Frábær helgi:)

Litla fjölskyldan er nú búin að eiga alveg frábæra helgiSmile. Á föstudaginn kíktum við í bæinn á Vejle byfest. Þar voru lokaútsölur og allar búðir með opið til 22:00. Það voru fullt af sölubásum úti (líka með öli) og var hægt að gera mjög góð kaup. Við nýttum okkur nú ekkert þar sem okkur vanhagar ekki um neitt. Það voru ýmis skemmtiatriði á göngugötunni sem var mjög gaman að fylgjast með. Indjánarnir létu sig ekki vanta. Þeir eru allstaðar þar sem eitthvað er um að vera og reyna að selja diskana sína. Það gengur nú alveg bara mjög vel hjá þeim. Strákarnir elska að hlusta á þá og vilja helst ekki fara, það er dansað með og allar græjurGrin. Í gær fórum við svo í Legoland þar sem er alltaf jafngaman. Við fórum að sjálfsögðu í fullt af tækjum og fórum svo heim þega byrjaði að rigna 5 tímum seinnaSmile. Þegar heim var komið var eldað og svo haft rólegt og kósý kvöld heima. Í dag var svo ákveðið að láta Ástu og Óla hafa svolítið fyrir okkur. Við fórum og fengum nýbakaða skúffuköku og gersnúða, nammi,namm, takk fyrir okkurHappy.

Ég var að reyna að tala við Jóhönnu áðan bæði í gegnum msn og skype, en þetta var nú meira vesenið. Við vorum að tala í gegnum tölvurnar og reyna að hafa webcameruna í gangi. Stundum heyrðum við og sáum ekkert, svo heurðum við og sáum, svo sáum við en heyrðum ekkert og svo eftir svona næstum 1 tíma gáfumst við upp. Núna sit ég og skrifa hér og bíð eftir að hún hringi bara í migSmile.

Jæja elskurnar takk fyrir að vera dugleg að kvitta. Keep up the goodworkWink

Ég segi ykkur meira seinna, en sennilega ekki fyrr en á fimmtudag.

Kossar og knúsInLove

Bergþóra og co   


Halló:)

Halló allir mínir fuglar!

Ég er búin að vera pínu upptekinn í skólanum. Var á fyrirlestri í gær og grúppuvinnu í dag og bekkjartíma. Þetta gekk nú allt furðuvel og skildi bara alveg stóran meirihlutaSmile. Það er nú aldrei mikið um skólann að segja, þetta gengur alltaf eins fyrir sig. Mér fannst nú samt svolítið sniðugt það sem kennarinn sagði í dag. Hann var að leiðbeina okkur hvernig væri best að skipuleggja grúppurnar okkar og áttum við að byrja á því að segja hvernig við vildum hafa þetta. Hann sagði að við ættum að skipuleggja okkur þannig að við myndum aldrei þurfa að vinna saman á kvöldin eða um helgar. Við ættum að vinna á vinnutíma en ekki á frítíma, Semsagt frá 8-9 á morgnanna til 15-16 á daginn, ef við þyrftum að gera einhverja einstaklingsvinnu þá gætum við gert hana þegar við viljum. Mér finnst þetta mjög gott, því að þá getur maður verið með fjölskyldunni á kvöldinn og um helgar án þess að vera með eitthvað hangandi yfir sérSmile.

Við erum að fara á bæjarhátíð í kvöld (ef það fer ekki að rigna aftur á okkur). Þar eru búðirnar með opið til 22:00 með svaka tilboð, það eru einhver skemmtiatriði og tónleikar. Þetta verður allavega svaka stuð ef veðrið verður gott.

Jæja ég skrifa næst þegar ég hef eitthvað að segja. Það fer allt í hversdagleikann á endanum og þá minnka nú frásagnirnar. Ég læt ykkur nú vita um leið og eitthvað skemmtilegt gerist eða bara ef eitthvað geristSmile. Nú er best að gera smá fínt þannig að ég þurfi ekki að gera það á morgun og fara svo í bæinn.

Kossar og knúsHeart

P.S munið að kvitta í gestabókina


Fyrsti fyrirlesturinn búinn:)

Ég fór í fyrsta fyrirlesturinn minn á þriðjudaginn. Ég skildi nú bara allt alveg þokkalega. Við fengum svo spurningar sem við áttum að vinna bæði sjálf og svo með hópnum okkar. Ég hitti hópinn minn í morgun þar sem við vorum að ræða hvað okkur fannst um fyrirlesturinn. Ég get sagt ykkur það að út af því að ég var ekki sammála einni stelpunni,þá hélt ég að hún mundi éta mig lifandi Frown. En ég komst í gegnum þetta þokkalega ósködduð ( að ég held)Smile. Það er annar fyrirlestur á morgun og það verður spennandi að sjá hvað kemur út úr honum.

Það er allt voða fínt hjá strákunum, nema Kormáki finnst best að vera á Íslandi þar sem hann getur talað sitt tungumál og leikið við Ingimund Grin. Hann er nú samt voða ánægður í skólanum, og skilur allt sem er sagt við hann. Hann og Cristian sem hann kynntist í gæslunni eru eins og samlokur og hafa verið það frá fyrsta degi. Kennarinn þar sagði að þetta hafi verið eins og kubbar sem smullu bara svona vel saman. Kristófer virðist ekki vera með neinn ákveðinn vin heldur er hann bara með þeim sem hentar honum í hvert skipti Wink.

Ég gleymdi nú að segja ykkur frá kynningardeginum sem var í skólanum á föstudaginn. Þetta var svaka stuð og voru öll valföginn kynnt fyrir okkur. Við fórum að leira, elda á báli pönnukökur, snúrubrauð, súpu ofl. Við vorum send í leikfimi, söng og endurvinnslu. Endurvinnslan er með lítið hús þar sem er safnað allskonar drasli og svo er börnunum boðið að koma og þau mega búa til það sem þau vilja úr draslinu. Þetta var mjög skemmtilegt og ég set nú inn myndir frá því seinna.

Annars er ekkert annað núna. Heyri í ykkur seinna

Kossar og knúsHeart

Bergþóra og co


Loksins komnar myndir

Núna eru loksins komnar inn myndir, njótið vel.

Það er búin að vera frekar róleg helgi hjá litlu fjölskyldunni. Á föstudag fórum við á miðaldarhátíð í Horsens. Við erum 20 mín að keyra þangað, þannig að við ákváðum að skella okkur. Riddarnir voru ekkert smá flottir. Hestarnir klæddir upp á og voða flottir. Þarna voru ýmis skemmiatriði og uppákomur. Við sáum burtreiðar og það fannst nú strákunum spennandi. Við skemmtum okkur alveg konunglega. Á laugardaginn fórum við á rúntinn niður í bæ og náðum okkur í tvær myndir á videoleigunni. Þegar við komum heim elduðum við góðan mat og fengum okkur rauðvín með. Síðan var horft á dvd og fengið smá nammi og popp. Í dag sunnudag er svo ekkert búið að gera að ráði. Við settum inn myndir, bökuðum pönnukökur og höfðum það bara rólegt. Ég er svo í fríi úr skólanum á morgun og þá ætla ég að lesa fyrir skólann og njóta dagsins með Kristófer, en hann ætlar að fá að vera í fríi. Annars held ég að þetta sé allt núna.

Kossar og knús

Bergþóra og co  


Ýmislegt

Jæja þá eru nokkrir dagar búnir í skólanum og hefur þetta nú gengið misvel. Sumt er vel skilið og annað ekki Woundering. Ég er yfirleitt mjög ánægð með bekkinn minn en auðvitað er alltaf einhver sem er leiðinlegur, ég hef sem betur fer bara fundið eina svoleiðis í bekknum Smile. Okkur er svo skipt í grúppur og það eru sex í hverri, við vinnum svo saman í allan vetur í verkefnum og annað. Þetta er frábær grúppa sem ég er í og við náum vel samanGrin. Á morgun er svo einskonar busun, en ég segi ykkur nánar frá henni síðar, það verður örugglega mjög gaman LoL.

Kormákur er ennþá mjög ánægður í skólanum. Hann er búin að eignast nokkra vini, vinum hans finnst nú voða spennandi að tala ensku við hann og honum finnst það nú ekki leiðinlegtWink. Kormákur er líka búin að fá eina vinnubók sem hann má nú bara gera í þegar honum langar. En að sjálfsögðu setur mamma hans markmið með það, þannig að hún verði nú einhverntíma búin.

Kristófer gengur bara vel á leikskólanum og er hann farinn að segja nokkur dönsk orðSmile. Hann segir nú samt við okkur að hann skilji ekki dönsku, svo koma nokkur orð þegar ég næ í hann án þess að hann fatti það. Í dag þegar ég náði í hann var hann að skoða köngulló með einum kennaranum, hann hleypur til mín og segir ,,mamma, mamma sjáðu edderkop,,. Mér finnst þetta alltaf skemmtilegt þegar það kemur svona, því að þá veit ég að honum líður vel þarna og hann reynir að tala við fólkið.

Okkur finnst nú öllum erfitt þegar við þurfum að vakna klukkan 4:30 og keyra húsbóndan á heimilinu til vinnu svo við getum haft bílinn. þetta eru nú 4 tímar á dag. Við keyrum hann bara ef ég þarf að mæta klukkan 8 annars get ég tekið lestina( sem betur fer er það bara einn dagur í næstu viku). Ég fór með lestinni á þriðjudaginn í skólann, fékk svo far til baka að leikskólanum. Ég skrái Kristófer út kl:13:45, förum svo með strætó að ná í Kormák. Þegar allt ferðalagið okkar er búið og við komum heim var kl:16:45. Við vorum bara þreytt og lentum í þrumum og grenjandi rigningu á leiðinni heim. Þannig að þegar heim var komið (þrátt fyrir hitan úti) fengum við okkur heitt kakó með sykurpúðum og höfðum það gott Smile.

Jæja elskurnar ég er farinn að geispa alveg svakalegaGasp. Ég ætla að reyna að vera dugleg að setja inn einhverjar myndir um helgina. Þannig að ég segi ykkur frá helginni síðar líkaSmile.

Góða nóttSleeping

KossarKissingog knús

Bergþóra og co


Skólinn byrjaður

Fyrsti skóladagurinn gekk nú alveg ágætlega. Ég var nú samt smá stressuð, eiginlega alveg hrikalega stressuð. Ég gat varla borðað morgunmat Errm. En þegar ég var kominn og við vorum aðeins byrjuð gekk nú bara fínt og stressið fór Smile. Ég fékk samt ekki tölvuna í dag, hún var víst einhversstaðar á leiðinni. Við fáum nýjustu týpuna frá HP, það er víst svaka flott tölva. Dagurinn okkar byrjaði á því að við vöknuðum kl 4:30 og keyrðum Jón í vinnuna. Stráka greyinn mín voru teknir á náttfötunum og með sæng út í bíl, þannig að þeir sváfu nú á mestalla leiðina. Svo þegar við komum heim voru þeir klæddir og fengu morgunmat og allt gert klárt fyrir skóla og leikskóla. Jæja í fyrst skipti var hann Kristófer minn ekki ánægður að fara á leikskólann, hann grét bara þegar ég skildi hann eftir, mamma hans átti nú mjög erfitt að skilja hann svona eftir Frown. En þetta lagaðist að sjálfsögðu fljótlega. Ég kom svo að ná í hann um 15 og þá var hann nýbúinn að spyrja einn kennarann "hvor er min mamma", mér fanst það frábært hjá honum Grin. Kormákur byrjaði svo í gæslunni í dag og kynntist þar einum dönskum strák sem var að sýna honum allt í gæslunni, svo var þarna íslensk stelpa sem heitir Klara, hún hjálpaði til ef það voru einhverjir tjáningarörðuleikar. Þegar ég kem svo að ná í hann þá var hann svo ánægður og ljómaði allur og dagurinn var bara frábær Smile. Við fórum svo í Give í kaffi áður en við náðum í Jón aftur í vinnuna. En svona var nú dagurinn hjá okkur.

Helgin var nú bara nokkuð góð. Við fórum til Rúnu og Mads, en þau búa á Fjóni. Þar var okkur boðið í mat og stóru strákarnir fengu sér aðeins í glas( kannski aðeins meira en smá). En þetta var bara frábær dagur og þökkum við kærlega fyrir okkur Grin. Sunnudeginum var eytt heima fyrir og bökuðum ég og Kristófer pizzasnúða og pylsuhorn. Aðeins að breyta til fyrir nestið, það er alltaf bara brauð og álegg. Það varð að setja smá tilbreytingu í þetta.

Jæja elskurnar mínar það er komið framyfir svefntíma hjá mér. Góða nótt og dreymi ykkur vel Sleeping.

Knús og kossar Kissing

Bergþóra og co


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband