21.12.2007 | 20:30
Jólafrí, jeeiiiiii
Við erum komin í jólafrí, jibbi. Það var alveg frábær tilfinning að labba út frá vinnunni í dag, vitandi það að vera kominn í langt jólafrí. Ég reyndar var að skrifa verkefni, en ég er ekki búin með það. Mig langar að biðja leiðbeinandann minn að lesa yfir það og gefa mér komment á það, svo ég geti lokið því. Við fórum eftir vinnu og skóla í klippingu, þannig að við erum öll orðin jólahæf núna
. Jón Óskar greyið fær samt alltaf bara rakstur heima, ég tími ekkert að borga fyrir hann
. Strákarnir eru algjörir töffarar og voru þvílíkt ánægðir þarna, fengu heitt kakó og fullt af nammi
.
Jón Óskar fór á julefrokost í gær með vinnunni, það er óhætt að segja að hann skemmti sér vel. Við náðum í hann upp í Arhus í nótt kl. 02:20 vegna þess að hann fann ekki lestarstöðina og ég sá að næsta lest var ekki fyrr en kl. 4, mér fannst það alltof langur tími fyrir elsku manninn minn að vera einn á flakki að leita að lestarstöðinni, þannig að við drifum okkur að ná í hann. Hvað gerir maður ekki fyrir þessar elskur
. Það er nú líka óhætt að segja að hann hafi ekki verið við mjög góða heilsu í dag og er hann mjög þreyttur
.
Jæja nú er ég að fara að þvo meiri þvott og reyna að gera eitthvað af viti, eða bara vera löt, er ekki búin að ákveða mig.
Kossar og knús
Bergþóra og co
19.12.2007 | 15:29
Verkefni!
Mikið ofsalega er erfitt að koma sér í gang þegar maður þarf að skrifa verkefni, en ég þarf að koma mér í gang, ekki seinna en í gær. Ég fór með leikskólanum í kirkju í morgun og var það mjög gaman. Ég var samt svolítið hissa, þar sem gólfið í kirkjunni var úr svona steinum alveg eins og við notum á innkeyrslur ofl. Vel á minnst Mona leiðbeinandinn minn sendi í skólann í dag að ég væri godkendt í starfsnáminu að hennar hálfu
.
Kormákur var með gubbuna núna(viku á eftir bróðir sínum) og fór því fyrst í skólann í dag. Hann var ekkert smá ánægður fyrst að geta verið heima, en svo var þetta lítið spennandi þegar hann fann hvað honum leið illa. Hann byrjaði kl:3 aðfaranótt mánudags og hætti ekki fyrr en að verða kl:17, greyið litla. Hann sofnaði líka þarna um fimm og svaf til 06:30 á þriðjudaginn
. Svo vonum við bara að við hjónin liggjum ekki yfir jólin.
Jón á bara einn dag eftir í vinnunni núna og svo er hann kominn í jólafrí. Við hin þurfum að vera á föstudaginn líka, sem betur fer er það stuttur dagur, hjá okkur öllum
.
Jæja kossar og knús
Bergþóra og co
16.12.2007 | 20:41
Helgin!
Nú er helgin senn á enda (er ég ekki skáldleg núna)!
Á föstudaginn var ég á fundi með leiðbeinandanum mínum á Kernen og kennaranum úr skólanum. Þetta var fundur varðandi starfsnámið hjá mér. Mér kveið svo fyrir að ég var að deyja, mér finnst alveg hræðilegt að þurfa að tala um sjálfa mig og segja í hverju mér finnst ég vera góð í osfr. Þetta gekk nú samt svona líka vel og mér skilst nú bara að ég verði samþykkt í þessu starfsnámi. Mona leiðbeinandinn minn gat ekkert sett út á mig og kennarinn ánægður með mikla breytingu á mér sjálfri þarna uppfrá. Það eru nú flestir sem vita að mér fannst þetta afskaplega erfitt fyrst, bæði börnin og mér fannst starfsfólkið halda mér utan við. Núna er ég hinsvegar mjög ánægð og börnin yndisleg (en erfið)
. Ég var svo að loka leikskólanum ásamt annarri á deildinni og þetta var víst auðveldasti lokunardagur lengi, sagði hún þar sem öll börnin voru farinn 15:25 (hann er opinn til 16:30).
Við fengum svo Árna Skúla í mat til okkar, við drógum hann nú með okkur í Bilka og að ná í Kormák til vinar síns. Við fundum eitt hús á leiðinni sem var skreytt með einhverjum jólaseríum (þetta var eins og húsið hans Smára, í kvíslunum), ekkert smá flott. Ég segi við Jón að þetta séu örugglega Íslendingar líka. Ég labba svo inn í næsta hús og næ í Kormák og minnist að sjálfsögðu á þetta "jólahús". Hvað haldið þið? ÞETTA ERU ÍSLENDINGAR SEM EIGA HEIMA ÞARNA. Danir skreyta ekki með seríum út í glugga og það er kannski eitt tré út í garði sem er með ljósi á. Jæja við komust svo heim og áttum gott spjall við Árna og var voðalega gaman að fá hann. Takk fyrir komuna Árni, sjáumst hress á nýju ári.
Í gær hnoðaði ég upp í hvíta og brúna lagtertu, piparkökur og mömmukökur. Við skruppum svo aðeins niður í bæ og kíktum á göngugötuna. Þar var bara mikið af fólki, þannig að við fórum fljótlega heim aftur og gerðum frekar jólakóskoskúlurnar okkar. Við fórum síðan og fengum okkur pítsu og héldum svo áfram að baka þegar við komum heim.
Í dag var svo klárað að baka brúna lagtertu og piparkökur (hef nú smakkað þær betri, gerði upp úr Maturinn hennar mömmu). Við skreyttum svo einhverjar piparkökur, voða gaman. Fyrir kvöldmat var svo ákveðið að skella sér í göngutúr. Við tókum vasaljós með til að lýsa okkur leiðina í myrkrinu, það var nú ekkert smá spennandi
.
Það er byrjað að selja flugelda hér, það er bara SMÁ verðmunur á þeim hérna og heima, td 4 millistórar rakettur á 79 dkr, hvað kostar ein heim, í kringum 1000 kr er það ekki? Get keypt svaka pakka á 299dkr. Einn pakki með 5stk, 2,5" tívolírakettum, 10 blandaðar rakettur (frekar stórar), 3stk 25 skota tertur, ein með 61 skoti og ein 16 skota terta á 499dkr. Mér finnst þetta vera stórmunur. Árni minn þú þarft semsagt ekki að hafa áhyggjur af því að við kaupum ekki nóg af bombum.
Jæja ég er búin að blaðra nóg núna. Elska ykkur öll.
Kossar og knús frá okkur öllum.
13.12.2007 | 15:23
Vikuskýrslan!
Jæja þá er það skýrsla það sem er af vikunnar!
Það er búið að vera brjálað að gera hjá mér. Ég er að skrifa verkefni um eina stelpu á leikskólanum. Ég þarf að gera skráningu á henni fyrst og vinna út frá henni, það er nú bara ekkert svo auðvelt. Ég tók hana upp á video og er að vinna út frá því og svo þarf ég að gera fleiri skráningar, en samt á verkefnið bara að vera 2 síður
. Ég er semsagt að vinna í þessu núna þannig að ég verði búin með þetta fyrir jól, ég ætla að eiga frí öll jólin og ekki hugsa um skólann
.
Kormákur Helgi lenti nú í frekar leiðinlegu atviki í skólanum sínum í gær. Það var strákur sem er í 4 bekk í heimavistarskóla og á víst mjög erfitt, hann var í sundi ásamt fleiri krökkum og kennurum (frá heimavistarskólanum) í skólanum hans Kormáks, þau nota víst þessa sundlaug annað slagið. Þessi strákur stakk af frá kennurunum og ráfaði þangað sem bekkurinn hans KHJ er. Einn spyr strákinn hvað hann heitir og hvar hann eigi heima, þetta fór í skapið hjá stráknum og greyið vissi ekki hvað hann átti að gera við skapið, þannig að hann kýlir í rúðuna á hurðinni og hún brotnar. Kormáki bregður svona líka. Þegar ég kem að ná í hann er hann að tala við eina stelpu og einn strák um þetta, þetta er það fyrsta sem þau segja þegar ég kem. Kormákur knúsar mig og segist vilja fara heim, svo hágrætur hann og sleppir mér bara ekki (hann passaði samt að krakkarnir sæju hann ekki gráta
). Hann jafnaði sig samt fljótlega eftir að við vorum búin að tala um þetta. En svakalegt að lenda í þessu og börn taka svona misjafnlega.
Það er nú annars ekkert um að vera hjá okkur núna, bara verkefni hjá mér.
skrifa meira um helgina, er að fara að læra.
Kossar og knús.
Bergþóra og co
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 20:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
9.12.2007 | 20:38
Afmæliskveðja:)
Ég vissi að ég var að gleyma einhverju í gær, ég er pínu skrítinn þessa dagana.
Til hamingju með daginn Einar! Vonandi áttuð þið góðan dag öll sömul.
Kossar og knús
Bergþóra og co.
9.12.2007 | 11:17
Helgin að verða búin!
Ótrúlegt hvað frídagarnir eru alltaf fljótir að líða, en ein helgin að verða búin. Á föstudaginn fórum við niður í bæ að kaupa jólagjafir og ég held að okkur hafi tekist að klára listann
. Við keyptum jólagjöfina frá mömmu, pabba og Árna Þór á föstudaginn og var ákveðið að taka hana strax í notkun, þannig að við keyrðum til Horsens á jólamarkað og jólagjöfin virkaði svona líka vel
. Elsku mamma, pabbi og Árni takk æðislega fyrir okkur, þetta er alveg meiriháttar tæki, þið eruð frábær
. 1000 kossar og knús
. Við eyddum svo föstudagskvöldinu í lærdóm, tiltekt og smá afslöppun.
Í gær kláruðum við loksins að setja upp allt jólaskraut, þrifum allt og gerðum voða jólalegt og fínt hjá okkur (fyrir utan jólatréð). Óli og Ásta lánuðu okkur lítið borðstofuborð þannig að það er bara flott stofan okkar núna, takk fyrir það. Við fengum svo Rúnu, Mads og Emmu í mat til okkar í gær. Við borðuðum graflax,rækjur og íslenskt lambalæri, þetta var bara gott
. Við fengum okkur að sjálfsögðu rauðvín og jólabjór með
. Við töluðum um allt og ekkert, alveg hrikalega kósý hjá okkur. Takk æðislega fyrir komuna, það var gaman að fá ykkur.
Í dag er svo planað að vera bara heima, læra og hafa það notó. Kormákur er með vin sinn í heimsókn, hann var ekkert smá ánægður þegar það var hringt í hann í morgun og hann spurður hvort hann vildi leika. Kristófer vill baka þannig að það er aldrei að vita hvað við gerum
. Ég get sagt ykkur það að ég baka aldrei svona snemma fyrir jólin aftur, það er allt að verða búið
.
Maður á aldrei að vera feimin við að kvitta og gera athugasemdir við færslu, þetta bítur ekki.
Jæja knús og kossar
Bergþóra og co
Bloggvinir
Eldri færslur
- Október 2010
- September 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
130 dagar til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (16.8.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 806
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar