Bloggfærslur mánaðarins, september 2009

Hún á afmæli í dag, hún á

afmæli í dag, hún á afmæli hún Ingunn, hún á afmæli í dagWhistling.

Elsku Ingunn Rebekka, innilega til hamingju með 1 árs afmælið þittWizard. Eigðu góðan dag og vertu dugleg að láta pabba stjana við þigInLove (Kristófer valdi þennan broskall sérstaklega fyrir þig).

Risaknús og kossar

Bergþóra, Jón Óskar, Kormákur Helgi og Kristófer Ingi.


:.........

Jæja á ekki alltaf að byrja á vondu fréttunum. Því miður komumst við hjónin af því í sónar á fimmtudaginn að það var enginn hjartsláttur hjá litla krílinu okkarCrying. Það hafði verið dáið frá því á 7 viku (var komin rúmlega 12), við fórum því á Kolding sjúkrahús í gær í tilheyrandi aðgerð. Alltaf kemst ég betur að því hvað ég á góðan mann og yndisleg börn. Allir þrír búnir að standa sig eins og hetjur (ég hef nú samt náð að halda andlitinu fyrir framan strákana). En það er ekkert meira um þetta að segja.

Þá að góðu fréttunum. Í dag eigum við hjónin 12 ára samveruafmæli og ætlum að fagna því með því að liggja upp í sófa og slappa af (allavega ég, blóðlítil síðan í gær), Jón að tæma sundlaugina og þrífa hana, og svo á að elda íslenskar lambalærisneiðar eftir uppskrift sem Bjarni Gunnar bróðir Svölu vinkonu gerði, úr bókinni Landliðsréttir Hagkaupa.

Ætla að nota tækifærið núna líka og óska tengdamömmu innilega til hamingju með afmælið á morgun. Njóttu dagsins í botn. Risaknús og koss frá okkur öllum.

Jæja hef ekkert meira núna

Knús og koss, farið vel með ykkur

Bergþóra og co


Vá er maður orðin löt að skrifa hérna eða hvað....

Sorry Jóhanna mín, ég held að þú sért sú eina sem ekki færð neinar fréttir héðanBlush.

En jæja, ég prófa núna, samt er alltaf allt við það sama hér á bæ.

hmmmmm, ok byrjum bara á því að ég þurfti að fara á spítalann í Vejle í pínu aðgerð og tók hún ekki nema 5 mín, en ég var látin sofa í 15 mín og vera niður á spítala í 9 tíma. Ég byrjaði nefnilega á því að fara til míns læknis og sendi hann mig á sjúkrahúsið og þar þurfti ég að bíða og bíða og bíða, vegna þess að ég var nýbúin að borða og þurfti að vera fastandi í 6 tíma áður en þeir mundu svæfa mig. En allt fór vel að lokum og var bara gott að komast heim afturSmile.

Við komumst svo að því fyrir 6 vikum síðan að við ættum von á öðrum fjölskyldumeðlim þann 23.mars 2010 (er núna á 12.viku). Strákarnir voru voða hissa og Kormákur grét af gleði og sagði "núna fæ ég þá kannski litla systur, það væri voða gaman"Grin. En núna er sem sagt rætt um það að það séu nú 50% líkur á því að við fáum 3 strákinn. En þetta verður mjög spennandi þar sem að þessi meðganga er enn sem komið er mjög ólík þeim fyrriSmile. Á fimmtudaginn förum við svo í fyrsta sónarinn og er það hnakkaþykktarmæling. Hlakka svo til, þá verður þetta meira raunverulegtWink.

Núna er ég að berjast við að fá vinnu svo ég geti fengið fæðingarorlof, þar sem ég sem námsmaður í Danmörku á ekki rétt á orlofi því ég er ekki á SU og ekki að vinna. Annemette sem er starfsnámsleiðbeinandi er að hjálpa mér að finna vinnu og vona ég að það gangi upp sem fyrst. Eini gallinn á þessu er sá að ég verð þá sennilega að fara í frí frá skólanum frá miðjum okt og klára önnina á næsta ári, nema ég geti samið við yfirkennarann um að ég geti sleppt fyrirlestrum og skilað bara inn æfingum og verkefnumErrm.

Annars er bara allt rólegt hér á bæ og vorum við að klára síðustu jólagjafirnar til Íslands í dag. Ekkert smá þægilegt að vera búin að þessu tímanlega og eiga bara eftir að senda þetta heimGrin. Svo er bara litla fjölskyldan eftir, en það er nógur tími til þessGrin.

Jæja lítið sem ekkert annað að frétta í bili. Skrifa meira á fimmtudag eða föstudag. En þangað til hafið það sem allra best.

Knús og koss

Bergþóra og co


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband