Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2008

Hello!!!!!!

Vá mér finnst ég vera gersamlega tóm núna, en ég bulla bara eitthvað og við sjáum svo til hvað kemur út úr því. En takk fyrir kvittanirnar, þetta er svo miklu skemmtilegra svonaGrin.

Vikan er annars búin að vera eins og venjulega, vinna, skóli og allt þetta. Mér finnst ennþá voða gaman á leikskólanum, ég var í vejledningu og fékk ég bara hrós þarTounge. Hún sagði að ég væri eins og Danir kölluðu það "fædd pædagog", en að ég fattaði það ekki alltafLoL hihi, hversu montinn getur maður orðiðBlush.

En nú eru stóru fréttirnar, það hlaut nú að koma að því að maðurinn minn myndi gefast upp á þessari konu sinni. Hann er sem sagt búin að ákveða það að flytja að heimanCrying. Hann er að flytja upp í Stovring mánudaga til föstudaga, en þá kemur hann heim og eyðir helginni með okkur hinumLoL.

Við fórum í gær á Miðaldarhátíð í Horsens, en það var uppselt á sýningarnar og vonbrigðin mikil hjá drengjunumErrm. Við bættum aðeins upp og gáfum þeim miðaldardót (boga og en eitt sverðið)Grin. Þetta var annars mjög gaman að labba um bæinn og skoða, Jón keypti sér að sjálfsögðu bjór og fékk voða fína könnu með (leirkrús)Grin. Við fórum síðan heim, elduðum mat og spiluðum HættuspiliðGrin, Jón voða ánægður, hann VANN (gerist nánast aldrei).

Í dag fórum við og ætluðum að skoða ísskápa, þvottavélar ofl í nýja húsið en allt var lokað. Við fórum þó í Jysk og þar náði ég í sessur á nýju garðstólana fyrir 30 kr stk í stað 175 dkr stkGrin, hehe geri aðrir betur. Við komumst svo að því þegar við komum heim að hann Kormákur okkar var komin með 38 í hitaSick, bara gaman eða þannig, heppilegt að það er stuttur dagur hjá Jóni á morgun svo ég kemst í vinnuna.

Jæja best að koma litla dýrinu í rúmið. Heyrumst síðar.

Knús og koss

Bergþóra og co


Hæ!

Ég kíkti á Hlyn sjónvarpstjörnu á stod2.is, þar sem hann var í þjálfun á hestbaki, "mikið rosalega ertu flottur þarna í sjónvarpinu Hlynur"LoL og núna get ég líka sagt "litli frændi minn kom í sjónvarpinu" heheGrin.

Við erum búin að eiga frekar rólega helgi. Á föstudaginn kom Kristófer Ingi heim úr ferðalaginu sínu, en hann skemmti sér alveg konunglega þar og var dauðþreyttur þegar hann kom heimGrin. Sýndi mér stoltur kortið sitt sem hann fékk frá okkur, en Kormákur bað ömmu sína um að velja fyrir sig póstkort sem við gátum sent honum í fríið, kortið frá Skaftafelli varð fyrir valinuSmile. Við erum búin að vera reyna að spyrja hvað hann fékk að borða og hvað hann gerði í ferðalaginu, en það er bara allt LEYNDÓWink.

Við vorum á fundi í bankanum á föstudaginn, fundurinn tók rúma 2 tíma og er ekki allt búið enn. Komum þó lánunum á hreint og fáum tilboð í tryggingar ofl í vikunniGrin. Þetta er þvílík vinna hérna, en við erum allavega búin að skrifa undir kaupsamning og útborgunin verður greidd á mánudaginn, þannig að VIÐ EIGUM HÚSGrin. Það er búið að segja þessari íbúð upp og bíðum við bara spennt eftir að geta fluttGrin.

Í gær fórum við upp í Give til Ástu og kíktum í bæinn, þar var tívolí og loka útsölur, svaka fjörGrin. Ég fékk flotta hjarta silfur eyrnalokka frá öllum strákunum mínumInLove.Krakkarnir skemmtu sér vel í þessum snúningstækjum á meðan við stóru krakkarnir horfðum áGrin. Sáum Pétur Pan gera töfrabrögð og svo henti hann litlum hlauppokum til krakkanna, strákarnir náðu sér í ca 30 stk og krakkarnir hennar Ástu eitthvað svipaðGrin. Við fórum síðan heim þar sem við vorum búin að plana fínan kvöldmat, skál fyrir húsinu oflGrin.

Í morgun þegar ég vaknaði fór ég í bakaríið og keypti rúnstykki og brunsvigerSmile, ákveðið var nefnilega að hafa góðan morgunmat yfir handboltanum. Já ég veit það er erfitt að trúa því að ég hafi horft á leikinn, en ég gerði það (ásamt því að brjóta saman þvott, ganga frá eftir morgunmatinn, setja í þvottavél oflBlush), en þetta var skemmtilegur leikur, en mikil vonbrigði að þeir náðu sér ekki á strik því að þeir eru helvíti góðir. Ég er nú samt sátt að þeir náðu silfrinu, skrambi gott. TIL HAMINGJU STRÁKAR MEÐ SILFRIÐGrin. Ég kíkti á á flug heim núna í morgun þegar ég var að tala við Helenu og viti menn við keyptum ferðina okkar núna, búið að lækka farið um 1800 dkr síðan ég byrjaði að spá í þetta. Við komum semsagt heim um jólinGrin og eitt af því fyrsta sem við gerum er að fara í skírn til Valgerðar og HalldórsGrin. OOOHHHHH ég hlakka svo til að hitta allaGrin.

Jæja gæti bullað endalaust, en er orðin frekar þreytt á þessu núna, nenni ekki meir. KVITTA

Knús og koss

Bergþóra og co


Þá er Kormákur kominn heim.....

en Kristófer er farinnGrinCrying. Þetta er búin að vera furðulegur tími fyrir mömmuna á heimilinu. Stóri litli drengurinn nýkominn heim og ég hef varla séð hann. Vinna snemma að sofa, eldsnemma á fætur, vinna meira, fundur osfrv, en vonandi get ég eytt smá tíma með honum í dagSmile. Hann er nú dálítið pirraður út í litla bróðir sinn og skilur ekki af hverju Kristófer þarf alltaf að vera knúsa og kyssa hann. Ég er búin að segja að hann hafi bara verið svo ánægður að sjá stóra bróðir sinn og þá fæ ég " já mamma, mér finnst líka gaman að sjá hann, en hann þarf ekki alltaf að vera að knúsa og kyssa mig"LoL.

Kristófer fór svo í morgunn á leikskólann og er að fara í tveggja daga ferðalag með þeim. Hann vildi nú heldur betur knúsa og kyssa bróðir sinn bless og það var ekki fyrr en ég sagði Kormáki að hann gæti nú alveg gefið honum knús og sagt góða skemmtun við hann, sem Kormákur lét sig nú hafa þaðTounge. Bara æðislegir þessir drengir, en guð minn góður hvað minn 9 ára getur verið með mikla unglingastælaBlush, en það er bara tekið á því og rætt um þetta eins og fullorðið fólk, gaman að þvíWink. Þegar við komum inn á leikskólann talaði ég við kennarann hans sem fer með í ferðina og sagði henni ca hvað hann væri með, "vonandi er þetta nóg" sagði ég, "jájá, örugglega það og meira til heyrist mér"Grin. Það vantar þá ekkert allavega, er það ekki betra að hafa aðeins of mikið, heldur enn of lítiðBlush.

Við vorum á fundi með lögfræðingi í gær út af húsakaupunum, honum leist voðalega vel á allt, en mælti með því að við mundum skipta út ofnunum, því þeir eru orðnir gamlir og eyða sennilega meira rafmagni heldur en þarf fyrir svona húsSmile. Hann þarf reyndar að sækja um leyfi fyrir mig til þess að kaupa hús hérna í Danmörku. Við hlógum smá af þessu, en þetta er víst bara formsatriði og er aldrei neitt vandamál. Það þarf bara leyfi fyrir mig en ekki Jón þar sem hann er að vinna, en ég í skólaWink. Á föstudaginn förum við í bankann að tala við þjónustufulltrúan okkar og ganga frá lánunum. Hún sér síðan um allt í samvinnu við lögfræðinginn okkur.

Jæja ég er í skólanum, ætla að fara að hlusta afturGrin.

Knús og koss

Bergþóra og co 


Innilega til ......

hamingju með 10 ára afmælið Gunnlaugur IngiWizard.

Skilaðu kveðju til allraGrin.

Knús og koss

Bergþóra, Jón, Kormákur og KristóferSmile.


HMMMM......

Hvað er að frétta síðan síðast. Á föstudaginn undirskrifuðum við kauptilboð á húsið sem ég sagði ykkur frá, seljandinn samþykkti þetta og svo er bara að vona að lögfræðingunum okkar finnist þetta ekki vera vandamálTounge. Venjulega er það ekki þannig að við teljum okkur vera orðna stolta húseigendurGrin og fáum við afhent 15 október. Það þarf nú að gera ýmislegt, eins og að mála. En seinna meir verður eldhús og þvottahús tekið í gegn. Þetta verður mjög spennandi fyrir okkur, þar sem hvorugt okkar hefur átt eigið hús með garðiGrin, þannig að við látum okkur dreyma um það hvernig við viljum hafa garðinn okkar (hindberjarunna, bláberjarunna, eplatré, mmmmmmm, hehehe) gaman hjá okkurTounge.

Jæja við byrjuðum gærdaginn á því að fara í Rúmfatalagerinn og keyptum okkur garðhúsgögn á útsölu. Við föttuðum það svo þegar við komum út að við komum ekki borðinu í fínu Toyotuna mína, þannig að Ásta og Gunnhildur komu á Volvo station og björguðu okkurBlush. Við náðum nefnilega í grænt plastborð sem er 115 cm á breidd og 190 á lengd, svo er hægt að stækka það upp í 260 cm hehe, svo voru keyptir 4 stólar (svona sem er hægt að leggja bakið aftur, mmm notó, hihihiGrin. Takk fyrir hjálpina Ásta og Gunnhildur.

Eftir bæjarferðina fórum við upp í Silkeborg til Rögnu og co, þar var horft á Ísland-Danmörk í handbolta, MJÖG mikil spenna hjá körlunum. Kristófer fannst alveg æðislegt að Margrét (8 ára pæja)nennti að leika við hann þar sem það gengur stundum ekki vel þegar Kormákur er líka, þá vilja þau stóru helst bara leika sér tvöGrin. Ragna bakaði vöfflur í kaffinu og svo var grillað áður en við kíktum í bæinn. Það var Regatta fest í bænum og mikið um að vera, tívoli (þar vantaði Kristófer bróðir sinn), hljómsveitir út um allt ofl. Ragna, Rúnar (bróðir Kristins), Harpa (kona Rúnars) fóru heim með minnstu krakkana, þar sem þeim leist ekki of vel á þennan hávaða eftir að þau voru búin að fá sér smá lúr í vagninumSmile. Ég, Jón, Kristófer, Kristinn og Margrét urðum eftir og biðum eftir að sjá flugeldasýninguna, vááá hvað hún var flottSmile. Við vorum svo komin heim um 1:30 í nótt og allir svakalega þreyttir en ánægðir eftir skemmtilegan dag. Takk æðislega fyrir skemmtilegan dag og góðan matSmile.

Frúin á heimilinu vaknaði samt í morgun kl 8:30 með litla trippinu og fékk kast í eldhúsinu, bakaði Bananabrauð, kryddbrauð og sunnudagsbollur Sollu stirðuGrin, Jón kemur svo fram, vá er brjálað að gera hér heheLoL.

Annars er planið fyrir daginn er að klára heimalærdóminn, fara upp í Give til Ástu með bananabrauð og kryddköku og fá kaffi. Síðan er stefnan tekin á herbergið hans Kormáks og gera það fínt áður en hann kemur heimLoL, hihi hann er loksins að koma heim, kemur á morgun, oooooo ég hlakka svo til að sjá hannSmileLoLGrin.

Knús og koss

Bergþóra og co

PS, einu sinni enn KVITTA, það er svo miklu skemmtilegra að skrifa þegar maður fær einhver viðbrögð.


Hæ hó ,jibbí jej og jibbí jej það er....

kominn 11. ágúst, hann Steini á afmæli í dagWizard. Til hamingju með daginn elsku krúttið okkar, njóttu dagsins velGrin.

Knús og koss frá okkur öllum í Danaveldinu.


Þá er ein vika síðan sonur minn......

stakk af til íslandsLoL. Það er allt mjög gaman hjá honum og mikið að gera, hmm skrítiðSmile. Það er frekar rólegt í kotinu hjá okkur, svona þegar við erum bara með annan drenginn heima. Ekki það að Kristófer nýtir það í botn að hafa ekki bróðir sinn heimaSmile. Kristófer sefur í herberginu hans Kormáks, spilar í tölvunni hans og horfir á hans sjónvarp, ALGJÖRT ÆÐIGrin, Kristófer saknar samt bróður síns og spyr oft hvort hann sé nú ekki að fara að koma heimWink.

Við erum búin að vera að skoða nokkra garða hérna í nágrenninu, þar sem okkur finnst vera mikil þörf á því fyrir okkur að hafa nóg pláss fyrir stórt trampólín og sundlaugTounge. Við fundum einn góðan garð í litlum bæ hérna rétt hjá (ca 20 mín), en við vorum nú svo heppin að þar er 127 fm hús sem fylgir með í kaupunum. Við gerum tilboð í þetta eftir helgi, þannig að það verður spennandi að sjá hvað kemur út úr þvíGrin.

Eins og allir vita þá eigum við engan pabba eða mömmu hérna í Danmörku og okkur vantaði mikið einhvern sem hefur vit á byggingum til að skoða húsið með okkur, þannig að við fengjum öðruvísi komment á þaðSmile. Pabbi Mads (maður rúnu vinkonu) kíkti á ástandsskýrsluna til að meta húsið út frá henni og leist honum vel á. Við fengum svo Gumma og Önnu foreldra Rúnu lánaða til að kíkja með okkur á húsið. Gummi, Anna, Rúna og Emma komu svo í dag og kíktum við á húsið og fengum okkur svo kaffi hérna heima. Málin voru svo rædd hérna heima og komumst við öll að þeirri niðurstöðu að okkur leist vel á, en það þarf samt að leggja smá vinnu í það, ég hef nú bara gaman að þvíGrin. Takk fyrir hjálpina með þettaSmile.

Í kvöld á að vera í leti fyrir framan sjónvarpið með nammi og poppGrin. Á morgun er svo stefnan tekin á lærdóm (ég) og svo á Kung Fu panda með KristóferGrin.

Knús og koss

Bergþóra

PS: VERIÐ DUGLEG AÐ KVITTA

 


Greinilegt að sonur minn skemmtir sér vel:)

á Íslandi. Það er svo gaman hjá honum að hann má greinilega ekki vera að því að tala við okkur. Við reyndum í gær en þá var hann í bíó, í fyrradag var hann að leika við vin sinn (þá er tímanum ekki eitt í að tala við mömmu sína)Wink. En það er nú gott að honum leiðist ekki og hann á örugglega eftir að hafa nóg að gera allan tímanGrin. Sennilega er þetta erfiðast fyrir mig, en ég sakna hans alveg hryllilega og hann er nú bara búin að vera í 4 dagaCrying.

Ég er byrjuð í 6 mánaða starfsnámi á leikskóla, þessi leikskóli er hér í Vejle og er alveg æðislegt að vera þarna. Skemmtilegt starfsfólk og frábærir krakkarGrin. Að sjálfsögðu er þetta ekki allt leikur og þarf ég nú að lesa slatta og skrifa eitthvað, en ég hef góða tilfinningu gagnvart staðnum og leiðbeinandanum mínumSmile.

Kristófer er hæstánægður að vera kominn í leikskólann aftur og skemmtir sér mjög vel. Í gær fóru þau út í rigninguna og skyldi kennarinn ekkert af hverju fötin hans voru svo blaut að hægt væri að vinda þau eftir þessa útiveru. Skýringin kom fljótlega þegar hún var að segja mér frá þessu, innan frá stofunni heyrist "hann lagðist niður í pollinn", Kristófer fór að skellihlæja og sagði "JÁ, það er rétt", "af hverju lagðist þú ofan í pollinn Kristófer" segi ég, "hann var svo stór og skemmtilegur"LoLBlush, ég gat nú ekki annað en hlegið, en hann lofaði að gera þetta ekki aftur heldur bara leika í pollunumTounge (hmmmmm ætli það haldist). Honum fannst nú pínu erfitt í morgunn þar sem ég þurfti að opna leikskólann sem ég er á og vöknuðum við því kl 5:30Sleeping.

Lítið sem ekkert að frétta af Jóni, hann er bara í vinnunni, laga tölvurnar mínar og eitthvaðWink.

Knús og koss

Bergþóra og co


Kormákur er farinn til Íslands.....

og það var ekki auðvelt að halda aftur að tárunum á Billund flugvelliCrying. Mér tókst það nú samt og var það svolítið Kormáki að þakka, hann heyrði á mér að ég var MJÖG nálægt því að gráta og sagði "MAMMA, þú lofaðir að reyna að gráta ekki á flugvellinum", "já sagði ég, það er rétt", svo gat ég ekki annað og hlegiðGrin. Ég huggaði mig líka við það að Árni bróðir var með honum, þannig að ég vissi að ekki yrði leiðinlegt hjá þeim. Við hin fórum svo heim og reyndum að sofa eitthvað, ég var alltaf að vakna, en var nú samt í rúminu til 9Smile.

Mamma hringdi í mig þegar þau voru komin út í bíl og var Kormákur bara hæst ánægður að vera kominn til Íslands, hann ætlaði að fara í heitt bað eða heita pottinn þegar hann kæmi í MosfellsbæinnGrin (um að gera að nýta það sem hann hefur ekki hér). Ég spurði hann nú aðeins út í flugið, hann spilaði í tölvu og Árni Þór svaf hálfa leiðinaTounge. Þeir fengu sér aðeins að borða og voru svo heppnir að Sigrún systir Halldórs var að vinna, takk fyrir drengina SigrúnGrin.

Kristófer vantar hjálp í tölvunni og vill að við náum í Kormák til Íslands, en það gengur víst ekki alvegGrin.

Stefnan hjá okkur í dag er að hjóla niður í Netto, kaupa egg og fara svo heim að baka GulrótarkökuGrin.

Knús og koss

Bergþóra og co


Lítið að gerast hér á bæ!

Það er bara ekkert um að vera hjá okkur þessa dagana, lífinu er bara tekið með ró. Við erum búin að fara í Horsens og skoða göngugötuna þar, mjög fínt en okkur tókst ekki að eyða neinum pening þar (það er nú kanski bara ágætt). Ég, Árni, Kormákur og Kristófer fórum í hjólaferð niður í Nettó og á pósthúsið, þetta var nú ekki löng ferð en Árni Þór er þá búin að prófa að hjóla í DanmörkuSmile.

Við fórum upp í Give í dag til að tékka á húsinu hjá Óla og Ástu, það var nú ekkert mikið að þar, ennnnnTounge. Þar sáum við að Give festival var í gangi, þangað kíktum við að sjálfsögðu (látum okkur ekki vanta á einhverja skemmtunWink). Við byrjuðum á einhverju tjaldi, en þar voru 4 strákar að spila þungarokk, það var nú fínt þangað til að drengurinn fór að syngja, GUÐ MINN GÓÐUR, við litum á hvert annað og löbbuðum útLoL. Jæja við fórum þá fyrir framan sviðið og GUÐ MINN GÓÐUR ekki tók skárra við. Við vorum þarna í klst og okkur fanst þetta allt í lagi, en ekki meira en þaðGrin.

Við fengum sms í síman í dag um það að búið væri að fresta fluginu hjá strákunum þangað til 7:15 (á dönskum tíma) í fyrramálið, þeir greyin voru nú ekkert alltof hressir með þaðErrm, en hvað er svo sem hægt að gera. Þannig að við eiðum núna síðasta kvöldinu í róleg heitunum hérna heima.

Meiri fréttir síðar

Knús og koss

Bergþóra


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband