Færsluflokkur: Vinir og fjölskylda

Haustfrí..

Strákarnir okkar eru búnir að vera í hausfríi úr skólanum alla þessa viku. Ég á að vera að skrifa próf, en það hefur nú gengið eitthvað hægtWink. Heppin ég að hafa alla næstu viku til þess að skrifa, og ég er nú alveg viss um að það gangi upp. Ég er nú búin að skila af mér einu prófi sem ég fékk nú bara ágætiseinkunn fyrir, þannig að núna er bara þetta sem ég er að skrifa og svo lokaritgerðin, svo er maður bara orðin pædagog í lok janúarGrin.

En eins og ég sagði áðan þá eru strákarnir búnir að vera í fríi, þannig að það er nú búið að gera ýmislegt annað heldur en að læra þessa vikuna. Ég og strákarnir fórum á fjölskyldudag í járnaldarsafni sem er hérna rétt hjá okkur. Þar getur maður labbað um og skoðað og strákarnir bjuggu sér til hníf, þreskjuðu hveiti og möluðu, reyndu að búa til smjör (höfðu ekki alveg þolinmæði, né orku í að handþeyta rjómann til smjörs), sáu lambi slátrað, skinnið tekið af og það opnað til að sýna þeim inn í og svo var skotið með ör og boga. Eftir þetta fórum við út að borða og svo heim í náttfatapartýSmile. Á meðan við skemmtum okkur þarna var Jón í Kaupmannahöfn með foreldrum sínum og systir og náðum við svo í hann í lestina um nóttina.

Eins er búið að fara í bíó, kaupa jólagjöf handa húsbóndanum og margt fleira. En eins og alltaf eftir frábært frí verður líka gott að fá smá rútínu inn aftur.

Jæja núna ætla ég að gera ekki neitt.

Knús og koss


Jæja komin aftur :)

Góðan daginn Smile.

Núna ætla ég að byrja að skrifa smá aftur, hugsa um það sem smá tilbreytingu frá prófskrifumWink. Síðan eftir síðust skrif eru strákarnir okkar orðnir 7 og 11 ára, alveg hreint ótrúlegt hvað þeir eldast, en við hjónin eldumst ekkertSmile

Við erum búin að eiga yndislegt sumar, en strákarnir fóru einir til Íslands þar sem þeir voru mest hjá móðurforeldrum sínum, en kíktu nú í sveitina til föðurforeldra og frænku sinnar. Þeim fannst þetta æðislegt og að sjálfsögðu var þvílíkt stjanað í kringum þá og nánast allt gert fyrir þáSmile. Þeir voru tveir í viku en þá kom þessi "afskiptasama" móðir og truflaði þetta ljúfa líf og dró þá með út um allt landWink. Við fórum á Hornafjörð að heimsækja Kristínu og co og ömmu og afa, alveg æðislegt að sjá þau, alltof langt liðið síðan síðast. Á leið heim fórum við í siglingu um Jökulárslón, stoppuðum á mörgum stöðum á leið heim, enda langi á leiðinni á milli landshluta. En strákarnir yndislegir og skemmtum við okkur konunglega.

Jæja, við fórum á Akureyri þar sem við eyddum tæpum 2 dögum sem var alltof stuttur tími á þessum yndislega stað. Þar fórum við í sund, jólahúsið, þrastaskóg ofl. Vá ég held að ég skrifi 4 síðna ferðasögu ef ég held svona áfram, en fórum líka á Þingvelli, sveitina aftur, gengum á Esjuna, hittum okkar yndislegu vini, en vorum sem mest með fjölskyldunni. En ég og strákunum vantaði þó eitt og var það pabbi þeirra, en hann var heima í Danmörku að vinna.

Núna er haustið komið og lífi gengur sinn vanagang. Strákarnir í skólanum, þar sem Kormákur er misjafnlega ánægður (finnst þetta mesti óþarfi), en Kristófer finnst þetta voðalega gaman (ennþá allavega), hann æfir fótbolta, er í FDF (eins konar skátar) og vil helst vera í einhverju öðru líka, en mamma hans lætur hann velja það sem hann helst villWink.

Jón Óskar er loksins farin að vinna hérna nálægt, sem þýðir að hann er 20 mín að keyra í stað 1 klst, þannig að það er svaka lúksusSmile.

Ég sjálf er bara í skólanum og reyni að fylgjast með hvort einhverja vinnu sé að fá hérna í nágrenninu. En ég reyni að að einbeita mér að lokasprettinum í skólanum. Eftir síðasta starfsnám sem endaði í ágúst, er ég búin að skila skýrslu yfir verkefni sem ég vann með í starfsnáminu og náði henni. Nýbúin að skila prófi í uppeldisfræði og núna er það próf í valfaginu, sem á að skila í lok okt og svo munnlegt um miðjan nóv. Að lokum er það lokaritgerðin og útskrift í janúar, jjjjeeeeiiiiiiGrin.

Við erum búin að fá Valgerði, Halldór og litlu dúllu til okkar, þau voru hjá okkur í 10 yndislega daga í sept og nutum við þess í botn að kynnast litlu dúllu betur. Í næstu viku eigum við svo von á tengdó. Þannig að það er nóg að gera, gestir próf, parketlagning, garður ofl. ALLTAF FJÖRSmile.

Meira seinna og ég reyni að troða inn myndum fljótlega frá sumrinuSmile.

Knús og koss

Bergþóra og co


Pása....

Tad verdur smá pása á skrifum hérna núna. Ég er bara alltof ot ad skrifa hérnaErrm.

En fyrst er tad smá afmæliskvedja handa húsbóndanum. Elsku Jón Óskar innilega til hamingju med daginn á midvikudaginn. Ástarkvedja og 100000000000000000000 kossar.

 

Vid heyrumst sídar og ég læt vita tegar ég byrja aftur.

Koss og knús

Bergthora


Fótboltastrákur :)

Jæja, núna erum við orðin hluti af fótboltafjölskyldum. Við fórum með Kristófer á fyrstu fótboltaæfinguna sína í morgunn. Þar lærðu foreldrar líka nokkrar æfingar, svona ef þjálfararnir eru hindraðir í að mæta, þá eru foreldrar beðnir um að taka eina æfingu í staðinn fyrir að aflýsa æfingunniSmile. Þegar við komum var Kristófer svo spurður hvort að hann ætti fótboltaskó og ég sagði nei, því að ég vildi fyrst sjá hvernig þetta færi áður en ég færi að kaupa skó. En konunni fannst það ekki mikið mál þar sem þau eru með skiptikassa á fótboltaskóm, sem þýðir að hann gat fundið notaða skó sem pössuðu á hann. Við fundum eina adidas skó sem voru nánast ónotaðir og þá mátti hann eigaGrin. Mér finnst þetta rosalega góð hugmynd, þar sem börn vaxa svo hratt upp úr skóm, svo ef við kaupum skó hann þá getum við sett þá í þennan skiptikassa þegar þeir eru of litlir á hann, GÓÐ HUGMYNDSmile.

Á meðan að við vorum á æfingunni var Kormákur einn heima og hafði það notalegt. Hann fékk svo vin sinn frá Vejle í heimsókn og nutu þeir sín á meðan við vorum ekki hér, snakk, gos, tölva og sjónvarpGrin.

Við skruppum nú líka aðeins í bæinn að kaupa verkfæri svo við getum farið að vinna í garðinum næstu helgar og reyna að gera hann eins flottan og hægt er. 

Jæja, núna ætla ég að fara að horfa á imbann með strákunum mínum, hafið það sem allra best, þangað til næst.

Knús og koss

Bergþóra og co 


60 ÁRA :)

Jæja þá er hann pabbi gamli orðinn 60 ára. Elsku pabbi innilega til hamingju með daginn. Leiðinlegt að við getum ekki verið hjá þér og fagna því með þér, en við hlökkum til að koma í sumar og knúsa ykkur öll.

Saknaðarkveðja og risaknús

Bergþóra, Jón Óskar, Kormákur Helgi og Kristófer Ingi.


Páskar

Gleðilega páska allirGrin. Hafið það sem allra best elsku fjölskylda og vinir.

Saknaðar og páskakveðja frá litlu fjölskyldunni í DKInLove.


Innilega til...

hamingju með daginn elsku Jóhanna okkar og vonandi ertu búin að eiga góðan dag með fjölskyldunniSmile.

Ástar og saknaðarkveðja frá okkur í DK.

Annars er ekkert að frétta héðan frá okkur. Alltaf allt við það sama. Við erum þó búin að fara á skólaskemmtun hjá Kristófer þar sem var verið að sýna frá vorþemanu sem þau eru búin að vera að vinna með. Flottar myndir sem þau gerðu og eru greinilega búin að læra mikið um voriðSmile. Við fengum svo "peninga" sem við gátum keypt kaffi og köku fyrir. Ég bakaði skúffuköku fyrir Kristófers bekk og var hún að sjálfsögðu fyrst búinGrin.

Hjá Kormáki var skemmtunin um árin 1056-ca1500. Þau höfðu búið til tímahylki, gert skildi úr pappa sem þau teiknuðu og máluðu sjálf á og meira skemmtilegt. Þarna vorum við látinn dansa og syngja og svo fengu börnin að dansa og bara leika sér. Þarna var líka kökuhlaðborð (hver fjölskylda koma með eina köku) og svo bauð skólinn upp á kaffi.

Sem sagt mikil skemmtun hjá báðum og mikið gamanSmile.

Núna eru allir strákarnir komnir í páskafrí en ég þarf víst að vinna þessa 3 daga, en það er svo sem ágætt, verðum bara með ca 20 börn.En það verðu æði að eiga frí í 5 daga  og njóta þess að vera með strákunum mínumGrin. Stefnum á skógarferð þar sem við ætlum að grilla og kveikja bál, gera pinnabrauð og vonandi að við sjáum UgluSmile. En ég segi ykkur nánar frá því ef það verður almennilegt veður og við getum farið.....

Nenni ekki meira

Knús og koss

Bergþóra og co


úffff

hvað er langt á milli færslna. En hér kemur loksins eitthvað afturSmile.

Jón er ennþá heima vegna veðurs, fór aðeins að vinna í 2 vikur í janúar og er hann orðinn frekar pirraður á því að vera heimaErrm. En vonandi fer þetta nú að lagast þannig að hann komist almennilega út.

Ég sjálf er byrjuð í starfsnámi í 0-bekk í skóla og í frístundaheimili. Þetta er nú eitthvað sem þarf að venja sig við eins og allt annað svo sem. En maður hefur nú bara gott af þvíSmile. Ég er á 3 viku núna og er búin að gera markmiðin mín klár til undirskriftar af leiðbeinandanum mínum og kennaranum. Held að þetta eigi bara eftir að vera gott og spennandi. Ég fæ allavega að skipuleggja smá kennslu fyrir páskana, er með alla íþróttatímana ein og svo verð ég líka með kennslu um kroppinnGrin. Þannig að það er nóg að gera við að lesa hvað er ætlast til að börnin kunni, skipuleggja kennsluna og svo að finna upp á einhverju fyrir Frístundina að gera líkaSmile. Já sem sagt NÓG AÐ GERA.

Strákarnir eru í vetrarfríi og eru ýmist heima með pabba sínum, eða með mér í vinnunni til að sjá hvað ég er nú að gera. Þeir voru með mér í gær, en í dag fór Kormákur að leika við vin sinn í Vejle og Kristófer var heima. Kristófer kemur svo með mér á morgunn líka vegna þess að við erum að fara á skauta, en Kormákur vill frekar vera heima hjá pabba sínum. Þeir tveir hitta svo okkur Kristófer niður í bæ svo hægt sé að fara á bókasafnið og þeir "litlu" að fara í hlutverkaleik. Á meðan þeir eru þar förum við hjónin sennilega bara á kaffihúsSmile.

Annars er lítið annað að frétta. En það eru komnar inn einhverjar myndir og á ég kannski eftir að bæta aðeins meira við.

Knús og koss

Bergþóra og co


LOKSINS LOKSINS :)

Jæja þá er loksins komið að færslu. SORRY hvað ég er búin að vera löt bloggaWoundering.

Ætli það sé ekki best að byrja á jólunum og áramótunum. Jólin voru alveg yndisleg en afskaplega rólegGrin, og fannst okkur voðalega skrítið að sjá ekkert fjölskylduna okkar, en skype bjargaði okkur og náðum við að segja gleðileg jól og aðeins að sjá framan í þauInLove. En eins og alltaf um jól var mikið borðað og mikið legið í leti. Strákarnir fengu að vísu Wii tölvu frá okkur og var því mikið spilað gólf, tennis, hafnabolti oflSmile.

Það passar nú kannski ekki með letina, því að þrátt fyrir að fjölskyldan var ekki hjá okkur, þá var nóg að gera. Við fengum Óla, Ástu og co til okkar í kaffi á jóladag og á annan komu Ragna, Kristinn og co frá Silkeborg. Við fórum svo í jólaboð 27 til Möggu og familie og 28 fórum við til tengdaforeldra Elísabetar i Fredricia. Semsagt nóg að gera og alveg yndisleg jól í alla staðiGrin.

Um áramótin áttum við heimboð á 2 staði en ákváðum að vera heima hjá okkur. Held að við höfum aldrei upplifað svona róleg áramót, en samt alveg frábær, horfðum á skaupið, sprengdum fullt af flugeldum osfrv. Enginn fór í rúmið fyrr en kl: 3, en líka allir búnir á því þáGrin.

Janúar mánuður er búin að vera mjög afslappandi fyrir utan þessa síðustu viku. Brjálað að gera hjá mér í skólanum í undirbúningi fyrir starfsnámið, en ég byrja á mánudaginn í 6 mánaða starfsnámi að kenna í 0-bekk og í gæslu fyrir börnin eftir skóla. Hlakka mikið til að prófa að vinna með smá eldri börnumSmile. Einnig átti árgangurinn minn að undirbúa og halda útskriftarveislu fyrir útskriftarnemana. Útskriftin var í gær og vorum við nokkrar sem vorum þarna frá kl 9 eða 11 og til 2:30 í nótt, ég stakk af heim í 3 tíma til að fara í sturtu og taka mig til fyrir kvöldið, en það er óhætt að segja að við vorum pínu þreyttar í dag. En þetta var rosalega gaman og voru útskriftarnemendurnir svaka ánægðir með þetta Smile.

Jón er loksins farinn að vinna aftur eftir langt hlé vegna rigningu og svo snjós, þannig að það er frábært. Var orðinn alveg svakalega þreytt á að hafa hann alltaf heima, HAHAHAHAHAHA.

Strákunum gengur alltaf vel í skólunum, en bíða núna spenntir eftir sumrinu svo þeir geti farið til Íslands. En það er búið að kaupa miða fyrir þá og verða þeir einir í 2 vikur og svo kem ég og verð í 3 vikur með þeim áður en við förum heim til Jóns sem er bara látinn vinna.........

Jæja, kannski nenni ég að drulla inn myndum fljótlega, en ekki núna, er að horfa á Wall'e með strákunum mínumSmile.

Knús og koss

Bergþóra og co


Jólin koma, jólin koma.....

Gleðileg jól elsku fjölskylda og vinirHeart. Hafið það sem allra best yfir hátíðirnar.

Ég vona að ég nái að skella inn nokkrum myndum á milli hátíðanna, en annars verður það strax eftir áramótGrin.

Jólaknús og koss

Bergþóra, Jón Óskar, Kormákur Helgi og Kristófer IngiKissing.


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband