Bloggfærslur mánaðarins, október 2007

Höfuðverkur:(

Ég er nú bara með "höfuðverk" þessa dagana. Starfsnámið mitt er að byrja í næstu viku og það er það sem veldur þessum "höfuðverk" þessa dagana. Ég þarf að gera námsáætlun þ.e.a.s hvað vil ég fá út úr starfsnáminu, hvernig ætla ég að ná því markmiði og hvaða aðferðir ætla ég að nota. Það er nú bara ekkert auðvelt að koma þessu niður á blað, en "höfuðverkurinn" hverfur þegar þetta er komið, þannig að það er bara að vinna í þvíSmile. Það er allt brjálað að gera í skólanum, það eru fyrirlestrar á hverjum degi þessa viku í stað tvisvar, á morgun eru tveir (fyrir og eftir hádegi), en ég er samt með þá stefnu að eiða tímanum með strákunum þar til þeir fara að sofa í stað þess að læra þegar ég kem heim líka, ef ég á eitthvað eftir er það gert á kvöldin (eða reynt þaðGrin).

Ég var nú ekki búin að segja ykkur frá því að ég er svo heppin að staðurinn sem ég verð í starfsnámi hjá er með LOKAÐ milli jóla og nýárs, þannig að maður fær bara ansi gott jólafríSmile.

Það er annars búið að vera rólegt það sem af er vikunnar. Við strákarnir erum að gera nokkur jólakort, þeir vildu sjálfir gera nokkur og eru þau bara flottSmile. Svo er nú stefnt að því að gera eitthvað öðruvísi jólaföndur líka, það verður nú bara gamanSmile. Maður bíður svo bara spenntur eftir sendingu frá mömmu. Hún keypti kökublaðið hjá Gestgjafanum handa mér, það blað hjá Gestgjafanum er í miklu uppáhaldi hjá mér, fullt af góðum hugmyndum fyrir jólin (ekki bara uppskriftir)Grin.

Elsku Jóhanna mín. því miður þá get ég ekki bloggað á hverjum degi, það yrði 2- 6 línur og svo búið. Það gengur allt sinn vanagang hér með skóla, vinnu og allt þetta. Kannski get ég skrifað meira þegar ég er byrjuð í praktik, hver veit.

Elska ykkur og ég skrifa meira um helgina.

Kossar og knús

Bergþóra og co


Líður tíminn hratt eða hvað?

Halló! Við erum búin að skipta yfir á vetrartímann núna og er þá klukkutími á milli í stað tveirSmile. Strákarnir voru að spyrja mig um daginn hvenær við ætlum að baka fyrir jólin, ég sagði að við þyrftum ekkert að flýta okkur með það, það er nú bara október. En það er nú að koma NÓVEMBER, rétt tæplega tveir mánuðir fram að jólumWoundering. Þannig að maður fer að hugsa sig um eftir svona tvær vikur, til að allt verði tilbúið fyrir aðventunaGrin. Mér finnst bara tíminn fljúga áfram og maður veit bara ekkert hvað verður af honum, það er bara púff og hann er farinnLoL.

Við fórum að versla í gær og þá keyptum við jólapappír, jólakort ofl. Næstu helgi er svo planað að kaupa restina af þeim gjöfum sem eiga að fara til Íslands. Það þarf að senda þá tímanlega þar sem afmælisgjafirnar handa Aðalheiði og Hlyni fylgja meðGrinHeart.

Við fengum Elísabet og Nicolai í mat í gær, strákarnir himinlifandi þar sem þau voru svo dugleg að fíflast í þeimLoL. Þetta var rosalega gaman, spjallað um allt og drukkið rauðvín og bjór. Takk æðislega fyrir komuna og góða ferð heimSmile.

Dagurinn í dag er svo búin að vera hinn rólegasti. Við fórum á rúntinn upp í Give og spjölluðum aðeins þar (alltaf gaman að koma þangaðSmile), keyrðum svo heim og er verið að vinna í því að liggja í leti það sem eftir er kvöldsins og það er nú ekkert smá vinna get ég sagt ykkur,heheheheLoLTounge.

Jæja gaman að sjá hvað þið eruð búin að vera dugleg að kvitta núna. það er svo miklu skemmtilegra fyrir mig að skrifa þegar ég fæ einhver viðbrögð hjá ykkurKissingJoyful.

Kossar og knús

Lille familien i VejleSmile


Viðtalið búið:)

Ég fór í viðtalið í gær út af starfsnáminu og gekk það mjög vel, ég verð með góðan vinnutíma, er alltaf búin 12:30 á föstudögum þannig að það er frábærtSmile. Við erum með 5 börn á deildinni og það er 2-3 kennarar á deildinni, það er bara leyfilegt að vera með 2 börn á mann þegar þau eru svona fötluð. Mig hlakkar mjög mikið til núna og er ég með góða tilfinningu fyrir þessum staðGrin.

Svo var nú farið í partý í gær hjá einni úr bekknum, þar komst ég að því að kærastinn hennar er að fara í starfsnám í gæslunni hjá Kormáki, honum fannst það nú svolítið sniðugt þegar ég sagði honum þaðGrin. En Jóhanna mín þér til sárra vonbrigða gerði ég mig ekki að fífli í partýinuFrown. Það var mjög gaman og var sungið mikið í singstar (reyndar ekki ég). Það var reyndar farið í einhvern drykkjarleik, hann var mjög skemmtilegur, kannski kenni ég einhverjum hann næst þegar við komum á klakannLoL.

Ég er búin að vera að undirbúa aðeins kvöldmatinn núna, Elísabet og Nicolai eru að koma í mat og verðum við með fylltar svínalundir handa þeim. Strákarnir eru búnir að vera leika sér inni í stofu og skemmta sér rosalega vel og svo allt í einu duttu þeir báðir og Kristófer fær smá rispu á sig. Hann vill endilega setja kalt vatn á þetta, en honum til sárra vonbrigða gengur það ekki, hann "meiðir" sig ennþá og verður að fá plástur (er nýbúin að kaupa spidermann og Disney plástra), hann haltrar inn í stofu og ég segi við hann "ertu alveg stórslasaður", " já mamma, ég held að ég þurfi að fá hjólastól"LoL. Jón var núna búin að biðja Kristófer að hætta einhverju þrisvar sinnum og ekki var hlustað, jón segir " veistu hvað orðið HÆTTU þýðir Kristófer", "já, hættu" (ég sprakk úr hlátri), "hvað annað" spyr Jón, "lad være" segir Kristófer, þarna átti Jón svolítið erfitt með sig og sagði bældum hlátri á ÍSLENSKU "óó, stopp"LoL.

Jæja erum að fara að versla, heyrumst seinna og haldið áfram að vera svona dugleg að kvittaSmile.

Eigið góða helgi. Kossar og knús

Bergþóra og co


Hææææææ!!!!!!!

Góðan og blessaðan daginn!

Það er nú ekki búið að vera mikið um að vera þessa vikuna, því það er búið að vera brjálað hjá mér í skólanum og verður alla næstu viku líkaPouty. Kormákur var í Legolandi með skólanum í dag, og það er miklu skemmti-legra heldur en að vera með mömmu og pabbaTounge. Annars gengur honum orðið vel í dönskunni og segir að í dag hafi hann "snakked perfekt dansk"Grin. Kristófer segir ennþá að hann kunni ekki dönsku og tali bara íslensku á leikskólanumLoL.

Jón var í óvæntu fríi í gær og fór þá í Ikea að kaupa bókahillur og tókst okkur að tæma 4 kassa í viðbót (kannski verðum við búin að tæma alla kassana eftir árið, enn það verður að koma í ljós, hehehehe).

Á morgun er ég að fara í viðtal á leikskólann sem ég fer í starfsnám hjá, enn það byrjar 5. nóv. Hlakka til þess en kvíði samt fyrir líka. Þessi leikskóli er bara með fötluð börn, sum eru mikið fötluð enn önnur mjög lítið. Ég veit reyndar ekki hvort þau séu andlega fötluð eða "bara" líkamlega, ef maður má segja það. Jens sem sér um starfsnámið í skólanum hjá mér sagði í dag að fyrst gæti þetta verið mjög erfitt, sérstaklega ef maður hefur ekki umgengist fötluð börn. Ég sagði að ég hefði nú ekki gert mikið af því, nema þá hann Hlyn minnGrin, sem er nú mjög duglegur. Enn ég held að þetta eigi jafnvel eftir að styrkja mig sem persónuSmile.

Á morgun er ég svo að fara í bekkjarpartý, það verður nú örugglega gaman. Ég er meira að segja búin að plata hann Jón til þess að keyra mig og sækja. Maður verður nú að fá sér smá ölGrin.

Alveg rétt ég var næstum búin að gleyma einu. ÉG þurfti að fara upp á svið í fyrirlestrinum í morgun og leika, "ÉG" þið sem þekkið mig getið ímyndað ykkur hvað það var erfitt fyrir mig, eins gott að ég var með meik á mér, þá sá enginn hvað ég var rauð í framan. Þetta reddaðist samt allt og ég talaði bara íslensku. Við vorum að sýna fram á það hvað er auðvelt að mistúlka fólk ef þú skilur ekki máliðSmile. Enn þetta hafðist og eins og sést þá er ég enn á lífiGrin.

Jæja elskurnar mínar ekki gleyma að kvitta, það er svo miklu skemmtilegra fyrir migTounge. Heyrumst seinna og þá læt ég ykkur vita hvort ég hafi nokkuð gert mig að fífli í partýinu, hehehe.

Kossar og knús

Bergþóra og co


Vetrarfríið búið:(

Jæja, þá er það helgarfærslan okkar. Á föstudaginn fórum við upp í Silkiborg í heimsókn til Rögnu og co. Þar vorum við í kaffi og kvöldmat, allt alveg rosalega gottGrin. Við kjöftuðum og krakkarnir voru að leika sér í Buzz (playstation), Jón þurfti aðeins að hjálpa Kristófer og festist nú bara aðeins í þessu, heheheheLoL. Takk fyrir æðislega fyrir okkurGrin.

Í gær fengum við svo Elísabetu, Nicolai og Alexander í heimsókn. Þau komu frá Íslandi á föstudag og var ákveðið að leifa strákunum aðeins að hittast og leika. Takk fyrir komuna, þetta var rosalega gaman. Þau komu með sendingu frá mömmu og pabba með sér, við fengum lambalæri,mmmm nammi, ORA grænar baunir, swiss miss og ýmislegt fleira. Elsku mamma og pabbi, takk æðislega fyrir okkurSmile.

Í dag var svo sofið til 10 og brunað í Legoland til að hitta Elísabetu, Alexander, Nicolai og foreldra hans, systur og börnin hennar. Við eyddum deginum þar og skemmtum okkur konunglegaGrin. Þegar heim var komið fóru strákarnir að kubba með nýju Legokubbunum hans Kristófers og setja saman Bionocle kall sem Kormákur fékk.

Þetta er semsagt búin að vera ansi góð helgi hjá okkur og nóg að geraGrin. Svo er bara að fara snemma í rúmið í kvöld, þar sem það er skóli og vinna hjá öllum á morgun. Okkur strákunum finnst þetta frí hafa flogið áfram og vildum gjarnan vera aðeins lengur, enn maður fær það víst ekkiErrm.

Kossar og knús

Bergþóra og co

 


Halló!

Hæ, það er nú búið að vera brjálað að gera hjá okkur í vetrarfríiunu og það er ekki búið enn(skóli á mánudag:( ). Það átti að vera afslöppun hjá okkur fyrri part vikunar, enn við strákarnir fundum okkur að sjálfsögðu eitthvað annað að gera. Á mánudaginn vorum við í Give, þriðjudaginn í Legolandi, miðvikudaginn fórum við í Kolding og keyptum okkur nýjan dvd spilara og brauðrist. Að sjálfsögðu var þá komið við í risadótabúðinni sem er við hliðina:),strákarnir gátu nú alveg hugsað sér ýmislegt í henniLoL (ekki það að ég skilji þaðWoundering).

Rúna og stelpurnar hennar komu til okkar í gær og eyddu deginum með okkur. Við fórum í sund í Kolding og var þetta bara stór sundlaugSmile. Krakkarnir skemmtu sér rosalega vel og voru í miklu atctioni(sérstaklega strákarnir mínir, hehehe), það var semsagt lítil afslöppun fyrir mömmurnar. Við fengum okkur svo að borða í Kolding store center áður en við brunuðum niður í Þýskaland. Ferðin þangað gekk nú alveg furðulega vel, fyrsta skiptið sem ég fer þangað á Jóns. Ég villtist bara einu sinni og bara lítið (hringdi í Jón, hjálp hvert á ég að faraGrin), þeir sem þekkja mig vita það ég er EKKI með innbyggt GPS tæki, langt í fráTounge. Jæja við komumst semsagt í búðina sem er með opið allan sólahringinn núna, sem var mjög heppilegt þar sem við komum ekki fyrr en um kl:20. Þarna var nú verslað smá og svo lagt í hann heim á leið eftir mjög góðan dag. Við komum ekki heim fyrr en um miðnætti, en samt voru litlu mennirnir mínir ekkert þreyttir, hmmmmSleeping.

Jóhanna mín sorry að ég var ekki hér í gærBlush. Ég hringji bara í þig á eftir.

Jæja ég ætla að hætta núna, þarf að fara og kaupa leikfimisskó á hann Kormák. Hann er að byrja í leikfimi á mánudaginnSmile.

Munið svo að vera dugleg að kvitta, það er svo gaman að sjá hver er að skoða og hvort það sé einhver tilgangur með þessu bloggiKissing.

Kossar og knús

Bergþóra og co


Hamborg:)

Okkur langað að byrja á því að óska Steinunni og Georg innilega til hamingju með giftinguna, en þau giftu sig á fimmtudaginn. Svo er það hún Ragnheiður, innilega til hamingju með afmælið á föstudaginn. Síðast en ekki síst eru það innilegar hamingjuóskir til Ágústu, Einars, Eydísar, Þórdísar og Valdísar með fjórðu dísina sem kom í heiminn á miðvikudaginnGrin.  

Þá erum við kominn heim frá Hamborg, það var nú ekkert smá gamanGrin. Við komum inn á hótelið milli 14-14:30 og fórum svo að sjálfsögðu beint út. Við ákváðum að byrja á því að skoða vaxmyndasafnið, við tókum lestina og leituðum svo að þessu, gekk nú bara furðuvelSmile. Þessi gata sem við löbbuðum eftir var nú með mjög mikið af sex búðum. Kristófer fannst þetta nú bara flott en Kormáki leist ekki mikið á þetta, hann ætlaði nú bara ekkert að koma aftur til Hamborgar það er svo mikið af þessu. Ég sagði honum að þetta væri ekki bara þarna, heldur væri þetta út um allt, þá hló hann bara og sagði ok þá ætla ég bara ekkert að horfa á þettaLoL. Vaxmyndasafnið er nú ekkert mjög stórt en við höfðum gaman af þessu. Mér fannst ég nú samt sjá á þessum að þetta var gervi, ekki eins og í London þegar maður þurfti oft að spá hvort þetta væri ekta eða ekki. Það var þarna stytta af rosalega feitum manni (hann vó mest 610kg) og svo voru styttur af nashyrningsmanni, manni með tvö andlit og manni með þrjú augu og tvö nef, Kristófer leist ekkert á þessa kalla og vildi bara fara út, okkur tókst nú samt að fá hann til að vera aðeins lengurFrownSmile. Við borðuðum svo á Asískum stað og var það algjört æði og strákarnir voru frábærir og fannst maturinn mjög góður. Kormákur sagði að það væri nú gott að hafa afa Steinar með því hann kann þýsku og við áttum erfitt með að skilja matseðlana, en þeir voru bara á þýsku en ekki enskuGrin. Strákarnir fengu svo spádómsköku þegar við vorum að fara. Kormákur fékk" One learns by failing- þú lærir af mistökunum" og Kristófer fékk "Your children have inherited your talent- börnin þín hafa erft hæfileika þína", mér fannst alveg meiriháttar að fá svonaSmile. Í dag var svo byrjað á hinum furðulegasta hótelmorgunmat sem ég hef séð. Þarna var egg og fjórir litlir beikonbitar í lítilli dollu sem þú þurftir síðan að skella í örbylgjuna til að hita það, ef þú vildir kjötálegg þá var það líka í svona dollum og þá búið að blanda einhverju brauði, ólífum, osti sem allavega við vildum ekki ofl, líkt þessu. Við enduðum á súpubrauði með sultu og smjöri, jógúrti og einni kökusneið (sem var ekki einu sinni góð) og fyrir þetta borguðum við 24 evrur. Við löbbuðum svo niður Munkbjergstrase, en  tengdamamma sagði að við yrðum nú að kíkja þangað. Ég hélt nú að ég hefði verið þar á laugardagskvöldið en þegar við komum þangað þá sá ég að það var mesti misskilningurSmile. Þetta virtist vera ein aðal verslunargatan, ég sagði nú við Jón að ég gæti alveg hugsað mér að koma þarna aftur og verslaSmile. Á leiðinni sá ég Starbukkskaffi og að sjálfsögðu var farið þangað að fá sér kaffi á leiðinni upp á hótel aftur. Við fórum í Hagenbeck dýragarðinn og vorum komin þangað kl.12 og fórum ekki út fyrr en honum var lokað kl.18 í dag. þetta var rosalega flottur garður, honum var skipt í tvo hluta tropikal og svo venjulegan. Við fórum í gegnum báða hlutana, það var svo mikið að skoða að við fengum okkur að borða einu sinni og vorum svona cirka 20 mín. Eftir það var bara labbað og skoðað, við rétt náðum að skoða allan garðinn áður en honum varð lokað. Við vorum öll alveg búin á því, en sæl og ánægð eftir alveg meiriháttar dag, við drifum okkur svo út í bíl og brunuðum heimSmile.

 

Jæja svona fór nú ferðin okkar til Hamborgar. Við setjum svo myndir inn á morgun eða hinn. Bið að heilsa Í bili.

Kossar og knús

Bergþóra og co


Það er að koma frí:)

Góðan og blessaðan daginnGrin. Grúppan hjá mér er búin að vera frekar erfið viðureignar þessa vikuna og við vorum tvær sem vorum að gefast upp, en þetta reddaðistSmile. Þessi vika er búin að vera frekar löng þar sem þetta er búið að vera svona í skólanum og ég og strákarnir bíðum eftir að komast í frí. Á morgun er svo síðasti dagur fyrir vetrarfríSmile, það er bara frábært en þetta verður nú ekki langur dagur hjá okkur í skólunum. En svo fer ég til læknis og við eigum líka tíma í klippingu þ.e.a.s ég og strákarnir. Það er nú bara ekkert smá dýrt að fara í klippingu hér, ég er að borga 700 dkr. fyrir okkur þrjúWoundering. Er það ekki rosalega dýrt? Kormákur er að fara í svona hlaup á morgun, það er svona á Íslandi líka. Þau geta valið um 4 vegalengdir sem þau geta hlaupið og ætlar Kormákur að fara minnsta hringinnTounge. Annars er ekkert að frétta af okkur núna, við erum bara búin að taka því rólega þessa vikunna. Við bíðum svo spennt eftir næstu viku og verður þá brjálað að geraGrin. Við látum svo heyra frá okkur á sunnudaginn. Eigið góða helgiCool.

Kossar og knús

Bergþóra og co


Betra er seint en aldrei:)

Elsku Árni Skúla. Innilega til hamingju með daginn á föstudaginnWizardKissing.

Það var ekkert annað sem ég vildi segja. Reyndar er eitt, mikið rosalega var gott að fá grjónagraut og SLÁTUR í kvöld.

Ragnheiður hvernig æfingabúðir voru þetta sem þú varst í á föstudaginn?

Jæja heyrumst síðar

Kossar og knús

Bergþóra og co


Róleg helgi

Litla fjölskyldan er búin að eiga afskaplega rólega helgi. Í gær fórum við í smá stund til Ástu og fengum okkur afganga úr afmælinu hennar Charlottu. Við fórum svo bara heim og höfðum það notalegt . Að sjálfsögðu voru allir duglegir að borða kvöldmatinn sinn svo við gátum fengið okkur íslenskt nammi svo seinna um kvöldiðTounge. Í dag vorum við heima á náttfötunum fram yfir hádegi, fengum okkur amerískar pönnukökur í morgunmat og vorum lötGrin. Við settumst nú svo aðeins niður og spiluðum smá Sequens. Ég reyndi nú að lesa aðeins fyrir skólann og vinna verkefni, það gengur nú ekkert allt of vel, en vonandi gengur betur í kvöld. Allt í einu fengum við svo þessa snilldar hugmynd að fara að kaupa smá jólagjafir. Þannig að við skelltum okkur niður í Kolding og fórum í Toys a rus og náðum að kaupa afmælisgjafir handa Aðalheiði og Hlyn og jólagjafir handa öllum krökkunum í fjölskyldunni nema Árna Þór. Við vorum ekkert smá ánægð með okkurSmile. Í kvöld er svo planið að reyna að skrifa eitthvað niður í verkefninu og glápa aðeins á imbann. Meira var nú ekki gert á þessu heimili um helgina.

Elsku Baldvin Ásgeir og Elísabet Heiða innilega til hamingju með nöfnin sem átti að festa við ykkur í dagHeart. Ég vildi bara að ég væri með ykkur, en við fögnum því bara hér í staðinnGrin.

Vonandi hafa allir átt góða helgi, biðjum að heilsa ykkur öllum og heyrumst síðar í vikunni.

Kossar og knús

Bergþóra og co


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband