Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2009
28.7.2009 | 07:30
Jæja þá eru tengdó á leið heim aftur....
Tengdó og Daði eru búin að vera hjá okkur núna í 2 vikur og eru á heimleið aftur í kvöld. Það er nú búið að bralla eitthvað smá á meðan þau voru hérna. Við fórum niður í Þýskaland þar sem við dressuðum drengina okkar upp á buxum fyrir veturinn, löbbuðum göngugötuna í Flensborg og komum svo að sjálfsögðu við í Fleggard og fylltum á birgðirnar. Það var farið til Blavand að kíkja í brjóstsykursgerðina, en því miður var svo svakaleg röð að strákarnir okkar gátu ekki gert sinn eigin brjóstsykur þar sem Linda(frænka Jóns) og Kiddi áttu von á okkur í kaffi
. Við erum nú líka samt búin að vera heima í afslöppun og bralla meira, nenni bara ekki að skrifa um þetta allt
. Við vorum samt nú svo óheppinn að annar bíllinn bilaði, þannig að það var ekkert hægt að gera í 3 daga.
Árni Þór kom svo til okkar seint á laugardagskvöld og var mikill spenningur í strákunum allan daginn. Þeir komu með mér til Billund að ná í hann og þeir voru að fara yfir um, "hvenær kemur Árni, mamma hvenær kemur Árni eiginlega, hvar er flugvélin hans", hehe þessar elskur.
Á sunnudaginn fór ég svo með Árna og strákunum í Ljónagarðinn og kíktum á dýrin. Jón Óskar, tengdó og Daði voru bara heima og höfðu það gott.
Núna erum svo á leið niður á göngugötuna í Vejle að hjálpa tengdó að eyða smá pening svona áður en þau fara í flug í kvöld.
Reyni að nenna að skrifa meira síðar.
Knús og koss
Bergþóra og co
13.7.2009 | 18:01
Alltaf sama fjörið hér á bæ:)
Sumarfríið "yndislegt" með 20 stiga hita, rigningu og roki, en við erum bjartsýn og vonum að við förum að fá góða veðrið aftur.
Á laugardaginn fórum við í Ikea og eyddum smá pening áður en við fórum upp í Silkeborg til Rögnu og Kristins í kaffi og matarboð. Þetta var að sjálfsögðu frábær dagur og góður matur í frábærum félagsskap.
Sunnudagurinn fór í tiltekt í Kormáks herbergi og leti með Harry Potter og smá íslensku nammi.
Í dag erum ég og Ásta svo búnar að vera í bakstri, byrjuðum á flatkökum, svo rúgbrauði og kleinum, mmmm allt smakkast alveg frábærlega. Ég ætlaði að gera rifsberjasultu og var að byrja þegar Kristófer Ingi segir við mig "mamma hvað ertu að gera", "ég er að gera rifsberjasultu", "nei mamma, þú átt ekki að gera þetta", "af hverju ekki, Kristófer minn", "af því að afi er að koma á morgun og hann gerir þetta", hehe
. Svo talaði ég við tengdapabba og var að spyrja hann aðeins út í þetta og hann sagði mér að setja bara sykur yfir þau og hann myndi hjálpa mér með þetta á miðvikudaginn, hihi. Þetta er nú bara fínt, því þá læri ég allavega að gera þetta rétt
. Okkur hlakkar nú öllum til að fá þau þrjú, en Daði bróðir Jóns kemur með þeim. Ég er líka farin að sjá fram á það að ég verði bara í fríi frá eldhúsinu á meðan, þar sem strákarnir eru sammála um það að afi eigi að elda á meðan hann er hérna, "mamma, HALLÓ, hann er kokkur"
.
Jæja hef ekkert meira að segja í bili. Jú annars gleymdi nú að Jón fór að slá garðinn og reyndi að slá tærnar á sér með, en var sem betur fer í dreifbýlistúttum sem björguðu þessu og enduðu svo á ruslahaugunum, hmm það er spurning hvort ég verði bara að gera þetta sjálf.
Kossar og knús
Bergþóra og co
10.7.2009 | 19:38
Dúdda mía, langt síðan síðast:)
Ég og strákarnir kláruðum skólann með glans fyrir 2 vikum og erum búin að vera í fríi síðan. Við erum búin að bralla ýmislegt hérna heima, við keyptum okkur meðal annars sundlaug í garðinn vegna þess að það var alltaf svo heitt og vantaði okkur eitthvað til að kæla okkur niður. En það passaði til að þegar við vorum búin að kaupa þetta og eftir 2 daga var farið að rigna og kólna, og það er búið að vera þannig síðan
. Núna bíða strákarnir bara spenntir eftir því að það hlýni svo þeir geti farið að synda aftur
.
Þegar það var sem hlýjast fórum við upp að Brande baðvatni og sulluðum aðeins og lékum okkur, eða kannski þeir léku sér í að mér fannst ísköldu vatninu og ég horfði á þá og las í bók, fór nú samt reglulega og skvetti smá á þá. Strákarnir fengu svo svona vatns rennibraut (sem er á jafnsléttu) frá Óla og Ástu og léku sér mikið á henni
.
Þessa vikuna erum við bara búin að vera heima í róleg heitunum, við fórum í skóginn og lékum okkur í Einni krónu, fengum pakka frá mömmu og pabba með ýmsu góðgæti og hafði mamma prjónað lopapeysu fyrir mig í síðbúna afmælisgjöf handa Ástu. Takk æðislega fyrir þetta.
Núna er svo verið að taka allt í gegn þannig að það verði allt tilbúið og fínt þegar tengdó koma á þriðjudaginn.
Síðast en ekki síst, Jón Óskar er komin í sumarfrí og núna viljum við fá góða veðrið aftur. Guð hvað maður er latur að skrifa hérna núna, en ég vona að þið gefist ekki upp á mér, hehe
.
Knús og koss
Bergþóra og co
Bloggvinir
Eldri færslur
- Október 2010
- September 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
244 dagar til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.4.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar