16.3.2009 | 10:50
Voðalega er ég orðin dugleg:):):):):):)
Bara önnur færsla á innan við viku.
Mér datt í hug að skrifa núna, en á í raun að vera lesa 20 síður eða meira fyrir morgundaginn. Jæja um helgina var ýmislegt brallað, hmmm eða kannski bara ekki neitt. jæja þið getið metið það sjálf, höldum allavegga bara áfram
. Á föstudaginn nýtti ég það að sjálfsögðu að hafa kallinn heima og var hann voða duglegur að hjálpa mér að þrífa og versla í matinn. Það var nú gott að fá hjálp við að versla þar sem hafði ekki verið verslað almennilega í hálfan mánuð og ísskápurinn og frystikistan að fara að líkjast eyðimörk
. Kormákur fékk nýjan síma líka þar sem hans var orðin lélegur, hann voða ánægður með það. Jón spurði hvað hann ætlaði að borga sér fyrir símann eða hvort þetta ætti að vera gjöf. Kormákur hugsaði sig vel um og sagði ég borga þér 50 kr, Jón var nú heldur betur sáttur og sagði frábært þá græði ég 49 kr
. Kormákur var nú ekki sáttur við það og lét pabba sinn fá 2 kr
. Alveg yndislegir.
Á laugardaginn var farið aftur í bæinn og verslað stigvéli og strigaskó á strákana, slátturvél og garðáhöld fyrir garðinn. Heim var farið og út í garð að vinna og þrífa grillið. Við nutum þess svo að borða grillmat með öllu tilheyrandi um kvöldið og vorum óvart með matarboð, en þau komu samt með hluta af kjötinu þar sem allt var frosið hjá mér
. Ásta og Óli komu til okkar með 3 af börnunum sínum. Krakkarnir léku sér vel eins og alltaf á meðan við súptum rauðvín, bjór, baylis (kann ekki að skrifa) og koníak
. Við vöktum að sjálfsögðu "alltof" lengi og voru börnin ekki farin í rúmið fyrr en 02:30, hvurslags pædagog erum við eiginlega, hehe. Takk fyrir alveg frábært kvöld, gaman eins og alltaf
.
Sunnudagurinn fór í þreytu hjá mér og timburmenn hjá Jóni mínum
. Ég las smá en ekki nóg og fór ekkert út í garð að vinna, var svo treyttur. Eldaður var gamaldags kjúklingur í ofni með brúnuðum kartöflum og öðru meðlæti. Horfðum svo á Journy to the center of the earth áður en strákarnir fóru að sofa. Ekkert smá skemmtileg mynd, væri alveg til í að sjá hana í þrívídd, örugglega bara æði
.
Jæja núna er ég farin að lesa þar til ég þarf að sækja strákana.
Knús og koss
Bergþóra og co
12.3.2009 | 21:09
Alltaf rekið á eftir manni.......
Jóhanna var víst að reka á eftir færslu hérna. Sorry hef bara ekki haft neitt að segja.
Síðustu helgi vorum við að vinna í því að klára að kljúfa timbrið og raða því upp til þurrkunar. Við spiluðum, horfðum á sjónvarp og bara þetta venjulega helgardæmi okkar.
Þessa vikuna erum við Kristófer farin að hjóla í leikskólann og Kormákur hleypur á eftir, þar sem við erum ekki búin að kaupa nýtt hjól handa honum (kemur vonandi fljótlega), en smá grín, ég fylgi nú alltaf með honum, en tek svo á því á leiðinni heim aftur.
Á þriðjudaginn fékk ég rosalega skemmtilegan póst, en það var umsögn um Kormák frá skólanum hans. Í öllum fögum og frá öllum kennurum var ekkert nema jákvætt um hann að segja. Hann er jákvæður, tillitsamur, duglegur að koma sér að verki, á auðvelt með að setja sig í spor annara, bíður rólega eftir að röðin kemur að honum og allt eftir þessu. Guð hvað við erum montinn og stolt yfir syni okkar
.
Ég er búin að vera í prófi frá því á þriðjudaginn og skila því á morgun. Prófin hérna eru svo gjörólík því sem við höfum heima (allavega þeim sem ég hef kynnst). Við fengum semsagt útdeilt þremur valmöguleikum, blaðagrein, setning, og mál (vandamál í unglingaklúbbi sem þurfti að leysa). Út frá þessu áttum við svo að skrifa 8 bls+viðhengi og allt það. Þetta er erfiðasta fag sem ég hef kynnst og kallaði ég hreinlega á hjálp til að fá hugmyndir hvað ég gæti gert, svo var það mitt að útfæra þær. Í raun átti ég að skila í gær en fékk frest vegna "tungumálaörðugleika" þar til á morgun. Allt þetta próf gekk út á að finna lög og reglur, nútímasamfélagið ofl, púff þetta var bara erfitt. Svo er bara að bíða eftir einkunn sem á að koma síðasta lagi 30 mars og vona að maður nái.
Ekkert plan er fyrir þessa helgi, nema að reyna að finna út úr einhverju með garðinn, kryddjurtir blóm ofl. Læt ykkur vita seinna hvað kemur út úr þessu.
Best að segja frá því líka að Kristófer er með lausa tönn og hann er svo montinn. Hann segir alltaf frá því ef hann hittir einhvern nýjan, svo finnst honum brjálæðislega fyndið að Kormákur er búinn að bjóðast til þess að binda band í tönnina og hurð og skella hurðinni til þess að athuga hvort tönnin detti út
. Hann vill nú samt ekki leyfa Kormáki að prófa, hmmm skrítið
.
Sorrý að ég skrifa ekki oftar, það er bara svo lítið að gerast þessa dagana.
Jóhanna segðu Aðalheiði að Nemó sé svo góður og blíður að hún þurfi ekkert að vera hrædd við hann þegar hún kemur til okkar. Nú annars finnum við eitthvað út úr því.
Knús og koss
Bergþóra og co
27.2.2009 | 19:51
Nýr fjölskyldumeðlimur:)
Við erum loksins búin að láta verða af því að fá okkur gæludýr. Það var gömul kona sem átti 9 mánaða gamlan Himalyan colorpoint kisu, vildi losna við hann vegna þess að hún gat ekki séð umm hann lengur. Hann heitir Nemó, sem mér fannst svolítið fyndið þar sem fyrsta dýrið (trúðfiskur) sem Valgerður og Halldór áttu hét Nemó, en það var barnabarn konunnar sem skýrði kisu
. Strákarnir eru að vonum mjög spenntir yfir kisu og eru því frekar fúlir að hann felur sig mest undir sófa. Við erum nú ekki að hafa áhyggjur af því strax þar sem við náðum bara í hann í dag
.
Kristófer er búinn að vera veikur alla vikuna, með hitavellu og kvef, Þetta byrjaði nú síðasta laugardag með uppkasti og svo hélt þetta áfram, þannig að það er búið að vera fjör hér á bæ alla vikuna. Það sem mér fannst nú samt frekar furðulegt að hann var með upp í 39,2 í hita en það sást varla á barninu, þannig að fyrir hann hefur þetta ekki heldur verið gaman. Ég fór í skólann einn dag af fjórum
. Við leyfðum Kristófer nú samt að koma með á skemmtun í skólanum hjá Kormáki í gær (fimmtudag), vegna þess að okkur langaði báðum að fara
. Skemmtunin byrjaði á að krakkarnir sýndu dans og snú snú í leikfimissalnum. Kormákur hoppaði líka í snúsnú þar sem tveimur böndum er snúið (þetta langaði mig alltaf að læra þegar ég var yngri, en enginn gat kennt mér). Við fengum svo Gadbjerg peninga þegar við komum yfir í skólann sem mátti eyða í spilavíti, kökur, kaffi, búð ofl skemmtilegt. Kormákur hafði líka gert teiknimyndasögu ásamt öðrum strák, þar sem þeir "fengu" peninga og áttu að segja hvað persónurnar voru að gera, hvað það kostaði, hversu miklu var eytt í heildina og hvað var eftir
. Mér fannst þetta peningaþema sniðug leið til að kenna þeim bæði um peninga og að reikna
.
Jón Óskar kom heim í gær og var í fríi í dag, þar sem átti að smyrja gröfuna. Hann heppinn að fá langa helgi. Mér fannst þetta frekar skrítið, þar sem ég var í fríi í skólanum líka. Sem sagt laugardagur 1 þessa helgina, hehe. Hann fór að sjálfsögðu út að kljúfa brenni í morgun og ég að raða, það á bara að taka á því þessa helgina og reyna að klára þetta. Ekki hægt að vera með þetta hangandi á eftir sér lengur
.
Jæja þangað til næst. Setti inn nokkrar myndir af Nemó.
koss og knús
Bergþóra og co
Vinir og fjölskylda | Breytt 28.2.2009 kl. 14:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
21.2.2009 | 11:10
Enn ein pestin....
búin að berja að dyrum. Kristófer vaknaði í morgun með hausverk og er svo farinn að kasta upp líka
, þannig að það er fjör hér á bæ. Charlotta ætlaði að koma og leika við Kristófer í dag því að hún nennti ekki á ferðasýningu með Óla og Ástu, en nú er spurning hvort hún komi.
Vikan er annars búin að vera róleg. Ég var að vinna verkefni með hópnum mínum og fannst sumum samvinnan erfið. Við erum 6 í hópnum og allar mjög ólíkar. Þannig að það verður að ræða þetta aðeins þannig að það sé nú ekki ein sem stjórnar öllu, og við hinar getum fengið okkar skoðun fram.
Kormákur fór til Lucas í gær og svaf þar í nótt (what's new, hehe), núna er hann svo kominn í afmæli til einnar stelpu í skólanum og verður þar til klukkan þrjú. Við ákváðum að dekra aðeins við Kristófer á meðan og fengum okkur kjúkling í gær og svo var horft á Tarzan 2 og borðað snakk og nammi
. Að öðru leiti verður þessi helgi með rólegra mótinu hjá okkur. Reyndar ef Kristófer verður hress á morgun förum við á grímuball og sláum köttinn úr tunnunni í íþróttahúsinu hér í bænum
. Læt ykkur nú vita af því seinna.
Takk Vilborg fyrir að prjóna vestið fyrir mig, það er rosalega flott, og upptakarinn frábær, Kristófer ýtti oft á hann í gær til að hlusta á Hómer hehe
.
Síðast en ekki síst er það afmæliskveðja til Stínu. Innilega til hamingju með afmælið á morgun Stína og vonandi færðu alveg frábæran dag. Bestu afmæliskveðjur frá okkur öllum.
Koss og knús
Bergþóra og co
15.2.2009 | 16:24
Begga dugleg....
Ég er búin að skrifa færslu í dag og bæta svo við myndum í Jan-feb 2009 albúm.
Í dag fórum við út að kljúfa brennið, slappa svo af og gera ekki neitt:)
Munið að kvitta.
Knús og koss
Bergþóra og co
15.2.2009 | 10:47
Góðan og blessaðan daginn:)
Þá er vetrarfríið senn á enda. Ég og strákarnir erum búin að hafa það rosalega gott. Við erum búin að vera mikið heima og gera lítið sem ekkert, spila, horfa á myndir, leika úti í snjónum og inni. Á miðvikudaginn fór Kormákur í hlutverkaleik, þar sem hann barðist við 20 aðra með sverðum og öxi ofl. Þetta var hann að fíla í botn, þeir fengu vopn frá stjórnendum, var það gert til að allir væru með vopn sem ekki meiða. Kristófer fékk svo að vera með síðasta hálftímann eða svo
.
Við fórum á fimmtudaginn í Plantorama (Blómaval), þar vorum við að kaupa skrautsteina og kíktum á dýrin í leiðinni. Okkur langar að fá okkur kanínur og kisu, mýsnar finnst mér EKKI spennandi að fá heim, en strákunum líst vel á það. En þetta kostar alveg slatta með búri og öllu tilheyrandi, mér finnst það samt alveg þess virði að leyfa strákunum að fá gæludýr
.
Á föstudaginn fengum við svo Jón Óskar heim til okkar eftir dvöl hans í Gámaræksni upp í Stövring. Þá vorum við hin búin að gera allt voða fínt, þannig að við gátum bara slappað af og notið þess að vera saman
.
Laugardagurinn fór í að fara á flóamarkað (vorum inni í 10 mín), reyndum að kaupa brenni í 3 búðum en allt var uppselt. Þegar heim var komið fengum við okkur kaffi og spiluðum svo Risk Transformers. Elduðum okkur góðan mat í tilefni dagsins, forrétt, aðalrétt og ananasfrómas í eftirrétt, með þessu drukkum við svo rauðvínið sem ég fékk frá leikskólanum (frábært rauðvín), klæddum okkur í fín föt og að sjálfsögðu var fína matarstellið notað, mmm þetta var æði. Eftir matinn horfðum við svo á Lord og the rings og borðuðum nammi, að vísu voru allir svo saddir eftir matinn að lítið kláraðist úr nammiskálinni
. Ég saumaði smá í fæðingastreng sem ég er að gera fyrir Aðalheiði, strákarnir blöðruðu út í eitt, þannig að við náðum lítið að fylgjast með myndinni, hehe algjörar dúllur
.
Í dag er planið að fara út og reyna kljúfa smá brenni og raða upp til þurrks. Að vísu snjóar úti, en það er um að gera að láta á það reyna, við förum þá kannski bara í snjókast ef ekkert gengur, hver veit, hehe. Ætlum bara að gera eitthvað notó í dag, því að svo hefst ný vika á morgun með skóla og vinnu
.
Hafið sem allra best, þangað til næst.
Knús og koss
Bergþóra og co
Bloggvinir
Eldri færslur
- Október 2010
- September 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
242 dagar til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.4.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar