3.11.2007 | 19:39
Halló!
Við fórum á foreldrafund hjá Kristófer Inga í gær, það er venja að kalla inn foreldra hjá tvítyngdum börnum eftir þrjá mánuði til að ræða framfarir þeirra. Þetta gekk alveg mjög vel, hún finnur að hann meðtekur alveg helling, en hann er ekki alveg tilbúin að nota dönskuna mikið á krakkana. Hann talar aftur á móti mikið við starfsfólkið og skilur orðið yfirleitt allt, stundum þarf að útskýra hlutina fyrir honum en þá kveikir hann strax. Hann virðist líka vera feiminn, já ég sagði að Kristófer væri feiminn. Hann vill allavega ekki taka mikinn þátt í leikfimi þegar það eru margir, en svo þegar það eru svona 6-7 saman í hóp þá er það fínt. Hann er mikið fyrir músíkina og syngur mikið þar, hann syngur nú líka bara dönsku löginn hérna heima
, ég er farinn að halda að hann muni ekki mikið af þeim íslensku
.
Við fórum í gær og í dag í jólagjafaleiðangur, það gekk nú alveg furðuvel og tókst okkur að klára mestallt. Nú er bara að pakka inn, klára jólakortin og senda þetta til Íslands. Við fórum að versla í Kolding í gær en fengum okkur rúnt alveg í Esbjerg í dag (um 90-100 km), það er flott göngugata þar og við ákváðum að þangað yrði farið aftur á góðum sumardegi
. Á leiðinni heim var komið við á videoleigunni og TMNT myndin tekinn á leigu, núna er svo verið að fara að horfa á hana. Við prófuðum Lambalundir frá nýja sjálandi, gerðum appelsínusósu með og drukkum rauðvín. Þessar lambalundir voru bara mjög góðar og fundum við ekkert "ullarbragð" (mér persónulega finnst nú samt íslenska lambakjötið betra)
.
Elsku mamma takk æðislega fyrir blaðið, er að fara að skoða það almennilega, en líst samt mjög vel á það.
Jæja er að fara að horfa á TMNT, heyrumst síðar.
Kossar og knús
Bergþóra og co
31.10.2007 | 19:18
Höfuðverkur:(


Ég var nú ekki búin að segja ykkur frá því að ég er svo heppin að staðurinn sem ég verð í starfsnámi hjá er með LOKAÐ milli jóla og nýárs, þannig að maður fær bara ansi gott jólafrí.
Það er annars búið að vera rólegt það sem af er vikunnar. Við strákarnir erum að gera nokkur jólakort, þeir vildu sjálfir gera nokkur og eru þau bara flott. Svo er nú stefnt að því að gera eitthvað öðruvísi jólaföndur líka, það verður nú bara gaman
. Maður bíður svo bara spenntur eftir sendingu frá mömmu. Hún keypti kökublaðið hjá Gestgjafanum handa mér, það blað hjá Gestgjafanum er í miklu uppáhaldi hjá mér, fullt af góðum hugmyndum fyrir jólin (ekki bara uppskriftir)
.
Elsku Jóhanna mín. því miður þá get ég ekki bloggað á hverjum degi, það yrði 2- 6 línur og svo búið. Það gengur allt sinn vanagang hér með skóla, vinnu og allt þetta. Kannski get ég skrifað meira þegar ég er byrjuð í praktik, hver veit.
Elska ykkur og ég skrifa meira um helgina.
Kossar og knús
Bergþóra og co
28.10.2007 | 17:02
Líður tíminn hratt eða hvað?
Halló! Við erum búin að skipta yfir á vetrartímann núna og er þá klukkutími á milli í stað tveir. Strákarnir voru að spyrja mig um daginn hvenær við ætlum að baka fyrir jólin, ég sagði að við þyrftum ekkert að flýta okkur með það, það er nú bara október. En það er nú að koma NÓVEMBER, rétt tæplega tveir mánuðir fram að jólum
. Þannig að maður fer að hugsa sig um eftir svona tvær vikur, til að allt verði tilbúið fyrir aðventuna
. Mér finnst bara tíminn fljúga áfram og maður veit bara ekkert hvað verður af honum, það er bara púff og hann er farinn
.
Við fórum að versla í gær og þá keyptum við jólapappír, jólakort ofl. Næstu helgi er svo planað að kaupa restina af þeim gjöfum sem eiga að fara til Íslands. Það þarf að senda þá tímanlega þar sem afmælisgjafirnar handa Aðalheiði og Hlyni fylgja með.
Við fengum Elísabet og Nicolai í mat í gær, strákarnir himinlifandi þar sem þau voru svo dugleg að fíflast í þeim. Þetta var rosalega gaman, spjallað um allt og drukkið rauðvín og bjór. Takk æðislega fyrir komuna og góða ferð heim
.
Dagurinn í dag er svo búin að vera hinn rólegasti. Við fórum á rúntinn upp í Give og spjölluðum aðeins þar (alltaf gaman að koma þangað), keyrðum svo heim og er verið að vinna í því að liggja í leti það sem eftir er kvöldsins og það er nú ekkert smá vinna get ég sagt ykkur,hehehehe
.
Jæja gaman að sjá hvað þið eruð búin að vera dugleg að kvitta núna. það er svo miklu skemmtilegra fyrir mig að skrifa þegar ég fæ einhver viðbrögð hjá ykkur.
Kossar og knús
Lille familien i Vejle
27.10.2007 | 10:55
Viðtalið búið:)
Ég fór í viðtalið í gær út af starfsnáminu og gekk það mjög vel, ég verð með góðan vinnutíma, er alltaf búin 12:30 á föstudögum þannig að það er frábært. Við erum með 5 börn á deildinni og það er 2-3 kennarar á deildinni, það er bara leyfilegt að vera með 2 börn á mann þegar þau eru svona fötluð. Mig hlakkar mjög mikið til núna og er ég með góða tilfinningu fyrir þessum stað
.
Svo var nú farið í partý í gær hjá einni úr bekknum, þar komst ég að því að kærastinn hennar er að fara í starfsnám í gæslunni hjá Kormáki, honum fannst það nú svolítið sniðugt þegar ég sagði honum það. En Jóhanna mín þér til sárra vonbrigða gerði ég mig ekki að fífli í partýinu
. Það var mjög gaman og var sungið mikið í singstar (reyndar ekki ég). Það var reyndar farið í einhvern drykkjarleik, hann var mjög skemmtilegur, kannski kenni ég einhverjum hann næst þegar við komum á klakann
.
Ég er búin að vera að undirbúa aðeins kvöldmatinn núna, Elísabet og Nicolai eru að koma í mat og verðum við með fylltar svínalundir handa þeim. Strákarnir eru búnir að vera leika sér inni í stofu og skemmta sér rosalega vel og svo allt í einu duttu þeir báðir og Kristófer fær smá rispu á sig. Hann vill endilega setja kalt vatn á þetta, en honum til sárra vonbrigða gengur það ekki, hann "meiðir" sig ennþá og verður að fá plástur (er nýbúin að kaupa spidermann og Disney plástra), hann haltrar inn í stofu og ég segi við hann "ertu alveg stórslasaður", " já mamma, ég held að ég þurfi að fá hjólastól". Jón var núna búin að biðja Kristófer að hætta einhverju þrisvar sinnum og ekki var hlustað, jón segir " veistu hvað orðið HÆTTU þýðir Kristófer", "já, hættu" (ég sprakk úr hlátri), "hvað annað" spyr Jón, "lad være" segir Kristófer, þarna átti Jón svolítið erfitt með sig og sagði bældum hlátri á ÍSLENSKU "óó, stopp"
.
Jæja erum að fara að versla, heyrumst seinna og haldið áfram að vera svona dugleg að kvitta.
Eigið góða helgi. Kossar og knús
Bergþóra og co
25.10.2007 | 16:18
Hææææææ!!!!!!!
Góðan og blessaðan daginn!
Það er nú ekki búið að vera mikið um að vera þessa vikuna, því það er búið að vera brjálað hjá mér í skólanum og verður alla næstu viku líka. Kormákur var í Legolandi með skólanum í dag, og það er miklu skemmti-legra heldur en að vera með mömmu og pabba
. Annars gengur honum orðið vel í dönskunni og segir að í dag hafi hann "snakked perfekt dansk"
. Kristófer segir ennþá að hann kunni ekki dönsku og tali bara íslensku á leikskólanum
.
Jón var í óvæntu fríi í gær og fór þá í Ikea að kaupa bókahillur og tókst okkur að tæma 4 kassa í viðbót (kannski verðum við búin að tæma alla kassana eftir árið, enn það verður að koma í ljós, hehehehe).
Á morgun er ég að fara í viðtal á leikskólann sem ég fer í starfsnám hjá, enn það byrjar 5. nóv. Hlakka til þess en kvíði samt fyrir líka. Þessi leikskóli er bara með fötluð börn, sum eru mikið fötluð enn önnur mjög lítið. Ég veit reyndar ekki hvort þau séu andlega fötluð eða "bara" líkamlega, ef maður má segja það. Jens sem sér um starfsnámið í skólanum hjá mér sagði í dag að fyrst gæti þetta verið mjög erfitt, sérstaklega ef maður hefur ekki umgengist fötluð börn. Ég sagði að ég hefði nú ekki gert mikið af því, nema þá hann Hlyn minn, sem er nú mjög duglegur. Enn ég held að þetta eigi jafnvel eftir að styrkja mig sem persónu
.
Á morgun er ég svo að fara í bekkjarpartý, það verður nú örugglega gaman. Ég er meira að segja búin að plata hann Jón til þess að keyra mig og sækja. Maður verður nú að fá sér smá öl.
Alveg rétt ég var næstum búin að gleyma einu. ÉG þurfti að fara upp á svið í fyrirlestrinum í morgun og leika, "ÉG" þið sem þekkið mig getið ímyndað ykkur hvað það var erfitt fyrir mig, eins gott að ég var með meik á mér, þá sá enginn hvað ég var rauð í framan. Þetta reddaðist samt allt og ég talaði bara íslensku. Við vorum að sýna fram á það hvað er auðvelt að mistúlka fólk ef þú skilur ekki málið. Enn þetta hafðist og eins og sést þá er ég enn á lífi
.
Jæja elskurnar mínar ekki gleyma að kvitta, það er svo miklu skemmtilegra fyrir mig. Heyrumst seinna og þá læt ég ykkur vita hvort ég hafi nokkuð gert mig að fífli í partýinu, hehehe.
Kossar og knús
Bergþóra og co
21.10.2007 | 16:30
Vetrarfríið búið:(
Jæja, þá er það helgarfærslan okkar. Á föstudaginn fórum við upp í Silkiborg í heimsókn til Rögnu og co. Þar vorum við í kaffi og kvöldmat, allt alveg rosalega gott. Við kjöftuðum og krakkarnir voru að leika sér í Buzz (playstation), Jón þurfti aðeins að hjálpa Kristófer og festist nú bara aðeins í þessu, hehehehe
. Takk fyrir æðislega fyrir okkur
.
Í gær fengum við svo Elísabetu, Nicolai og Alexander í heimsókn. Þau komu frá Íslandi á föstudag og var ákveðið að leifa strákunum aðeins að hittast og leika. Takk fyrir komuna, þetta var rosalega gaman. Þau komu með sendingu frá mömmu og pabba með sér, við fengum lambalæri,mmmm nammi, ORA grænar baunir, swiss miss og ýmislegt fleira. Elsku mamma og pabbi, takk æðislega fyrir okkur.
Í dag var svo sofið til 10 og brunað í Legoland til að hitta Elísabetu, Alexander, Nicolai og foreldra hans, systur og börnin hennar. Við eyddum deginum þar og skemmtum okkur konunglega. Þegar heim var komið fóru strákarnir að kubba með nýju Legokubbunum hans Kristófers og setja saman Bionocle kall sem Kormákur fékk.
Þetta er semsagt búin að vera ansi góð helgi hjá okkur og nóg að gera. Svo er bara að fara snemma í rúmið í kvöld, þar sem það er skóli og vinna hjá öllum á morgun. Okkur strákunum finnst þetta frí hafa flogið áfram og vildum gjarnan vera aðeins lengur, enn maður fær það víst ekki
.
Kossar og knús
Bergþóra og co
Bloggvinir
Eldri færslur
- Október 2010
- September 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
129 dagar til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.8.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar