15.6.2008 | 15:45
Fyrsta útilegan:)
Við fórum í fyrstu útileguna okkar hérna í Danmörku um helgina. Íslendingafélagið var með sína árlegu 17. júní hátíð og ákváðum við að skella okkur
. Við fórum þegar ég var búin í skólanum að versla, náðum í strákana, fórum heim og tókum okkur til og renndum svo að stað. Við fengum einstaka skúri þarna á föstudaginn, en ekkert að ráði. Það byrjaði að sjálfsögðu þegar við vorum ný sest niður að borða kvöldmat, þannig að borðinu var kippt inn í tjald og klárað að borða þar. Við drukkum smá bjór og rauðvín og ég fór að syngja (ásamt fleirum), rosalega gaman
. Kormákur greyið var svo þreyttur, að þegar við héldum að hann væri að leika með hinum krökkunum, þá laumaðist hann inn í tjald og fór að sofa
. Mér fannst nú smá skrítið að ég var ekki búin að sjá hann í smá tíma, þurfti aðeins inn í tjald og ætlaði svo að leita að honum. Þegar inn í tjald var komið sáum við skóna hans þar og finnum hann á kafi ofan í svefnpokanum í öllum fötunum (kl var um 21:40). Að sjálfsögðu þurfti ég endilega að láta hann koma út og pissa og fara í náttföt. Ég lánaði honum svo símann minn, þannig að hann þyrfti ekki að fara út úr tjaldinu ef honum vantaði eitthvað. Hvað hafði ég svo upp úr því, ekkert því að hann breytti öllu í símanum mínum
, ég fattaði ekki einu sinni þegar það var hringt í mig því að það var allt annar tónn. En hann sniðugur, fann sér eitthvað að gera því að ég reif hann út og að sjálfsögðu gat hann ekki sofnað strax aftur
. Kristófer var aftur á móti í fullu fjöri fram eftir með okkur
.
Á laugardaginn var ennþá skúrir og heldur meiri en á föstudaginn. Við fengum þó gott veður á meðan við fórum í smá skrúðgöngu og lékum okkur við krakkana í ýmsum leikjum. Þetta var eiginlega skemmtilegasti parturinn af útilegunni. Þegar við fórum að borða íslensk lambalæri fór að rigna aftur, en það var stórt partýtjald þannig að þetta slapp. Við gátum keypt þarna hjá þeim íslenskt nammi (ég varð að fá mér lakkrísdraum), egils malt og appelsín, mmm við Kristófer fengum okkur malt með matnum
. Báðir strákarnir voru í fullu fjöri eitthvað frameftir, grilluðu sykurpúða reyndu að galdra servéttu í burtu, horfðum á varðeld ofl. Ég fór svo inn í tjald með strákana þar sem Kormákur var orðinn þreyttur aftur, spjölluðum aðeins og fórum svo að sofa. Jón var svo hress að hann kom ekki inn í tjald fyrr en einhver tíma seint
.
Það rigndi svo í alla nótt og allan morgun, allt rennandi blautt þannig að við skildum tjaldið okkar eftir og náum í það þegar allt er orðið þurrt. Þetta svæði var í einkaeigu og útilegan búin að vera þarna í 9 ár þannig að við treystum því alveg, og það voru nokkrir fleiri sem gerðu þetta líka
. Eigandinn á svæðinu er orðin svo stór hluti af þessu líka og hlakkar þeim hjónum alltaf til að fá félagið þarna aftur
.
Núna sitjum við svo heima þvoum þvott, bloggum, eldum, sofum og horfum á sjónvarp.
Knús og koss
Bergþóra og co
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 15:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
12.6.2008 | 15:47
Þá er sprautan búin:)
Kristófer fékk sprautu í dag sem tilheyrði 5 ára skoðuninni og var hann ekki að kippa sér mikið upp við þetta. Þegar við komum svo í leikskólann lét hann samt vita að því að læknirinn hafi stungið hann í rassinn. Þá segir vinkona hans, "hann stakk mig í höndina, og ég fór að gráta, mér fannst þetta vont", "ég fór sko ekki að gráta, mér fannst þetta bara smá vont". Við áttum svo að bíða í 15 mín frammi til að ath hvort það kæmu einhverjar aukaverkanir, en ekkert kom
.
Það var svo foreldra viðtal í dag út af honum. Það var talað rosalega vel um hann, hann er hress, skemmtilegur, úrræðagóður, hugmyndaríkur, góður í fínhreyfingum, sem sagt allt voða jákvætt
. Samt var nú eitt sem kom mér ekki mikið á óvart (og sennilega ekki þeim sem þekkja hann), hann á víst erfitt með að þurfa að sitja lengi kyrr og standa í röð
. Skilur ekki að allt þurfi að taka svona langan tíma. En þrátt fyrir þetta þá heyrir hann allt sem er lesið og getur alveg sagt frá því aftur
.
Ég er eins og einhverjir vita er ég á fullu að undirbúa mig fyrir prófið og gengur það nú bara ágætlega. Það er nú líka ýmislegt annað sem situr á hakanum og verður tekið á því síðar. Ég gleymdi nú td að ég átti að fara með bílinn minn í smur á þriðjudaginn og fattaði það í morgun, þannig að ég fékk ekki tíma fyrr en á mánudag kl 7:30
.
Jæja þetta var nú bara smá færsla núna. KVITTA,það er ekki bannað.
Knús og koss
Bergþóra og co
9.6.2008 | 12:34
Senn líður að prófi:(
En helgin var samt fín, takk fyrir að spyrja!
Á föstudaginn fór Kormákur í afmæli og svo fékk hann að sofa hjá vini sínum. Við fórum þá með Kristófer upp í Give, þar sem hann og Charlotta fengu að synda í sundlauginni og skemmtu sér konunglega, á meðan fullorðna fólkið lá í sólbaði. Við tókum með okkur mat og grilluðum við svo saman, mér fannst þetta nú rosalega notalegt, þar til að það átti að plata mig í pictionary eða öllu heldur átti að leika en ekki teikna. Þeir sem þekkja mig vel vita að mér er meinilla við að leika og lét þau ekki plata mig í það
. Samt var ég beitt mikilli félagslegri pressu og ég lét nú manninn minn bara vita það að mér þætti hann nú frekar leiðinlegur að láta svona við mig og ég gæti nú alveg farið bara heim
. En ég tók að mér að vera tímavörður og hjálpaði Eydísi og Ástu að giska. Óli er nú ekki sáttur að við vorum nálægt því að vinna og vill hann meina að ég notfærði mér að vera tímavörður, annars hefðum við verið langt á eftir, en við erum bara svona duglegar(þegar ég þarf ekki að leika)
. Takk fyrir daginn, hann var mjög skemmtilegur þrátt fyrir að reyna að sitja á mig félagslega pressu
.
Á laugardaginn byrjaði ég á því að gefa manninum mínum verkjatöflur, þannig að hann hefði heilsu að koma með mér upp í Arhus, þar sem ég eyddi smá pening í sumarföt á strákana, nýjan yddara, og möppu fyrir mig til að sitja prófið mitt í. Við buðum svo strákunum upp á Mc Donalds og var pabbi þeirra ekki óánægður með það, þar sem heilsan hjá honum var ekki svo góð, eftir mikla útþynningu á gosi og bjór á föstudagskvöldið
. Þegar heim var komið grilluðum við lambafile (New Zeeland) og pylsur, mmm rosalega gott
.
Í gær fór Kormákur aftur í afmæli og við hin skelltum okkur á ströndina og fórum aðeins í heitan sjóinn, gerðum sandkastala og lágum svo í leti líka. Jón náði svo í Kormák og að sjálfsögðu prófaði hann sjóinn líka. Þegar heim var komið fórum við út í vatnsblöðruslag og vatnsblöðruslag. Kristófer var svo þreyttur eftir þennan dag að hann lokaði sig inn í herbergi og fór að sofa (við héldum að hann væri að horfa á sjónvarpið)
.
Ég fór með Kristófer í 5 ára skoðun í dag. Hann er 114 cm og 23,8 kg. Hjúkkunni finnst hann of þungur miðað við hæð. Ég er nú ekki sammála, hann borðar sama mat og við, grænmeti, kjöt og allt og er með nammidag einu sinni í viku og hreyfir sig helling, hmmm hversu mikið á maður að hlusta hana?
Jæja ég er að fara heim, ná í Kormák og Jón og við ætlum svo að hjóla og ná í Kristófer.
Muna að KVITTA, arg, minn er að verða reiður
.
Knús og koss
Bergþóra og co
6.6.2008 | 06:24
Afmæli:)
Hann Guðmundur Árni Þór Guðmundsson á 14 ára afmæli í dag. Til hamingju með afmælið elsku Árni Þór, njóttu dagsins
. Við hlökkum til að fá þig til okkar í sumar
.
1000 kossar og knús
Þín elskulega systir Bergþóra, hennar frábæri maður Jón Óskar og stórkostlegu frændur þínir Kormákur Helgi og Kristófer Ingi.
5.6.2008 | 19:50
MYNDIR:)
ERU KOMNAR INN. VÁ HVAÐ ÉG ER DUGLEG, HIHIHIHIHI. (reyndar ekki búin að skrifa við þær).
Það eru bara rúmlega 2 vikur fram að prófi (25.júní).
Knús, knús og meira knús
Bergþóra
Vinir og fjölskylda | Breytt 6.6.2008 kl. 06:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.6.2008 | 18:16
vikufærsla
Það er búið að vera nóg að gera hjá mér í skólanum núna (aldrei þessu vant). Við vorum með verkefni sem fjallaði um frásagnir. Við fórum á leikskólan hans Kristófers og lásum ævintýrið um Eldfærin fyrir þau. Við skiptum krökkunum í þrjá hópa og Kristófer var í fyrsta hópnum. Þegar við vorum búin að lesa 2bls þegar hann segir "er de ikke næsten færdig" (er þetta ekki að verða búið), en því miður fyrir hann þá áttum við 5 bls eftir
. Annars gekk þetta rosalega vel þarna og svo lögðum við fram í dag, það sem við gerðum og hvernig var. Ég skrifaði svo skýrslu sem ég átti að afhenda fyrir morgundaginn og gekk það vel, það verður spennandi að heyra hvað kennarinn segir
.
Á þriðjudaginn fórum við á ströndina með bekknum hans Kormáks, þar var grillað, drukkinn smá bjór, synt í sjónum (Kormákur), veiddir krabbar ofl. Svaka fjör á liðinu og alveg frábært veður. það var líka karmellu og vatnsdagur hjá Kormáki í skólanum, því að það var síðasti dagur hjá níundu bekkingum. 9.bekkur mátti gera hvað sem þeir vildu við krakkana og fengu þau því smá bað í raksápu ofl
.
Í gær var ég að læra til kl 18 og fór svo í bæin með strákunum, það var svona Vejle by night og voru þá búðirnar opnar til kl. 22, ýmis skemmtiatriði ofl. Áður en við fórum niður í bæ spyr Kristófer hvort að við séum að fara á víkingastað "ha", "æi, svona víkingastað, þar sem maður á að sitja kjurr og ekki hafa hátt", ég komst að því að hann var að tala um veitingastað. Við fórum semsagt út að borða á Jensens og voru strákarnir eins og englar, þetta var alveg yndislegur tími sem ég átti með þeim alein. Við keyptum svo gjöf í tilefni af feðra deginum sem er í dag hér í Danmörku. Við keyptum vínhitamælir, tappahaldara og bakka undir flöskuna
. Þegar við komum heim tókum við öllu bara rólega og biðum eftir að Jón Óskar kæmi heim úr vinnunni, hann birtist svo loksins kl 22:30
. Hann ákvað að vinna lengur í gær, því að þá var hann kominn í 4 daga helgarfrí, heppin hann
.
Í tilefni dagsins fór Jón Óskar með strákunum að ná í nýja (gamla) bílinn á meðan ég var í skólanum. Ég náði að vísu að taka til hérna heima líka áður en þeir komu heim. Við elduðum svo góðan mat og núna sitjum við með kaffi, grand marnier og koníak
.
Er að sitja inn myndir.
Mig vantar svo líka svona einstaka kvittanir frá ykkur.
Knús og kossar
Bergþóra og co
Ps. Jóhanna, legoland lokar 26. október
Bloggvinir
Eldri færslur
- Október 2010
- September 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
140 dagar til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (6.8.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar