er rétt rúm vika síðan Jóhanna og Ingimundur fóru heim aftur. Við áttum alveg frábæra viku með þeim og nutum þess bara að vera saman. Það var lítið verslað, lentum í fangelsi og eyddum síðasta deginum þeirra í köben saman. Ingimundur greyið fór að gráta út á flugvelli, og vildi ekki segja bless, en hann lét sig nú hafa það og gaf okkur öllum risaknúsGrin. Mér fannst nú betra að hafa þetta eins stutt og hægt væri því að ég er að æfa mig í að gráta EKKI á flugvöllumCrying (tókst næstum). Elsku Jóhanna og Ingimundur takk æðislega fyrir frábæra viku, hlökkum til að hitta ykkur afturLoL.

 

Æi, já þið viljið kannski vita eitthvað um fangelsisvistina okkarToungeVið fórum í gamla ríkisfangelsið í Horsens, því var lokað og gert að safni og núna held ég að það eigi að byggja hótel (er samt ekki alveg viss). Þarna löbbuðum við um og kíktum inn í klefana og fannst strákunum þetta mjög spennandi en samt svolítið óhuggulegt í leiðinni.

 

Síðan að þau fóru er ég búin að vera að hugsa um börnin, vinna, læra og pakkaSmile. Endaði að vísu í smá tímaþröng með að pakka, en þetta hafðist allt og fluttum við mest allt á föstudaginn, með góðri aðstoð frá Kristni og börnum og Óla, Ástu og börnum. Takk æðislega fyrir hjálpinaGrin. Við komumst að vísu að því að hjólinu hans Kormáks hafði verið stolið, það var greinilega nýbúið að því þar sem ég sá það úti á miðvikudaginn og þetta er samt ekkert sem maður er alltaf að pæla í. Við vorum frekar fúl yfir þessu og bjuggumst ekki við þessu þarna uppfrá, langt frá ölluAngry. En það er ekkert sem við getum gert, nema að kaupa nýtt handa honum næsta sumarErrm.

 

Á laugardaginn fórum ég og Kormákur niður í íbúð og fylltum vinnubílinn hans Jóns af dóti, fórum í Bilka að versla og aumingja Kormákur var varla að komast fyrir í bílnum á leiðinni heim. Óli, Ástu og co komu í mat á laugardaginn í íslenskt lambalæri, það ver eldað á eldgamla mátan, kryddað bara með salti og pipar, klikkar ekkiLoL. Við fengum okkur svo aðeins of mikið neðan í því og höfðum við hjónin timburmenn á yfirvinnu á sunnudaginnSick. Við vorum að vísu mjög þreytt á þeim og vorum dauðfeginn þegar þeir fóruBlush. Við skelltum okkur þá niður í íbúð, tókum gardínur og myndir niður og er þá íbúðin gersamlega tóm núnaSmile

Við lofuðum eldri hjónum á efri hæðinni að koma og segja bless áður en við færum alveg og gerðum við það í gær. Þau voru rosalega ánægð okkar vegna að vera að flytja, og bíða þau sjálf eftir að geta fluttWink. Þau voru nú svo yndisleg og gáfu strákunum kveðjugjöf, þeir fengu lego og voru þeir hæstánægðir með þetta, léku sér mikið þegar við komum heimGrin.

 

Ég set inn myndir um leið og ég hef tíma til að andaTounge.

Knús og koss

Bergþóra og co


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband