Bloggfærslur mánaðarins, september 2007
30.9.2007 | 15:47
Fyrsta bíóferðin búin:)
Nú er helgin næstum liðin og því upplagt að segja frá henni nú. Á föstudaginn fórum við með tölvuna mín niður í El Giganten, þar var nú tekið brosandi á móti henni og hún send af stað í viðgerð, en það er reynt að gera við hana fyrst og ef það virkar ekki fæ ég nýja, tryggingin virðist ætla að borga sig, skruppum við svo í Ikea að skoða bókahillur, fundum nú eitthvað en ég get ekki ákveðið mig hvað ég vil
. Svo var bara farið heim, eldað pasta, bakað tvær tertur, drukkið smá rauðvín og bjór, og svo slappað af. Á laugardaginn var nóg að gera. Við fórum í Bilka að versla fyrir kvöldið, svo var farið beint í afmæli til hennar Charlottu en hún varð 6ára á fimmtudaginn
. Við tókum terturnar með okkur og fengum okkur gott kaffi og kjöftuðum smá. Svo var nú búið að lofa stóra stráknum okkar að spila Star Wars Monopoly, þannig að það var spilað þegar við komum heim og vann Jón það með stæl
. Svo voru frístimplarnir notaðir í að fara á Jensens buffhús
, strákarnir voru eins og englar þar og notuðu barnahornið vel
. Heim var svo farið þar sem legið var í leti það sem eftir var af kvöldinu. Kristófer var nú svolítið fyndin þegar við vorum að fara að heiman. Við setjumst öll inn í Toyotuna og Jón var búin að spyrja hvort við ættum að fara á mínum eða hans bíl. Kristófer segir svo við pabba sinn, af hverju ert þú í okkar bíl, má ég ekki koma með segir Jón, jú jú en þú getur líka elt okkur á þínum bíl, honum fannst þetta nú vera svolítið frekt af pabba hans að koma í OKKAR bíl
. Ég útskýrði svo fyrir honum að við ættum þessa bíla saman og þá var allt í lagi. Í dag var svo farið með Kormák í fyrstu bíóferðina hans í Danmörku. Ég og Kormákur fórum í bíó á Meet the Robinssons, en það er svo til nýbyrjað að sýna hana hérna. Við fórum rosa spennt að sjá hana í 3vídd, en nei Danir tíma nú ekki að eyða pening í svoleiðis vitleysu
. Við urðum nú fyrir smá vonbrigðum en þrátt fyrir það var myndin mjög skemmtileg og við skildum allt(hún var með dönsku tali)
. Á meðan við vorum í bíó fóru Jón og Kristófer að þvo bílinn, á göngugötuna og róló
. Við fórum nú bara svo heim og hér á að slappa af það sem eftir er af degi
. Ég þarf nú að lesa helst 270 bls fyrir þriðjudag, efast nú um að ég nái því, en geri mitt besta
.
Munið að kvitta eða að gera eitthvað það er svo gaman að sjá hver er að lesa.
Jæja knús og kossar.
Bergþóra og co
27.9.2007 | 16:08
ÓHEPPIN ÉG:(
Ég var nú svo óheppin rétt áðan að ég helti TE yfir tölvuna mína sem maðurinn minn gaf mér í jólagjöf. Hvað er maður að segja við börnin að þau megi ekki drekka við tölvuna og gera það svo sjálfur, aaaarrrrrrgggg
. En nú reynir á það sem Elko sagði þegar Jón keypti tölvuna. Hann keypti auka tryggingu til 2 eða 3 ára sem á að dekka hvað sem er (þó að ég hafi helt yfir hana), líka hér í Danmörku og þá í El Giganten. Við förum þangað á morgun og þá kemur það í ljós hvort þetta sé eins einfalt og þeir segja
.
En Kristófer fór í fyrsta tannlæknatímann sinn í dag. Honum leist nú ekkert of vel á þetta. Hann settist EKKI í stólinn, það var bara ekki séns og hin ástæðan var ennþá betri, þetta átti að vera karlmaður en ekki kona. Mamma þetta er ekki tannlæknir þetta er kona, já sagði ég en konur eru líka tannlæknar, nei mamma bara menn
. Annars gekk þessi ferð mjög vel, hann er með eins margar tennur og hann á að vera með, þær eru allar heilar og vel burstaðar
.
Kormákur fór í fyrstu ferðina sína með Gæslunni í dag. Hann fór í Sneglehuset og þar fengu þau að tálga spýtur með HNÍFUM og brenna einhverjar. Hann skemmti sér alveg rosalega vel og var hæstánægður þegar ég kom að ná í hann. En mamma það voru nú samt engir sniglar í Sniglahúsinu
.
Jæja eigið góða helgi og ég skrifa fleiri fréttir á sunnudaginn.
Kossar og knús
Bergþóra og co
26.9.2007 | 19:55
Bíllinn kominn:)
Nú er frúin komin á rauða fína nýja(gamla) bílinn sinn. Við fórum í kvöld og náðum í hann, mín svaka ánægð. Þegar við vorum svo að fara heim var Jón búin að færa seturnar yfir, Kristófer hleypur inn í Fordinn sem var fyrir aftan hinn ,, hvar eru seturnar,, hann var nú ekki alveg að skilja þetta
.
Annars eru dagarnir hjá okkur búnir að vera frekar rólegir. Skólinn, leik-skólinn og allt bara rólegt, en að vísu slatti af lestri hjá mér. Núna er fjörið að byrja hjá mér í skólanum. Ég er búin með allt þetta lagadót sem mér fannst svo erfitt og er kominn í pædagogik. Það er meira um uppeldi, leik barna ofl skemmtilegt. Annars þá er Kristófer Ingi að fara í fyrsta tannlæknatímann sinn á morgun. Kormákur fór til tannlæknis um daginn. Ég spurði Kormák hvað þyrfti að gera við margar tennur. Kormákur sagði ,, ekkert, tannlæknirinn sagði det er ikke noget og gaf mér tannkrem og risaeðlu,,
.
Jæja elskurnar eins og sést eru litlar fréttir núna, ég varð bara að segja ykkur að ég væri komin með bíl.
Góða nótt, sofið rótt og dreymi ykkur vel
Kossar og knús
Bergþóra og co
23.9.2007 | 19:12
Fæ bíl í vikunni:)
JÁ við keyptum bíl í gær. Við fengum Toyota corolla 98 árg, keyrð 75 þús. hún er rauð á litinn og ég á hana
.
Við erum búin að hafa það mjög gott um helgina og er hún búin að vera mjög róleg. Á laugardaginn fórum við og kíktum á bílinn, festum hann og fórum svo til Óla og Ástu. Þar var chillað í smástund og svo var farið heim og gerð pizza. Um kvöldið vorum við öll í leti fyrir framan sjónvarpið. Í dag fóru svo Jón og Óli til útlanda að kaupa bjór og rauðvín. Ég talaði við mömmu í dag og er að plata hana til að senda mér smá slátur, pítusósu, pylsur og læri. Haldið þið að sé nú fæðið sem maður saknar. Að sjálfsögðu viljum við svo Nóa siríus konfekt fyrir jólin og Hangikjöt.
Við vorum núna rétt í þessu að panta okkur hótelherbergi í eina nótt. Planið er að fara í vetrarfríinu til Hamborgar og gista þar. Kormákur er að vonum svaka spenntur, hann fær að gista á flottu hóteli. Við fundum þarna rosalega fínt hótel fyrir lítinn pening. Svo bíðum við líka spennt eftir að vita hvenær Lína kemur til okkar, hún ætlar að koma í vetrarfríinu
. Það verður brjálað að gera.
En vitið þið bara hvað? Skólinn minn er að byrja fyrir alvöru núna. Núna þarf ég að fara að lesa um 90-100 bls fyrir hvern fyrirlestur. Það þarf nú bara galdra til þess að það takist
. En þetta hlýtur nú allt að reddast.
Jæja heyrumst seinna. Munið ath.semdir og gestabók, það er svo gaman að fá comment eða eitthvað.
Kossar og knús
Bergþóra og co
21.9.2007 | 18:59
Helgin kominn, jei:)
Þá er enn ein vinnuvika búin og við EKKI búin að kaupa bíl. Við erum að fara á morgun að prufa Corollu 98 árg, keyrð 75 þkm, mér líst svo vel á hana að ég sagði Jóni að ég ætti hana
. Jón segir að við þurfum greinilega bara að fara og segja að við tökum hana
. Það er vonandi að þetta gangi upp, það sparar okkur öllum tíma. Ég er búin að ákveða það að ég ætla bara að koma of seint í skólann í næsta fyrirlestur, þá þarf ég ekki að keyra Jón meira, nenni því ekki og svo er þetta svo rosalega dýrt. Enn annars er vikan bara búin að vera þokkalega góð hjá okkur öllum. Jón er kominn á minni vél þarna uppfrá og er hann ánægður með það. Kormáki finnst gaman í skólanum en leiðist í gæslunni, því að hann er yfirleitt bara einn þar núna
. Við vonum að það lagist þegar hann fer í danskan bekk og eignast vini þar. Kristófer er orðinn alveg sáttur með að fara á leikskólann, eina sem ég þarf að gera er að kyssa og knúsa hann í klessu og þá er þetta í lagi
. Annars á bara að nota helgina í afslöppun mest heima fyrir
. Kannski kíki ég í bók þar sem ég þarf að lesa um 90 bls fyrir þriðjudag
. Ég keypti 2 bækur í dag sem kostuðu 550 dkr og fyrir þetta fag þarf ég að kaupa 7 í viðbót. Við Ásta ákváðum í dag að svindla og skipta á milli okkar þessum kaupum og ljósrita. Þetta er svakalegur kostnaður annars við hvert fag
.
Jæja nú þarf að fara að liggja fyrir framan sjónvarpið og hafa það notó.
Elskum ykkur öll
Kveðja frá
Bergþóru og co
19.9.2007 | 19:26
Miklar vangaveltur:)
Nú á að fara að kaupa sér ferð heim um næstu páska, takk fyrir. Það er um að gera þetta tímanlega, meðan það er ennþá þokkalega ódýrt. En núna er ég að velta fyrir mér hvenær við eigum að koma. Á ég að skrópa einn dag í skólanum, þar sem ég verð bara í ca 2 tíma eða koma 1 degi seinna. Það versta er að ég hef ekki hugmynd um hvernig þetta verður eftir áramót. En ég er að velta þessu fyrir mér. Ég get samt sagt ykkur það að enginn fær að vita hvenær ég kem, hehehehehe.
Ég ætlaði að fara í gær og prófa bíl, en hvað haldið þið, ég þurfti að panta tíma til þess að prófa bílinn. Ég ætlaði því að fara í dag en var ekki með góða tilfinningu gagnvart þessum stað svo við hættum við þennan bíl. En Bergþóra duglega fann svo annan bíl sem við getum ekki prófað fyrr en á föstudag
. Já það er erfitt að fá að kaupa bíl í Danaveldi.
Ég sagði ykkur frá því að við værum að fara á fund út af Kormáki síðasta föstudag, aaa false alarm. Við eigum fund 5.okt, en kennaranum lá bara svona svakalega á að fá að vita þetta, þannig að hún hringdi 2svar sama dag. Ég hélt að það hefði eitthvað komið fyrir Kormák, en nei bara að fá að vita hvort við gætum hitt þær þarna. Það er kennarinn hans og svo er pædagog líka, en hún er með þeim 3tíma á viku. Þær ætla að koma heim til okkar sem mér fannst nú stórfurðulegt. Við fórum að spá í hvort það væri bara verið að njósna um okkur því við erum útlendingar. Ég spurði því um þetta í skólanum í dag og þetta er gert reglulega í dönskum skólum. Mér finnst að það sem tilheyrir skólanum eigi að vera þar en ekki heima hjá mér
.
Jæja elskurnar mínar, núna er að koma svefntími hjá mér. Góða nótt og dreymi ykkur vel
.
Knús og koss
Bergþóra og co
17.9.2007 | 19:23
Breytt áætlun
Það var verið að breyta hjá Jóni aftur. Hann verður því miður áfram í Herning að vinna. Þessi sem vildi skipta við hann fékk heilablóðfall og kemur því ekki í einhverjar vikur. Þannig að við vitum ekki alveg hvernig þetta fer. Þessi maður er á svipuðum aldri og Jón. Ég skil bara ekki hvað er mikið af ungu fólki að fá heilablæðingu, já ég segi ungu, mér finnst ekki gamalt að vera 30ára eða 40ára. Þetta er of algengt og ég spyr. Hver er ástæðan fyrir þessu? Getum við eitthvað gert sjálf til þess að hindra að þetta komi fyrir okkur?
En ég vildi bara aðeins tjá mig um þetta mál. Annars er enginn breyting frá því síðast.
En og aftur munið að kvitta eða gera athugasemdir, það er ótrúlega gaman að sjá hver er að lesa hjá okkur.
Kossar og knús
Bergþóra og co
16.9.2007 | 16:36
Fleiri myndir:)
Núna er helgin senn á enda og ný vinnuvika að byrja.
Helgin hjá okkur er búin að vera nokkuð góð. Við fórum í afmæli til Ástu á föstudaginn. Innilega til hamingju með daginn Ásta
. Strákarnir voru heima með krökkunum þeirra og skemmtu þeir sér vel yfir pizzu og snakki. Við fórum út að borða og svo á pubbinn í eftirdrykk. Við fórum síðan á lestar-stöðina og tókum á móti Gunnhildi og Lasse, en þau voru að koma frá Íslandi. Þau voru svo yndisleg að koma með flatkökur og hangikjöt nammi,namm takk fyrir það
. Við skemmtum okkur mjög vel og ég var mjög hress. En ég var kannski of hress því að ég átti mjög slæman dag í gær
. Þar til í gærkvöldi, þá fórum við á Mc. donalds í sukkmat, svo var farið á videoleiguna og teknar myndir og haft kósy kvöld fyrir framan sjónvarpið. Ég komst að því hvað er mikið í Íslenskum mat sem maður saknar. Við vorum með pítu á fimmtudaginn og halló þetta var ekki píta það vantaði PÍTUSÓSU. Mig vantar líka cheerios, lambakjöt ofl. Ég tel bara upp smá að því sem við söknum. Í dag settum við svo inn fleiri myndir, svo var farið á rúntinn upp í Galten og til Brande að kíkja á bíla. Það var lokað á báðum stöðum en við sáum annan þeirra að utan og ætla ég að prófa hann á þriðjudaginn fyrir manninn minn. Núna er bara verið að elda góðan mat og hafa það kósy, strákarnir eru úti að leika sér og skemmta sér voða vel. Við erum að reyna að skoða flugmiða heim um næstu páska, það hækkar í hvert skipti sem við kíkjum þannig að við ætlum að kaupa þetta sem fyrst. Það versta er að það er ekki farið að selja frá Billund og það er þá líka bara einu sinni í viku. Svo er bara um að gera að láta okkur vita ef einhver ætlar að koma til okkar um jólin eða áramótin, hehehe ein bjartsýn
.
Jæja fleira var það ekki í þetta skipti. Kossar og knús
Bergþóra og co.
13.9.2007 | 20:52
Til hamingju með daginn mamma:)
Okkur langar að byrja á því að óska mömmu innilega til hamingju með daginn. Elsku mamma (amma) vonandi ertu búin að eiga góðan dag í dag. Kveðja Jón óskar og co
Það er búið að vera ágætt að gera hjá okkur þessa viku. Ég er búin að keyra Jón 3svar í vinnuna þessa vikuna. En ég get sagt ykkur það að þetta er að líða hjá, við vonum að við fáum annann bíl í næstu viku. Það verður þvílíkur léttir, okkar allra vegna
. Jón fékk þær gleðifréttir í dag að hann er að fara á minni vél sem liggur við Arhus. Það er aðeins styttra að keyra þangað og hann fær að gera eitthvað annað en að moka á búkollur
. Það er einhver sem vill frekar vera heiladauður á stórri vél en að gera eitthvað krefjandi á minni vél(Jóns orð)
.
Ég fékk loksins skólatölvuna í dag og Jón óskar er að vinna í því að setja hana upp fyrir mig. Það átti að vera búið að því, en það lá öllum svo á að fá hana að þeir ákváðu að setja allt á disk sem átti að fara inn í hana og við áttum að gera þetta sjálf. Annars hefðum við ekki fengið hana fyrr en eftir helgi.
Í gær fórum við á sensommerfest í gæslunni hjá Kormáki. Þar var okkur skipt í hópa og við látin gera einhverjar þrautir, svo var borðað. Við gátum grillað eða komið með tilbúið nesti. Við komum nú bara með kjúklingalæri, kartöflusalat og snakk, ég held að hann Kormákur minn hafi nú verið nokkuð sáttur við það. Ég og Jón vorum nú samt svolítið hissa þarna í gær
. Kennararnir voru með rauðvín og bjór(þau voru samt ekki drukkin, bara með matnum), það voru nú einhverjir fleiri með bjór, en okkur finnst að þetta eigi ekki heima á barnaskemmtun
. Við erum kannski of miklir íslendingar að þessu leiti
.
Mér var sagt að Kristófer er farin að tala smá á dönsku, duglegur. Hann bara gerir sér ekki grein fyrir því. Hann segir alltaf við mig að hann kunni ekki dönsku, samt talar hann um blomsterne sem hann var að tína og hann vaskar hendurnar
. Kormákur er alltaf jafn ánægður og við erum að fara á fund á morgun með kennaranum hans og fáum þá að vita hvernig hann stendur sig. Mig hlakkar bara til. Ég veit að sonur minn er þvílíkt duglegur
.
Jæja kossar og knús
Bergþóra, Jón, Kormákur og Kristófer
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 21:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
9.9.2007 | 19:01
Helgin búin:)
Tíminn líður allt of hratt. Helgin er búin að vera allt of fljót að líða, enda mikið að gera. Ég var í fríi í skólanum á föstudaginn og ætlaði nú að vera rosalega dugleg að taka aðeins til og læra (skil ekkert í þessum lærdómi þessa vikuna og ætla bara að fá aðstoð á morgun), ég byrja á því að koma strákunum í skóla og leikskóla, þegar heim er komið ákvað ég að byrja á lærdómnum. Ég byrja að lesa og fannst þessi lög sem við erum að lesa bæði erfið og ekkert svakalega skemmtileg, þannig að mín sofnar. Ég vakna svo við að dyrabjallan hringir og hélt að Ásta væri komin í heimsókn, nei, nei þetta var Jón kominn heim úr vinnunni, ég svaf í 3 tíma. Begga var semsagt ekkkkkkiiiiiiii dugleg, bara þreytt
. Í gær fórum við svo á fiskidaga við höfnina hér í Vejle. Þetta fannst strákunum rosalega gaman. Mér fannst þetta frekar lítið, ég held að fiskidagarnir á Dalvík séu 6 sinnum stærri
. Þarna komst ég en og aftur á því hvað foreldrar mínir eru yndislegir þegar ég fékk símtal frá þeim. Elsku mamma og pabbi takk fyrir allt, þið eruð frábær, við elskum ykkur
. Eftir fiskidagana fórum við heim og gerðum tilbúið kaffi. Við fengum Rögnu (vann með mér á Geislabaugi), Kristinn og Margréti í heimsókn. Þau voru hjá okkur fram á kvöld, þar sem við ákváðum að bjóða þeim bara í mat líka. Krakkarnir léku sér vel saman og við hin spjölluðum um allt á milli himins og jarðar. Þetta var rosa gaman og takk fyrir komuna
. Í dag buðum við Óla og Ástu í kaffi og þá var bakað aðeins meira, nammi, namm. Takk fyrir komuna, þetta var mjög gaman
.
Svona fór nú helgin okkar, við heyrumst seinna. Munið að kvitta í gestabókina.
Kossar og knús
Bergþóra og co
Bloggvinir
Eldri færslur
- Október 2010
- September 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
244 dagar til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.4.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar