22.7.2008 | 06:53
Hún á afmæli í dag, hún á afmæli í dag...........
Hún á afmæli hún Valgerður, hún á afmæli í dag. Elsku Valgerður okkar innilega til hamingju með daginn
. Hafðu það gott í dag og við hringjum í til ykkar í kvöld
.
Endalaust af knúsi og kossum.
Bergþóra, Jón Óskar, Kormákur Helgi, Kristófer Ingi og Árni Þór
17.7.2008 | 16:50
AFMÆLISKVEÐJA:)
ELSKU HALLDÓR INNILEGA TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN. VONANDI ERTU BÚINN AÐ EIGA GÓÐAN DAG OG VONANDI VERÐUR KVÖLDIÐ ENN BETRA
.
KNÚS OG KOSSAR FRÁ OKKUR HÉR Í DANAVELDI.
17.7.2008 | 09:20
Sending að heiman:)
Maður verður sko ekki fyrir vonbrigðum með gestina sem koma til okkar. Við fengum Árna Þór, Gyðu, Begga og Bergstein til okkar í nótt, þau lentu kl.5 í morgun. Jón Óskar fékk heiðurinn af því að vakna kl 4 og ná í þau, á meðan svaf ég og Jón hringdi svo þegar þau voru á leiðinni heim og ég tók til morgunmat. Allir komu með eitthvað handa okkur, Gyða og co komu með Cheerios og Lucky Charms
, takk æðislega fyrir það
. Mamma og pabbi sendu okkur alveg helling, flatkökur, hangikjöt, skonsur, SSpylsur, piparsósu, sverð handa Kristófer "vá mamma, sjáðu hvað þetta er flott" og svo fengum við hjónin eina óvænta gjöf og mig er nú búið að langa lengi í þetta
. Elsku mamma og pabbi takk alveg æðislega fyrir okkur, það var mikil hamingja hér á bæ
. Flestir reyndu svo að leggja sig, en Jón fór að horfa á sjónvarpið, enda vanur að vakna snemma
. Ég gafst upp eftir klst, Árni Þór stuttu seinna og svo Beggi. Þannig að ég fór snemma að klára innkaupin sem ég ætlaði að gera í gær, Beggi fékk smá sightseen út úr því, þar sem ekki var búið að opna búðina þegar við komum
. Strákarnir himinlifandi að Árni var með þeim heima
.
Ég og strákarnir fórum á flakk í gær með Rúnu, Karen Rós og Emmu Silju. Meðal annars var farið á göngugötuna að kaupa föt á liðið, Den gammel by í Aarhus, þar var labbað um og öll gömlu húsin skoðuð, farið í hestvagnaferð og keyptar kökur í bakaríi frá 1700 og súrkál. Gaman að segja frá því að þetta líkist svolítið Árbæjarsafninu og þangað hef ég aldrei farið, þrátt fyrir að hafa búið í Reykjavík i 20 ár, alltaf svo menningarleg
. Þaðan var farið í Ikea, ég keypti mér fleiri glös og maðurinn minn leit bara á mig eins og ég væri gjörsamlega búin að missa vitið
, honum finnst við nefnilega eiga nóg af glösum og ég skil það ekki
. Eftir Ikea fórum við í Bilka og þaðan og heim. Við vorum komin heim um kl 22:30 í gærkvöldi, eftir langan og skemmtilegan dag. En einu sinni komst ég að því hvað gps tækið getur sparað mikinn tíma, Rúna greyið var að elta mig og svo þegar við áttum að beygja út af, var brjálað að gera hjá henni og hún missti af mér, þannig að ég beygði út af og hún hélt áfram
. En með hjálp tækisins var ég ekki lengi að finna hana aftur og koma okkur á réttan stað
.
Jæja elskurnar, ég vona að gestirnir mínir séu að fara að vakna þannig að við getum gert eitthvað. Jón Óskar er loksins komin í sumarfrí og nú á bara að njóta þess að vera í fríi og gera eitthvað skemmtilegt.
Knús og koss
Bergþóra og co
15.7.2008 | 09:02
Ég rakst á þetta á heimasíðunni hjá Guggu og....
ákvað að stela þessu. Mér finnst nefnilega að stundum eigi maður að hugsa meira um það að leifa börnum að vera börn í stað þess að leiðrétta allt sem þau gera og segja. En að sjálfsögðu þurfum við að hafa takmörk líka. Ég veit bara hvað það er mikilvægt að fá að vera barn og foreldrar elski mann skilyrðislaust, þetta lærði ég af mömmu og pabba og ég færi þetta á mín börn, sem ég elska meira en allt annað
.
Í dag...
ætla ég að brosa til þín þegar augu okkar mætast...
og hlæja þegar mig langar frekar til að gráta...
ætla ég að leyfa þér að vakna mjúklega, vafin inn í sængina þína og halda á þér í fanginu þar til að þú ert tilbúinn fyrir nýjan dag...
ætla ég að leyfa þér að velja hvaða föt þú ferð í, brosa og hrósa þér fyrir ,,fullkomna" litasamsetningu...
ætla ég að gleyma óhreina tauinu og fara frekar með þér út á leikvöll...
ætla ég að geyma óhreinu diskana í vaskinum og hjálpa þér að púsla nýja púsluspilið þitt...
ætla ég að slökkva á símanum og tölvunni og fara með þér út og blása sápukúlur...
ætla ég að bjóða þér upp á ís í innkaupaferðinni í stað þess að byrsta mig um leið og þú ferð að suða um hann...
ætla ég ekki að hafa áhyggjur af því hvað þú ætlar að verða þegar þú verður stór...
ætla ég ekki að hafa bakþanka um allar ákvarðanir sem ég tek í uppeldinu og fyrir þína hönd...
ætla ég að leyfa þér að baka með mér bollur og ekki hnoða þær allar aftur þegar þú sérð ekki til...
Í kvöld...
ætla ég að halda á þér í fanginu og segja þér frá deginum þegar þú fæddist og hvers vegna mér þykir svona vænt um þig...
ætla ég að leyfa þér að busla og skvetta í baðinu og ekki verða reið út af vatninu á gólfinu...
ætla ég að leyfa þér að vaka lengi og skoða stjörnurnar á himninum...
ætla ég að kúra hjá þér eins lengi og þú vilt, þó að ég missi þá af uppáhaldsþættinum mínum...
ætla ég að dást að þér og vera þakklát fyrir að eiga gersemi eins og þig...
ég er svo heppin að eiga þig og bið ekki um neitt... nema annan dag með þér...
Smá væmni í gangi, en það er nú líka allt í lagi svona inn á milli. Jæja farin að hjóla á pósthúsið.
Knús og koss
Bergþóra
15.7.2008 | 08:40
Pínu pons!
Eins og ég sagði í síðustu færslu þá vorum við á leiðinni í Madsbyparken í Fredericia, en á leið okkar þangað rákumst við á annan spennandi stað. Það var Trelde næs, strandlengja þar sem hægt er að labba um, leika sér í sjónum, og skoða skóginn í kring. Það gerðum við og nutum þess bara að vera úti, labba á tánum í sandinum og svona og borða nesti. Strákarnir voru ekki alveg sáttir þegar við fórum heim og hefðu alveg vilja vera lengur, en þar sem frúin á heimilinu neyddist til þess að afþýða ísskápinn var það ekki hægt
.
Annars bíða allir spenntir hér að fá heimsókn á fimmtudag, en það eru Árni Þór(Bróðir), Gyða(systir Jóns), Beggi og Bergsteinn, okkur finnst nú voða heppilegt að þau koma öll með sama fluginu, því þá er bara ein ferð út á flugvöll (reyndar ekki langt að fara, þar sem þau fljúga á Billund). Árni verður hjá okkur í rúmlega 2 vikur, en Gyða og co verða í viku. Kristófer bað afa sinn að smíða fyrir sig sverð sem Árni átti að koma með, og hann er mjög spenntur yfir því. Kormákur vildi fá hníf og vonandi hefur afi náð að klára hann líka
. Ég fæ sent Cheerios og Lucky Charms, alltaf að nota ferðirnar, en samt verður maður að passa sig, ég gæti beðið um endalaust af einhverjum vörum sem maður saknar
. En er það ekki bara hluti af því að búa annarsstaðar og þeim mun betra er þetta þegar við komum til Íslands
.
Jæja hef svo sem ekkert að segja, langaði bara að bulla smá.
Knús og koss
Bergþóra og co
13.7.2008 | 10:43
Vika síðan síðast.
Tíminn líður hratt, á gervi hnatta öld...... nei, nei bara smá djók. Það er nú ekki mikið búið að gerast hjá okkur þessa vikuna. Ég fór í sund á mánudag með strákunum og skemmtum við okkur mjög vel í rennibrautinni og að leika að ýmsu dóti sem var þarna í sundlauginni.
Á föstudag buðum við Rögnu og co frá Silkeborg til okkar í mat og gæddum við okkur á síðasta íslenska lambalærinu okkar, mmmm það var náttúrulega bara algjört æði og í eftirrétt fengum við okkur frost og funa, sem er ís með marengs ofan á, þetta kom nú bara á óvart og smakkaðist alveg hreint frábærlega. Takk fyrir komuna og heimalöguðu sultuna, þetta var rosalega gaman.
Kristín, Kalli, börn og foreldrar hans komu svo til okkar í gær aftur. Við vorum hérna tilbúin með heit rúnstykki, vínarbrauð og fleira í morgunmat þegar þau komu. Við skelltum okkur svo í Legoland þar sem við fengum rigningu og sól til skiptis. Börn og fullorðir skemmtu sér allir mjög vel í tækjum og skoðunarferðum í búðum, útsýnisturni ofl. Þegar heim var komið eftir mjög langan dag í Legolandi (8 tíma) grilluðum við okkur kjúkling, fengum okkur rauðvín og bjór með og kjöftuðum aðeins meira. Þau héldu svo aftur yfir á sjáland, en þau eru að fara heim til Íslands á morgun.
Jæja það er nú ekki meira að segja í bili, við erum að fara í Madsbyparken að leika okkur í smá stund eða langa stund kemur í ljós.
Knús og kossar
Bergþóra og co.
P.s munið að kvitta í gestabókina eða við færslurnar. Það eru komnar inn einhverjar nýjar myndir í Júlí albúmið.
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 18:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Bloggvinir
Eldri færslur
- Október 2010
- September 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
146 dagar til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (31.7.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar