28.11.2009 | 21:31
AFMÆLI:)
Elsku Hlynur og Aðalheiður, innilega til hamingju með 6 ára afmælisdaginn. Vonandi hefur hann verið súper góður, með skemmtilegri veislu og fullt af pökkum.
Afmælis og saknaðarkveðjur frá okkur öllum í Gadbjerg.
Knús og koss
Bergþóra og co
22.11.2009 | 16:01
HALLO
Þá er Kristófer orðinn veikur, sennilega með einhverja leiðinda flensu. Ekki mjög gaman að því þar sem foreldrar Jóns koma á morgunn. En það er ekkert við því að gera, við vonum bara að hann hressist fljótlega.
Ég er alltaf í skólanum, en síðustu tvær vikur það hafa verið sóun á tíma að mínu mati. Núna fer þó að byrja skemmtilegt tímabil með greinaskrifum, jóla fyrirlestri ofl skemmtilegu.
Jón Óskar er búin að vera heima núna í 2 vikur og er 3 vikan að byrja þar sem hann fer sennilega ekki í vinnuna vegna veðurs. Hann er þó búinn að dunda sér hér heima og setja upp jólaskraut og seríur í glugga. En núna þegar það er búið veit hann ekkert hvað hann á að gera. Hann heppinn að geta þá stjanað í kringum mömmu sína og pabba
.
Kristófer fór á tónleika í Vandel skóla á fimmtudaginn og skemmti sér konunglega. Núna í síðustu viku eru strákarnir búnir að vera með þemaviku í skólanum sem fjallaði um skólann í gamla daga, því að Gadbjerg skóli er að fagna 300 ára afmæli um þessar mundir. Þeir hafa fengið mat eins og var í gamla daga og var Kristófer með 2 sinnum að búa hann til en Kormákur 1 sinni. Kormákur fór líka til Ribe á tónleika og að skoða umhverfið þar. Þeir fengu ýmsar sögur(jólin, kennslustundir) frá gamla daga frá fólki sem kom í heimsókn og kennslu eins og hún var þá líka (fyrir utan það að prikinu var slept).
Eins og ég sagði áðan er Jón búinn að setja upp allt jólaskrautið og er ég og strákarnir byrjuð á smákökubakstri og hlustum að sjálfsögðu á tilheyrandi jólamúsík með. Frúin er svo búin að gera lagtertur, rúllutertur og konfekttertur fyrir jólin, þannig að það ætti að vera nóg til með kaffinu ef gesti ber að garði.
Jæja ég er farin að elda.
Kossar og knús
Bergþóra og co
11.11.2009 | 09:47
Blablabla
Ég veit að færslurnar hér eru ekki margar enda alltaf það sama í gangi hér á bæ.
Byrjum þá samt á þessum leiðinlegu. Bíllinn hans Jóns hrundi þegar hann var á leiðinni í vinnuna á mánudaginn. Fengum að vita að þetta væri eitthvað í mótornum og þar sem það er búið að keyra bílinn svo mikið og bílinn gamall, vill bílvélavirkinn meina að það borgi sig ekki að gera við hann. Kostar mikið að rífa mótorinn í sundur og kannski ekki hægt að gera við hann. Næsta skref er því grafa upp peninga og kaupa annan bíl.
Við erum búin að kaupa allar jólagjafir og vorum við að klára að pakka þeim inn í gær svo hægt sé að senda til Íslands. Ég ákvað svo líka að byrja jólabaksturinn snemma og erum við búin að gera jólakókóskúlurnar, lagtertur og rúllutertur. Þetta geymist svo allt í frysti þar til líður að aðventunni
. Það verður þó enginn bakstur næstu helgi þar sem okkur er boðið í 2 ára afmæli til Bjarna Haralds í Silkeborg á laugardaginn og þar verðum við í kvöldmat líka
.
Kormákur bíður þó spenntur á því að byrja að baka sörur og smákökur því að þá fær hann núggathjúpaðar og súkkulaðihjúpaðar möndlur, honum finnst þær bara æði. En það verður mögulega helgina 21-23 nóv. Svo ætlum við bara að slappa af í aðventunni og dúlla okkur á jólamörkuðum og jólapunteríi heima fyrir, perla, föndra og eitthvað skemmtilegt sem okkur dettur í hug
. Ég er búin að ákveða að í ár þegar kveikt verður á dagatalakertinu setjumst við saman niður og lesum jóladagatalið Á baðkari til Betlehem. Sem sagt eintóm rólegheit í aðventunni
.
Mánudaginn 2 des, er SFO (gæslan) dagur og á að fara með 4- 5 bekk til Vejle þar sem þau verða allan daginn að dúlla sér á göngugötunni. Mælt var með að þau fengju vasapening þó max 50 dkr og Kormáki finnst það nú bara vera frekar lítið "mamma, maður getur nú ekki keypt neitt fyrir 50 kr", hehe, hann er algjör perla, fannst þetta pínu furðulegt, en ég sagði að þetta væri eyðslupeningur ef hann vill eitthvað að drekka eða nammi osfrv. Kristófer fer svo eitthvað annað, en ég veit ekki ennþá hvað það verður, en skemmtilegur dagur verður þetta hjá þeim.
Jæja nóg komið að bulli núna, er á fyrirlestri sem ég á að vera að hlusta á. En langar frekar að drífa mig heim til Jóns og fara niður í Kolding að ná í jólagjöfina hans.
Knús og koss
Bergþóra og co
22.10.2009 | 11:43
hmmm
var ég ekki búin að lofa færslu hér á þriðjudaginn, en jæja hér kemur hún.
Elsku vinir og fjölskylda, héðan frá okkur er allt gott að frétta, hehe er þetta ekki formlegt og flott.... ennn nenni þessu nú ekki, hér kemur alvöru færslan " ég lofa".
Núna er munnlega prófið í Dansk, kultur og kommunikation yfirstaðið og náði ég með 4 í einkunn (langaði í hærra, ennnnn þetta virðist bara vera mín einkunn hérna í DK), 4 er ca 6-7 á íslenska skalanum, en ég er samt ánægð með þetta, þar sem ég náði og þarf því ekki að hugsa meira um þetta fag. Nema kannski rétt aðeins í lokaritgerðinni, en það er nú ekki fyrr en eftir eitt ár.
Eftir prófið er ég bara búin að nýta tímann hérna heima þar sem allt nema það allra nauðsynlegasta hefur fengið að bíða. Núna er búið að taka frystikistuna í gegn þar sem ég er að fá lambaskrokk um mánaðarmótin, það verður nú spennandi að smakka danskt lambakjöt þar sem allir segja að það sé ullarbragð af því. Núna vantar mig bara að taka alla skápa og skúffur í gegn og þá er nú aldeilis fínt hér á bæ
.
Jón Óskar er að vinna alla helgina frá 06-18 þannig að við strákarnir ætlum að kaupa okkur pappírskarton og halda áfram með jólakortin og svo ætlum við að gera smá hrekkjavökuföndur.
Jæja ég ætla að rjúka í bæinn og versla smá, er að hafa foreldraráðsfund hérna heima í kvöld og ætla að baka eplaköku og gera almennilegt túnfisksalat.
Knús og koss héðan elskurnar mínar og munið að kvitta.
Bergþóra og co
11.10.2009 | 15:39
LOKSINS.........
Það hlaut að koma að því að andinn kæmi yfir mig aftur, er bara EKKI búin að vera í stuði að skrifa núna síðasta mánuðinn. Er ekki einu sinni búin að standa mig í afmæliskveðjum, en þið verðið nú bara að sætta ykkur við það núna, hehe.
Við erum öll búinn að hafa það alveg þokkalegt hér á bæ og vonandi fer það bara batnandi. Ég er búin að troða mér í stjórn íslendingafélagsins og ætlum við að reyna að rífa þetta félag upp og gera eitthvað að viti. Fyrsti atburður þessarar stjórnar verður í Legelandet.dk, sem er svaka stór leiksalur fyrir börn og fullorðna
og ég er alveg viss um að við eigum eftir að skemmta okkur konunglega
.
Ég er síðustu tvær vikur búin að vinna að prófverkefni í faginu Dansk, kultur og kommunikation. Ég skilaði svo skriflega hlutanum á föstudaginn og fer svo í munnlegt á þriðjudaginn í næstu viku. Í munnlega hlutanum á ég að verja verkefnið mitt og ætla ég að búa til fingramálningu og sýna þeim spennandi myndir af strákunum í fingramálningargerð, svo er bara vonandi að þetta takist
. Það verður allavega framhaldssaga af þessu, sama hvort ég næ eða fell.....
Ég, Kormákur og Kristófer erum komin í vetrarfrí núna í viku og ætlum sko að njóta þess. Búið að planleggja ýmislegt, en þið fáið ekki að lesa um það núna, hihihi, eruð þið ekki spennt.
Í gær fórum við í afmæli til Charlottu (dóttir Óla og Ástu) og enduðum svo í mat hjá þeim líka, þannig að þetta var langt en skemmtilegt afmæli. Takk kærlega fyrir góðan dag.
Strákarnir eru búnir að skera út í grasker fyrir hrekkjavökuna og eru bara mjög ánægðir með niðurstöðuna, enda líka svaka flott hjá þeim. Við setjum svo inn myndir um mánaðarmótin þegar hrekkjavakan sjálf er búin en þá verður gert eitthvað spennandi og öðruvísi.
Skrifa meira á þriðjudaginn eftir viku, og vonandi með góðar fréttir þá
.
Knús og koss
Bergþóra og co
15.9.2009 | 09:13
Hún á afmæli í dag, hún á
afmæli í dag, hún á afmæli hún Ingunn, hún á afmæli í dag.
Elsku Ingunn Rebekka, innilega til hamingju með 1 árs afmælið þitt. Eigðu góðan dag og vertu dugleg að láta pabba stjana við þig
(Kristófer valdi þennan broskall sérstaklega fyrir þig).
Risaknús og kossar
Bergþóra, Jón Óskar, Kormákur Helgi og Kristófer Ingi.
Bloggvinir
Eldri færslur
- Október 2010
- September 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
244 dagar til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.4.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar