Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2009

Til hamingju með...

Afmælið ég sjálfWizard, ég er búin að eiga alveg æðislegan dag. Byrjaði reyndar á smá stressi þegar prentarinn fór að koma með einhverjar aukarenndur þegar ég var að prenta út prófiðCrying og þá var nú heppilegt að eiga góða vini rétt hjá. Ég skaust til Ástu og fékk að prenta þar út og þá komst nú smá ró á afturTounge. Ég var nefnilega ekki að meika þetta eftir að vera búin að sitja inni og skrifa þetta próf í tvo daga. Var svo stressuð því að ég ÆTLA að ná þessu núnaSmile. Við fórum í skólann, ég losaði mig við prófið og ræddi Íslandsferðina við hópinn minn, allir voða spenntirGrin. Ásta kom svo með mér heim og fengum við okkur bjór út á verönd í 25 stiga hitaTounge. Þar sátum við og spjölluðum þar til kominn var tími að ná í Kristófer í skólann.

Annars er búið að vera ótrúlega mikið að gera hjá okkur og hef ég ekki gefið mér tíma í neitt nema skólann, börnin og manninn. Ótrúlegt að þrátt fyrir að hafa haft mikið að gera hef ég ekkert að segja hérna, þar sem allt snýst um skólann og fjölskylduna þessa dagana. Ég læt þetta bara duga núna og skrifa meira þegar ég fæ meiri innblásturSmile.

Knús og kossar

Bergþóra og co


Húsbóndinn á heimilinu...

er orðinn árinu eldri í dagWizard. Til hamingju með það ástin mínInLove. Strákarnir segja líka til hamingju með daginn elsku pabbiGrin.

Ætlunin hjá okkur strákunum er að dekra aðeins við kallinn okkar þegar hann kemur heim. Það á að grilla heilan kjúkling og hafa ferskt salat og timian kartöflur með. Svo er ég búin að reyna að baka mjúkan marengs (gekk ekki vel, hata að baka marengsFrown.), en Vilborg mín, þetta verður þitt verkefni þegar þú kemur í heimsókn til mín að sína mér hvernig á að gera þetta, hehe. Kormákur er svo búinn að panta að fá að gera súkkulaðitertu handa pabba sínum þegar hann er búin í skólanum. Kristófer fær ekki að vera með þar sem hann gerði tertu á páskunumTounge. Svo yndislegir þessar elskurLoL.

Smá frá helginni. Á laugardaginn vorum við bara út í garði að vinna smá. Ég var að sá fræjum fyrir ferskt Timian, rosmarin, basilikum og svo er bara spennandi að sjá hvort þetta komi upp, nú ef ekki, þá kaupi ég þetta uppkomið og gefst upp á að reyna að sá fræjumSmile.

Sunnudagurinn fór í útskrift hjá hjá Kormáki í kristinfræði hjá kirkjunni og þar fórum við öll vel upp klædd, ég í pilsi, jón í jakkafötum og strákarnir í flottum gallabuxum, skyrtu og bindi, allir aðrir mættu eins og þeir væru að koma úr fjósinu, bæði stelpur og strákar ógreidd osfr. Við fórum svo í fermingarveislu til Eydísar og fengum þar margar góðar veitingar og skemmtum okkur stórvel, takk fyrir daginnGrin.

Jæja þá hef ég ekki meira í þetta skipti.

Knús og koss

Bergþóra og co

 


Innilega til hamingju....

afmæliðWizard elsku mamma, amma, tengdóInLove. Vonandi færðu æðislegan dagGrin, svo dekrum ég, Kormákur og Kristófer við þig eftir tæplega 3 vikur, okkur hlakkar svo til að sjá ykkurSmile.

Endalaust af knúsi og kossum frá okkur í danaveldiSmile.

Bergþóra, Jón Óskar, Kormákur Helgi og Kristófer Ingi.


Gleðilega páska.....

Jæja þá er það smá færsla, langt síðan síðast. Byrja á því að segja ykkur að við sitjum úti á verönd í 20 stiga hita og með bjór, bara niceCool.

Ég er búin að vera að vinna í verkefninu, sem er svo sem ekkert nýtt, en ég er búin að lesa smá til að geta haldið áfram eftir páska, eða jafnvel aðeins á morgunSmile.

Þá er bara páska yfirlitið. Fimmtudaginn settu Jón Óskar og Kristófer sláttuvélina saman þannig að við gætum nú farið að slá grasið, sem er farið að vaxa mikið. Við skelltum okkur síðan á Fjón til Rúnu og co og eyddum þar deginum í góðu yfirlætiSmile. Við kveiktum bál og þar fengu krakkarnir að grilla sykurpúða, snúbrauð (bolludeig sett á langa grein og bakað yfir opnum eldi) og pylsur. Við fullorðna fólkið fengum okkur bjór (ég bara einn þar sem ég keyrði heim aftur), grilluðum buff, svínakótelettur, pylsur og brauð, þannig að þið sjáið að við áttum ekki að fara svöng heimGrin. Takk fyrir okkur, gaman eins og alltaf að koma til ykkarSmile.

Föstudagurinn langi- Kristófer var búin að bíða spenntur síðan á miðvikudag að gera rjómatertu, en hann valdi alveg sjálfur hvað ætti að vera á henni. Hann valdi hindber og bláber og skreytti með kiwiTounge. Við fórum svo út í garð að vinna, ég reytti arfa, Jón Óskar sló grasið í fyrsta skipti, og strákarnir hoppuðu og léku sér á trampólíninuGrin. Í kaffinu fórum við inn og smökkuðum á þessari ljúffengu rjómatertu sem Kristófer gerði, hún var nú rosalega góðSmile og Kristófer mikið montinn af því. Um kvöldið var svo gert gamaldags páskalamb (íslenskt) og horfðum svo á All star og Hellboy 2.

Laugardagur- gerðum nánast ekki neitt, nema að fara til Billund og kaupa bjór, annars vorum við bara heima og ég gerði kalkúnafyllinguna. Elísabet, Nicolai, Alexander og Oscar Emil komu svo í heimsókn. Strákarnir þrír voru rosalega duglegir að leika sér úti (og Nicolai mikið með þeim) á meðan lék ég mér aðeins með Ocar Emil, sem er nú algjör dúlla, bara yndislegurGrin. Þegar búið var að borða spiluðum við smá Monopoly áður en þau lögðu af stað heim afturGrin. Frábær dagur í góðum félagsskap, Takk fyrir komuna.

Sunnudagur- Byrjuðum daginn á léttum morgunmat og svo var páskaeggja leitin hafin. Strákarnir byrjuðu að leita að sínum og voru nú ekki lengi að finna þau, hmmm spurning að finna betri staði á næsta áriGrin. Strákarnir og við öll vorum að sjálfsögðu himinlifandi með páskaegginn okkar. Mamma og pabbi höfðu sent okkur púka- og ástaregg, svo keyptum við Risa Kinderegg með risa óvæntum glaðning inn í. Kristófer er nú kominn langleiðina með sín egg, en Kormákur varla búin að snerta á sínumGrin. Eins og ég sagði fyrr þá sitjum við úti í garði í 20 stiga hita og Kristófer er í stuttbuxum, hlýrabol og með vettlinga, heheheSmile.

Jæja ég er að hugsa um að hætta núna og ath hvort ég nái að lesa eitthvað. Setti inn nokkrar myndir líkaGrin.

Gleðilega páska og hafið það gott.

Knús og koss

Bergþóra og co

Það er ekki bannað að kvitta, hvorki í athsemdir eða gestabókina


Til hamingju Ísland....

því ég fæddist hér, ég er Guðmundur Helgi og.... nei nei nú er ég hætt þessu bulli. Skil ekki af hverju mér datt þetta lag í hug allt í einuWink.

Innilega til hamingju með afmælið elsku pabbi, afi, tengdó og bara allur pakkinnWizard. Vonandi ertu búin að eiga frábæran dag með fjölskyldunni (svona þrátt fyrir að við vorum ekki).

Fullt fullt af knúsi og kossumInLove.

Litla fjölskyldan i danaveldi.


Eigum enginn lítil börn lengur:):(

Jæja þá er litla stóra barnið mitt hættur í leikskóla og kominn í undirbúningsdeild í skólanumWink. Þar byrjaði hann á mánudaginn og hann er svo montinn með sig, að það er alveg frábærtTounge. Þarna á hann að vera mættur klukkan 8 á morgnanna, þannig að það er enginn miskunn lengur fyrir hann, núna verður hann bara að vakna og af stað í skólann, þó svo að mamma sé heima að læra (eða að liggja bara í leti)Smile. Honum finnst þetta svo skemmtilegt og finnst hann vera frjálsari núna. Hann sagði við mig fyrsta morguninn þegar við vorum að fara og þeir voru að ná í nestið sitt "jæja mamma, núna er ég kominn í skólann eins og Kormákur, og þá má ég líka fá djús með mér", hehe, ég gat að sjálfsögðu ekki neitað því og fékk hann því safa með sérGrin.

Kormáki gengur vel eins og alltaf í skólanum og er voða ánægður að Kristófer sé kominn yfir og passar vel upp á hannSmile. Hann er voða montinn með það að þeir eru búnir að labba einu sinni bara tveir heim. Hann hringdi í mig svo aftur daginn eftir og sagði "mamma ég er að koma heim, á ég ekki bara að taka Kristófer með mér". Hehe algjör dúlla, gott að hafa svona stóran strák sem nennir að taka bróðir sinn meðGrin, bara vonandi að það endist.

Eftir að Jón Óskar kom heim frá Íslandi var hann dreginn úr lestinni og í búðir til að kaupa afmælisgjöf handa strákunumWink. Við ákváðum að drífa í að kaupa gjöfina þar sem var ca 600 dkr í afslátt. Við keyptum trampólín handa þeim og verður það sett upp á föstudaginnGrin, og verður þá vonandi hoppað mikið í sumar, spennandiTounge.

Ég er að berjast í gegnum verkefni sem á að skila eftir páska, en ég nenni ekki að spá þetta þá, þannig að ég vonast til að vera búin á föstudaginn, þannig að ég geti átt almennilegt páskafrí án verkefnagerðar með strákunumSmile. Svo verður endurtektarpróf í endaðan apríl (verður gaman hjá mér að eiða sennilega afmælisdeginum mínum í prófgerð).

Síðast en alls ekki síst langar mig að óska Rögnu og Kristni innilega til hamingju með nýja prinsinn hann Símon Mikael, sem fæddist í dagHeart. Hlökkum svo til að sjá ykkur öllSmile.

Knús og koss

Bergþóra og co


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband