Bloggfærslur mánaðarins, desember 2007

GLEÐILEGT ÁR

GLEÐILEGT ÁR OG TAKK FYRIR GAMLA ÁRIÐWizard

KÆR KVEÐJA FRÁ BERGÞÓRU, JÓNI, KORMÁKI, KRISTÓFER, GUÐMUNDI, INGUNNI OG ÁRNA ÞÓRWizard


Árið næstum liðið:)

Við fórum í fyrradag í Kolding Store Center að kaupa meira handa Árna. Hann keypti sér tvennar gallabuxur, cd ofl. Við fórum svo á göngugötuna í gær og keyptum eitthvað meira. Við versluðum svo í matinn fyrir morgundaginn, það var nú ekkert auðvelt þar sem það var bara kjúklingur og hamborgarhryggur. Við fundum nú samt Gæs í einni búð, en gæsin var aðeins 5,6kg (þetta ætti nú að vera nógGrin). Á nýjársdag verðum við svo með innbakaða nautalundSmile.

Við fórum til Rúnu vinkonu í dag í kaffi, við fengum smákökur og heimabakaðar bollur, mmm algjört nammiTounge. Mamma hennar, pabbi, Óskar bróðir hennar og fjölskyldan hans komu líka. Það var rosalega gaman að hitta þau, þar sem ég hef nú ekki séð foreldra hennar í næstum 10 árGrin. Takk fyrir okkur Rúna við skemmtum okkur mjög velLoL.

Við vorum að borða SS pylsur og Myllu pylsubrauð, þetta var bara gottTounge.

Jæja nú á að liggja meira í leti og kjafta meira (erum búin að gera svo lítið að því síðustu daga)Wink. Það kemur áramótakveðja á morgun.

Kossar og knús

Bergþóra og co


Frábær tími:)

Hæ allir! Mamma, pabbi og Árni komu LOKSINS í gær. Ég var aðeins of sein heim til að taka á móti þeim hérna (jón var aðeins á undan áætlun), þannig að þau sátu inni í stofu þegar við komum heim. Jón sagði strákunum að hann væri með smá óvænt, Kristófer fór í smá bakslag en Kormákur fór beint inn í stofu. Kormákur byrjaði á því að horfa á þau og svo rauk hann í fangið á afa sínum og gaf honum stórt knús, svo tóku amma og Árni við. Kristófer tók við sér þegar hann heyrði í þeim þá kíkti hann örlítið og rauk svo af staðGrin. Það sem þeir voru hissa, þetta var frábærtLoL.

Ég skil nú alveg að ykkur systrum mínum finnist skrítið að hafa þau ekki heima um áramótin, en við erum svo ánægð að hafa þau hjá okkur, hefðum helst vilja hafa báðar fjölskyldurnar hjá okkur. Við söknum allra mikið núna, þetta er auðvitað sá tími núnaErrm. En ég er viss um að allir eigi eftir að skemmta sér vel um áramótin og við ætlum að gera það líkaWizard.

Í dag fórum við til útlanda, þar sem við keyptum freyðivín, bjór, rauðvín ofl. Við keyptum líka hluta af jólagjöfinni handa strákunum frá tengdó, við fengum alveg helling fyrir peninginn. Takk æðislega fyrir strákanaGrin. Árna bróðir tókst nú að finna eitthvað á sig, en honum fannst erfitt að versla í útlandinu og vill frekar gera það í Danmörku. Jóhanna mín, mamma keypti úlpuna á Ingimund í C&A, rosaflott, getur verið vesti líkaLoL.

Jæja ég ætla að fá mé kaffi og Grand líka með hinum.

Kossar og knús

Bergþóra og co.


ÞAU ERU AÐ KOMA:)

Núna bíðum við bara spennt eftir mömmu, pabba og Árna, þau eru komin í flugvélina núnaGrin og Jón leggur bráðum af stað að sækja þau (að sjálfsögðu verður jólabjórinn með í móttökunefndinniGrin).

Við erum búin að hafa það mjög gott yfir jólin, þetta er búið að vera rólegt og notalegt. Að sjálfsögðu hefði verið ennþá betra ef við hefðum geta hitt alla fjölskylduna, við erum búin að sakna allra mikiðSmile. Það er samt ótrúlegt hvað er gott að geta talað gegnum tölvuna með myndavél, það bætir örlítið uppGrin. Við fengum fallegar og góðar gjafir, strákarnir alveg himinlifandi með allt sem þeir fengu og búnir að leika sér mikið. Kormákur gaf Kristófer Buzz, en það geta fjórir spilað í því í einu, okkur Jóni finnst voða gaman í því líkaLoL. Kristófer gaf svo Kormáki Eye toy og það er nú bara líkamsrækt í því, ekkert smá gaman líkaGrin.

Við buðum Rögnu, Kristni, Margréti og Bjarna Harald í brunch í gær og var borðað og kjaftað fram eftir degi. Strákarnir og Margrét léku sér að sjálfsögðu vel og skemmtu sér konunglegaGrin. Bjarni Harald sem er rétt mánaðargamall svaf mest allan tíman, en vaknaði þó aðeins til þess að ég gæti nú aðeins mátað, (mikið rosalega fannst mér hann lítill (rétt komin yfir 3 kg)) og til að drekkaSmile. Takk fyrir komuna þið öll, þetta var frábærtGrin.

Jæja ég ætlað að fara að dunda mér eitthvað. HAFIÐ ÞAÐ SEM ALLRA BEST.

Bergþóra og co


GLEÐILEG JÓL:)

Þá eru ekki nema 3 1/2 tími fram að jólum hjá okkur, við erum á fullu að undirbúa kvöldmatinn og eru strákarnir orðnir mjög þreyttir á að bíða eftir jólunum og opna pakkaGrin.

Þegar við vöknuðum í morgun hafði Kertasníkir fært okkur öllum pakka, Kormákur fékk Transformers myndina, Kristófer fékk Meet the Robinssons, Jón fékk Pirates of the Caribbean Deads man´s chest, og frúin á heimilinu fékk 50 firsts datesSmile. Það er verið að horfa á Meet the Robinssons og stytta sér stundir.

Við fengum okkur möndlugraut áðan og var Kormákur svo heppin að fá möndluna, í verðlaun fékk hann spilið CluedoLoL. Síðan kom mamma aðstoðarmaður Kertasníkis með pakka sem hann hafði sent okkur vegna mikilla anna á Íslandi, pakkarnir innihéldu Íþróttaálfa náttföt, ekkert smá flottGrin, takk fyrir sendinguna KertasníkirGrin.

Nicolai kom áðan með sendingu frá tengdó. Við fengum Hangikjötið fyrir morgundaginn, slátur, harðfisk, mysing og flatkökur, nammi, nammTounge. Elsku Mamma og pabbi (Vilborg og Steinar) takk æðislega fyrir okkur, þetta var frábærtGrin.

Við viljum í restina óska ykkur öllum GLEÐILEGRA JÓLA OG FARSÆLDAR Á KOMANDI ÁRIWizard.

Kossar og knús

Bergþóra, Jón Óskar, Kormákur Helgi og Kristófer IngiAlien


GULLKORN DAGSINS:)

Kormákur er nú algjör gullmoli, það verður nú bara að segja frá því sem þessum dreng datt í hug í morgunSmile. Ég heyri ekkert í Kormáki í morgun þegar hann kíkir í skóinn sinn, Kristófer segir "VÁ, ég fékk tvær mandarínur og tvo nammimola". Ég kalla á Kormák og segi "hvað fékkst þú í skóinn?", "ég fékk bara tvo nammimola", "í alvöru" segi ég, það kemur smá glott á hann og ég segi "hvaða svipur þetta", "ekkert". Ég fer að hlægja og spyr hann aftur, "ok, ég setti mína mandarínu í skóinn hjá honum á meðan hann svaf"LoL. Svo hlógum við þvílíkt, ekkert smá úrræðagóður, langaði bara ekkert í þessa mandarínuTounge.

Við skreyttum jólatréð okkar í dag, búin að fá okkur smá göngutúr niður í bæ og núna er verið að fara að skera út laufabrauðiðSmile.

Koss og knús

Bergþóra og co


Jólafrí, jeeiiiiii

Við erum komin í jólafrí, jibbi. Það var alveg frábær tilfinning að labba út frá vinnunni í dag, vitandi það að vera kominn í langt jólafríGrin. Ég reyndar var að skrifa verkefni, en ég er ekki búin með það. Mig langar að biðja leiðbeinandann minn að lesa yfir það og gefa mér komment á það, svo ég geti lokið því. Við fórum eftir vinnu og skóla í klippingu, þannig að við erum öll orðin jólahæf núnaSmile. Jón Óskar greyið fær samt alltaf bara rakstur heima, ég tími ekkert að borga fyrir hannTounge. Strákarnir eru algjörir töffarar og voru þvílíkt ánægðir þarna, fengu heitt kakó og fullt af nammiGrin.

Jón Óskar fór á julefrokost í gær með vinnunni, það er óhætt að segja að hann skemmti sér vel. Við náðum í hann upp í Arhus í nótt kl. 02:20 vegna þess að hann fann ekki lestarstöðina og ég sá að næsta lest var ekki fyrr en kl. 4, mér fannst það alltof langur tími fyrir elsku manninn minn að vera einn á flakki að leita að lestarstöðinni, þannig að við drifum okkur að ná í hannGrin. Hvað gerir maður ekki fyrir þessar elskurHeart. Það er nú líka óhætt að segja að hann hafi ekki verið við mjög góða heilsu í dag og er hann mjög þreytturSleeping.

Jæja nú er ég að fara að þvo meiri þvott og reyna að gera eitthvað af viti, eða bara vera löt, er ekki búin að ákveða migWoundering.

Kossar og knús

Bergþóra og co


Verkefni!

Mikið ofsalega er erfitt að koma sér í gang þegar maður þarf að skrifa verkefni, en ég þarf að koma mér í gang, ekki seinna en í gærWoundering. Ég fór með leikskólanum í kirkju í morgun og var það mjög gaman. Ég var samt svolítið hissa, þar sem gólfið í kirkjunni var úr svona steinum alveg eins og við notum á innkeyrslur ofl. Vel á minnst Mona leiðbeinandinn minn sendi í skólann í dag að ég væri godkendt í starfsnáminu að hennar hálfuGrin.

Kormákur var með gubbuna núnaSick(viku á eftir bróðir sínum) og fór því fyrst í skólann í dag. Hann var ekkert smá ánægður fyrst að geta verið heima, en svo var þetta lítið spennandi þegar hann fann hvað honum leið illa. Hann byrjaði kl:3 aðfaranótt mánudags og hætti ekki fyrr en að verða kl:17, greyið litla. Hann sofnaði líka þarna um fimm og svaf til 06:30 á þriðjudaginnSmile. Svo vonum við bara að við hjónin liggjum ekki yfir jólin.

Jón á bara einn dag eftir í vinnunni núna og svo er hann kominn í jólafríSmile. Við hin þurfum að vera á föstudaginn líka, sem betur fer er það stuttur dagur, hjá okkur öllumSmile.

Jæja kossar og knús

Bergþóra og co


Helgin!

Nú er helgin senn á enda (er ég ekki skáldleg núna)!

Á föstudaginn var ég á fundi með leiðbeinandanum mínum á Kernen og kennaranum úr skólanum. Þetta var fundur varðandi starfsnámið hjá mér. Mér kveið svo fyrir að ég var að deyja, mér finnst alveg hræðilegt að þurfa að tala um sjálfa mig og segja í hverju mér finnst ég vera góð í osfr. Þetta gekk nú samt svona líka vel og mér skilst nú bara að ég verði samþykkt í þessu starfsnámi. Mona leiðbeinandinn minn gat ekkert sett út á mig og kennarinn ánægður með mikla breytingu á mér sjálfri þarna uppfráGrin. Það eru nú flestir sem vita að mér fannst þetta afskaplega erfitt fyrst, bæði börnin og mér fannst starfsfólkið halda mér utan við. Núna er ég hinsvegar mjög ánægð og börnin yndisleg (en erfið)Smile. Ég var svo að loka leikskólanum ásamt annarri á deildinni og þetta var víst auðveldasti lokunardagur lengi, sagði hún þar sem öll börnin voru farinn 15:25 (hann er opinn til 16:30).

Við fengum svo Árna Skúla í mat til okkar, við drógum hann nú með okkur í Bilka og að ná í Kormák til vinar síns. Við fundum eitt hús á leiðinni sem var skreytt með einhverjum jólaseríum (þetta var eins og húsið hans Smára, í kvíslunum), ekkert smá flott. Ég segi við Jón að þetta séu örugglega Íslendingar líka. Ég labba svo inn í næsta hús og næ í Kormák og minnist að sjálfsögðu á þetta "jólahús". Hvað haldið þið? ÞETTA ERU ÍSLENDINGAR SEM EIGA HEIMA ÞARNAGrin. Danir skreyta ekki með seríum út í glugga og það er kannski eitt tré út í garði sem er með ljósi á.  Jæja við komust svo heim og áttum gott spjall við Árna og var voðalega gaman að fá hann. Takk fyrir komuna Árni, sjáumst hress á nýju ári.

Í gær hnoðaði ég upp í hvíta og brúna lagtertu, piparkökur og mömmukökur. Við skruppum svo aðeins niður í bæ og kíktum á göngugötuna. Þar var bara mikið af fólki, þannig að við fórum fljótlega heim aftur og gerðum frekar jólakóskoskúlurnar okkar. Við fórum síðan og fengum okkur pítsu og héldum svo áfram að baka þegar við komum heim.

Í dag var svo klárað að baka brúna lagtertu og piparkökur (hef nú smakkað þær betri, gerði upp úr Maturinn hennar mömmu). Við skreyttum svo einhverjar piparkökur, voða gamanTounge. Fyrir kvöldmat var svo ákveðið að skella sér í göngutúr. Við tókum vasaljós með til að lýsa okkur leiðina í myrkrinu, það var nú ekkert smá spennandiSmile.

Það er byrjað að selja flugelda hér, það er bara SMÁ verðmunur á þeim hérna og heima, td 4 millistórar rakettur á 79 dkr, hvað kostar ein heim, í kringum 1000 kr er það ekki? Get keypt svaka pakka á 299dkr. Einn pakki með 5stk, 2,5" tívolírakettum, 10 blandaðar rakettur (frekar stórar), 3stk 25 skota tertur, ein með 61 skoti og ein 16 skota terta á 499dkr. Mér finnst þetta vera stórmunur. Árni minn þú þarft semsagt ekki að hafa áhyggjur af því að við kaupum ekki nóg af bombumGrin.

Jæja ég er búin að blaðra nóg núna. Elska ykkur öllInLove.

Kossar og knús frá okkur öllum.


Vikuskýrslan!

Jæja þá er það skýrsla það sem er af vikunnar!

Það er búið að vera brjálað að gera hjá mér. Ég er að skrifa verkefni um eina stelpu á leikskólanum. Ég þarf að gera skráningu á henni fyrst og vinna út frá henni, það er nú bara ekkert svo auðveltErrm. Ég tók hana upp á video og er að vinna út frá því og svo þarf ég að gera fleiri skráningar, en samt á verkefnið bara að vera 2 síðurWoundering. Ég er semsagt að vinna í þessu núna þannig að ég verði búin með þetta fyrir jól, ég ætla að eiga frí öll jólin og ekki hugsa um skólannSmile.

Kormákur Helgi lenti nú í frekar leiðinlegu atviki í skólanum sínum í gærFrown. Það var strákur sem er í 4 bekk í heimavistarskóla og á víst mjög erfitt, hann var í sundi ásamt fleiri krökkum og kennurum (frá heimavistarskólanum) í skólanum hans Kormáks, þau nota víst þessa sundlaug annað slagið. Þessi strákur stakk af frá kennurunum og ráfaði þangað sem bekkurinn hans KHJ er. Einn spyr strákinn hvað hann heitir og hvar hann eigi heima, þetta fór í skapið hjá stráknum og greyið vissi ekki hvað hann átti að gera við skapið, þannig að hann kýlir í rúðuna á hurðinni og hún brotnar. Kormáki bregður svona líka. Þegar ég kem að ná í hann er hann að tala við eina stelpu og einn strák um þetta, þetta er það fyrsta sem þau segja þegar ég kem. Kormákur knúsar mig og segist vilja fara heim, svo hágrætur hann og sleppir mér bara ekki (hann passaði samt að krakkarnir sæju hann ekki grátaTounge). Hann jafnaði sig samt fljótlega eftir að við vorum búin að tala um þetta. En svakalegt að lenda í þessu og börn taka svona misjafnlega.

Það er nú annars ekkert um að vera hjá okkur núna, bara verkefni hjá mér.

skrifa meira um helgina, er að fara að læraGrin.

Kossar og knús.

Bergþóra og co


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband