Færsluflokkur: Vinir og fjölskylda

Komin aftur:)

Jæja góðan daginn, við erum komin aftur heimLoL. Ég ætla að byrja á því að koma með afmæliskveðju til Margrétar en hún átti afmæli 24.mars. Svo er það líka Vilborg Helga, hún átti afmæli 23.mars, þar fengum við ljúffengar kökur og gátu frændsystkinin leikið sér svolítið saman áður en við yfirgáfum Ísland og héldum heim á leiðTounge, takk fyrir okkur mjög gaman að spjalla um allt og ekkertGrin.

Ferðin okkar til Íslands var alveg frábær í alla staðiInLove, að vísu náðum við bara ekki að fara og hitta alla sem okkur langaðiErrm. Elsku Svala mín meðal þeirra varst það þú sem ég hitti ekki og þykir mér það mjög leiðinlegtFrown. Við eyddum mestum okkar tíma með fjölskyldunni okkar, spjölluðum, borðuðum og skemmtum okkurSmile. Verst hvað þetta var fljótt að líða, okkur fannst við stoppa örstutt og þurfa aðeins lengri tímaFootinMouth.

Árni Þór fermdist á skírdag og var mikið að gera í kringum það. TIL HAMINGJU MEÐ ÞETTA ELSKAKissing. Fermingin gekk rosalega vel og allir skemmtu sér mjög vel. Við fórum öll í myndartöku, þar voru myndirnar teknar í hollum svo á að setja þær saman í tölvunni og búa til fjölskyldumynd, það voru teknar myndir af krökkunum sér líka og gekk það ekki nógu vel fyrr en Halldór fór að fíflast og náðust þá góðar myndir af þeim öllum hlægjandi, já það getur verið erfitt að fá fimm börn á aldrinum 4-8 ára að brosa á sama tíma og horfa í myndavélinaGrin, en það tókst.

Við viljum þakka öllum fyrir okkur, mat, skemmtun, gistingu osfrv.GrinInLove.

Það var nú svolítið erfitt að koma sér af stað í morgun í skóla og vinnu, en það tókst og voru allir mjög ánægðir að koma í skóla og leikskóla aftur. Kristófer er víst búin að vera í skrítnu, en mjög skemmtilegu skapi í dag. Kormákur er búin að haf öðruvísi dag í skólanum, það var vinnufundur hjá kennurum og foreldrar sáu því um kennslu í staðinGrin. Mér finnst þetta svolítið sniðugt, þetta er líka gert á leikskólum hérna. Það er að vísu lokað marga aðra daga í leikskólum hér. Mjög margir leikskólar eru lokaðir á milli jóla og nýárs, hjá Kristófer er lokað vikuna fyrir páska, 1og2 maí en svo er að vísu bara lokað eina viku í sumar, þannig að mér finnst þetta í lagiSmile. Í mínum skóla var haldin sýning fyrir 150 krakka (þeim var skipt niður í tvo hópa), okkar markmið var að fá þau til að sitja alveg kyrr, hlusta, taka þátt (ef það var) osfrv, þetta tókst rosalega vel og voru allir mjög ánægðir með okkur. Þannig að þetta var mjög skemmtilegur dagur í skólanum hjá mérGrin. Jón Óskar fékk sér 2 tíma rúnt í morgun (hann lagði af stað um 5 í nótt), þegar hann var hálfnaður á leið í vinnuna var hringt í hann og hann sendur heim aftur, vegna þess að það var of mikill snjór til að vinnaTounge, Jón var alveg sáttur við þetta og fannst mjög notalegt að vera heima í dagGrin.

Jæja segjum þetta gott í bili, er svolítið tóm núnaBlush.

Kossar og knús

Bergþóra og co.

P.S það koma myndir fljótlega, nenni því ekki núnaWoundering.


Allt tilbúið:)

Vikan er búin að vera lengi að líða hjá honum Kormáki mínum. Hann hefur varla geta einbeitt sér í skólanum og bæði kennarinn hans og pædagogen eru búnar að segja mér frá þessuTounge, en þær eru mjög skilningsríkar og hlæja bara að þessuLoL. Hann er nú samt rólegri núna í dag, eftir að hann var búin í skólanum, en mjög spenntur.

Kristófer Er ekki alveg að gera sér grein fyrir þessu og finnst þetta óþarfa læti í bróður sínumGrin. Núna á hann reyndar að vera sofandi en er ekki að geta sofnað, "mamma, hvenær má ég koma upp úr rúminu, ég er búin að sofa osfrv". Þannig að spenningurinn er að koma núna hjá honum.

Það er búið að vera brjálað að gera hjá mér í skólanum og er verið að kynna okkur fyrir valfögunum. Við eigum að setja upp sýningu sem verður þann 26. mars, þannig að það er mikil vinna, framundan (hjá flestum allavega:)). Það er búið að vera mikið hopp og skopp þessa vikuna, en alveg ótrúlega gamanGrin, ég meira að segja búin að læra smá jumping style (dansað við tekno musik), það tók hópinn minn bara 1 1/2 tíma að læra fáein spor okkur fannst þetta mjög ruglingslegt og erfitt en þetta tókstGrin. Kennarinn okkar var svo ánægð með þetta að hún vildi að þetta yrði lokaatriðið á skemmtuninniSmile

Annars er allt tilbúið og ætlar hann Jón að keyra okkur á lestarstöðina og sjá til þess að við komumst um borð (er hann feginn að losna við okkur eða hvað)Grin. Við sjáum ykkur(eða flest) svo fljótlega.

Kossar og knús

Bergþóra og co   


Skýrsla vikunnar;)

Aldrei þessu vant er ég ekkert búin að skrifa alla vikuna, enda líka haft svosem ágætt að geraWoundering.

Í skólanum hjá Kormáki er búin að vera öðruvísi vika. Þau eru þar á meðal búin að vera að gera myndir af Fantasiu húsum, þau byrjuðu að teikna með blýanti, svo olíutúss ofan í og svo málað með bleki. Niðurstöðurnar voru mjög skemmtilegar og sást hvað krakkarnir eru með fjörugt ímyndunarafl og gátu unnið vel saman. Það voru alltaf tveir um hverja mynd og yfirleitt einhver sem þau þekktu lítið, Kormákur sagði "við verðum að læra að vinna líka með þeim sem við þekkjum ekki", nokkuð til í því hjá stráksaLoL. Þau héldu svo sýningu og sögðu öllum sem skoðuðu myndirnar frá þeim. Mikið gaman að þessu hjá þeimGrin.

Það var líka öðruvísi vika í mínum skóla. Við erum búin að vera, að vinna að okkar óskastofnun ef svo má að orði komastSmile. Ég er nú með aðrar skoðanir að flestu leiti en hópurinn minn, þannig að ég þurfti að bakka með mjög mikið. Ég er alveg föst í því að vilja hafa mat handa krökkunum í leikskólanum, en það er nú meiri vitleysan(að flestra mati hér í Danmörku), þau geta bara haft nesti með sér. Mér finnst þetta svo vitlaust þar sem að margir foreldrar spá ekkert í þetta og gefa börnunum endalaust hvítt brauð með súkkulaði. Á flestum leikskólum geta þau svo ekki komið með afganga að heiman því að það er of mikil vinna að skella þessu í örbylgju í 30 sek til að hita uppFrown. En allavega við áttum svo að búa til bása þar sem við kynntum okkar leikskóla. Við skiluðum síðan 4 bls ritgerð um þetta hjá okkur. Kennarinn var mjög ánægð með þetta og sagði að hún gæti nú alveg fundið upp á því að gefa okkur 10 (á skalanum 1-10), þannig að við vorum mjög sáttGrin.

Kristófer er á fullu að gera páskaföndur á leikskólanum og er þetta rosalega flott hjá stráknum. Þau æfa börnin mjög mikið í að klippa og er hann að verða snillingur í þvíGrin.

Jón er alltaf að vinna og gerist því ekki mikið hjá honum svona í miðri vikuErrm.

Helgin hjá okkur er búin að vera frekar róleg hjá okkur. Föstudagurinn fór í tiltekt, sýninguna hjá Kormáki og að versla (rosa gaman).

Í gær (laugardag) fórum við í Ikea og keyptum okkur Cd haldara, en okkur vantar samt annan (sáum það fyrst þegar við komum heim og búin að raða í þennan)Smile. Við gerðum svo svolítið páskalegt og elduðum okkur hamborgarhrygg með öllu tilheyrandiLoL. Við horfðum svo á Skógarlíf 2 og fengum okkur slik með í tilefni dagsinsSmile.

Sunnudagurinn er búin að vera letidagur, fórum að vísu smá rúnt, en annars bara búin að vera heima og ekki að gera neitt.

Jæja ég er hætt þessu bulli núna. Það eru komnar nýjar myndirGrin, Ég gerði þá eitthvað í dag. Svo er bara verið að þvo þvott og passa að allt verði hreint sem á að koma með til Íslands. Ég vona mamma mín að þú eigir þvottavél, þar sem ég tek ekki mikið af fötum með, heheTounge. Það fer allt plássið í kuldagalla og jakkaföt, hihiSmile.

Kossar og knús

Bergþóra og co


Skautar:)

Ég gleymdi að segja þér Jóhanna að ég lofaði Kormáki að fara með honum á skauta í skautahöllinni laugardaginn eftir að við komum (þar sem við komumst ekki á skauta á laugardaginn vegna rigningar) og að við ætlum að plata þig og Ingimund meðGrin.

Það var ekkert annað í þetta skipti.

Kossar og knús

Bergþóra sæta


Heppin í spilum, óheppin í ástum.....

Segir máltækið, ég er nú ekki alveg sammála þessu, mér finnst vera hægt að vera heppin í báðuSmile. Við Jón erum mjög svo upptekin í SKIP-BO þessa dagana, hann þolir ekki þegar ég vinn hann, staðan er 5-2 fyrir mérTounge.

Í gær fórum við í grenjandi rigningu niður á göngugötu, fórum á kaffihús og keyptum DVD ferðaspilara fyrir strákana, en þeir voru búnir að vera að safna fyrir honum. Keyptum einn með tveimur skjáum, svaka spennandiSmile. Við ætluðum að fara á skauta með bekknum hans Kormáks en við hættum við þar sem svellið var bara einn stór pollur og það hætti bara ekkert að rigna. Þegar við komum svo loksins heim eftir blauta bæjarferð höfðum við það bara kósý. Við Jón spiluðum SKIP-BO ,drukkum hvítvín og bjór, og strákarnir horfðu á mynd og fengu nammi. Við tókum okkur reyndar pásu frá SKIP-BO og spiluðum UNO við Kormák, þar sem honum fannst við ansi lengi að spila þetta SKIP-BO, enda vorum við ekki búin með það fyrr en 1 í nóttTounge, ég var bara orðin þreyttSleeping, en gaman var þettaGrin.

Í dag fórum við í EYE TOY, þetta er meiri líkamsræktin, þannig að við ættum kannski að spila þetta oftar, ekkert smá gaman, við Jón skemmtum okkur ekkert minna en strákarnirGrin. Við skelltum okkur síðan niður í Þýskaland að fylla á bjórinn og rauðvínið, að vísu keyptum við líka Grand Marnier og nammi. Keyptum spægipylsur líka til að koma með á klakannGrin. Strákarnir prófuðu þennan fína spilara, hann virkaði rosalega vel, nema það að Kristófer greyið var bílveikur á leiðinni niður eftir, en í lagi á leiðinni heimSickSmile. Núna er bara verið að hafa það gott og byggja sig upp fyrir vinnuvikuna.

Hafið það gott elskurnar og verið dugleg að kvittaSmile

Kossar og knús

Bergþóra og co

P.S er einhver sem man eftir spilinu Kleppara og getur útskýrt það hér í fáum en góðum orðum. Við vorum að reyna að rifja það upp, en mundum það bara ekki. Það er alveg ótrúlegt hvað maður er fljótur að gleyma þessum spilum sem maður var alltaf í, ég man heldur ekki spilið IDIOT, hhhhhhjjjjjjjjjááááááááállllllllllllllppppppppppppppGrin


Allir frískir núna:)

Kormákur fór hress í skólann í morgun, hann var voða feginn að geta farið, því að hann veit að hann á meiri möguleika á að fara á skauta á morgun þáGrin. Pabbi vinar hans hringdi svo og Kormákur vildi fara með honum heim, þannig að þeir hafa verið þokkalega ánægðir að hittast aftur.

Ég fór með Fordinn á verkstæði í morgun og labbaði niður á lestarstöð til þess að taka lestina í skólann. Það fór nú ekki alveg svona vel, þegar ég kem út frá verkstæðinu rigndi ekkert smá, eins og hellt væri úr fötu. Ég var tíu mín að labba niður á lestarstöð og það var ekki þurr þráður á mér, þá meina ég að nærbuxurnar mínar voru ekki einu sinni þurrarSmile, þannig að ég tók strætó og fór heim til mín í staðinnFrown

Í síðustu viku var ég rosalega ánægð því að Toyota ætlaði að ná í bílinn minn upp í skóla og keyra hann þangað aftur, þegar búið væri að gera við hann. Það þarf að gera við læsinguna á bílnum og hann er í ábyrgð, þannig að ég nota að sjálfsögðu tækifærið. Það átti semsagt að ná í bílinn í gær kl 9, þannig að ég fer út þá og bíð þar í 10-15 mín, en enginn kemur, ég hringi og hann segir að það verði hringt í mig þegar hann verði sóttur. Klukkan 11 gafst ég upp og ég var sjálf búin í skólanum, þannig að ég hringi aftur, nú ertu að fara núna, við héldum að hann yrði þarna allan daginn, aaaaarrrrrrrgggggggggg, þannig að ég fékk nýjan tíma. Vonandi gengur það beturErrm. Mér finnst þetta bara ótrúlegt að ef maður á tíma á að koma þá en ekki 2-4-6 tímum síðarAngry.

Jæja er að fara að ná í KristóferGrin

Kossar og knús

Bergþóra og co


Kormákur veikur:(

Hann Kormákur er aftur veikurSick, önnur flensan á rúmum mánuðiFrown. Núna er hann með háan hita og kastaði upp í gærmorgun og í morgun. Kristófer sá sér gott til glóðarinnar þarna og vildi vera heima, ég ætlaði nú ekki að láta hann komast upp með það, en minn maður var vakandi frá því klukkan 5 í morgun og ákvað ég því þá að hafa hann heima, þá gæti hann allavega lagt sigSleeping, ekki það að hann hafi svo sofið mikið, ó nei, kannski 10 mínErrm, enda líka sofnaður rétt rúmlega sjö í gærkvöldiSmile.

Kormákur er hressari í dag, en verður samt heima á morgun líka. Jón var með honum heima í dag og á morgun þar sem ég má ekki við því að missa úr skólanum núna. Held nú samt að honum finnist nú bara ágætt að geta verið með syninum og spilað, verið í tölvu og horft á sjónvarp, það sem þeir eru allavega búnir að hafa það gott í dagGrin.

Kristófer ætlaði nú ekki að fara á leikskólann í morgun heldur. "Mamma, ég er svo þreyttur, ég verð að sofa meira", "Nei, elskan þú ferð í leikskólann í dag". Hann hætti ekki þarna, en ég náði honum samt fram úr, í föt og fá morgunmat. Þegar hann var að borða prófaði hann meira, "Mamma, ég get verið heima hjá pabba og Kormáki", "já, en þú ferð á leikskólann, ok",hmmmm, en sagði ekki orð. Svo var prófað aðeins meira, "mamma settu höndina svona (var með aðra höndina á hnakkanum og hina á enninu) og þá finnur þú að ég er veikur", ég geri það, " nei, ég finn það ekki , þú ert ekki veikur". Hann borðar ca, þrjár skeiðar af morgunkorni, "mamma finndu núna, ég er örugglega veikur núna"InLoveGrin.

Jæja þetta var bara svona smá um það hvernig þessi vika er búin að vera. Hafið það sem allra best, hlakka til að sjá allaGrin.

Kossar og knús

Bergþóra


Helgin:)

Er búin að vera frábær hjá okkurSmile. Fyrir utan það að Fordin er bilaður og við fáum ekki tíma fyrr en á föstudagFrown, ég get að vísu keyrt hann í skólann og með strákana, en við þorum ekki mikið meirFrown.

Við skelltum okkur út að borða á föstudaginn, fórum á Jensens Bofhus, klikkar aldreiTounge. Reyndar fannst mér svolítið fyndið að það var eins og þjónninn okkar væri að flýta sér. Við vorum varla sest niður þegar hún spurði hvað við vildum drekka (ég var ekki komin úr úlpunni), þegar við fáum drykkina stuttu seinna vill hún vita hvort við værum búin að ákveða okkur, NEI, NEI ekki strax,pöntuðum samt forrétt þá. Við biðum svo ekki lengi eftir matnum og strákarnir hámuðu matinn í sig til að geta fengið ís í eftirréttGrin. Þegar þeir voru ný búnir að kyngja ísnum, spurði hún okkur hvort við vildum reikninginn. Ég skellihló, og sagði svo við Jón"heldur þú að hún vilji losna við okkur". Ég tek það samt fram að strákarnir voru æði og við urðum varla vör við þá þarnaLoL. Við vorum í rétt rúman klukkutíma, hef aldrei verið svona fljót úti að borða(fyrir utan Mc Donalds eða eitthvað þannig)Smile. Eftir þetta fórum við bara heim og höfðum það kósýSmile.

Í gær fórum við á sýningu sem heitir "Frí fyrir alla", þetta var ekkert smá sýning. Það voru bara 4 stórir salir bara með hjólhýsum og húsbílum, Fyrir utan salina með ferðaskrifstofum fyrir gólfferðir, sólarferðir og svo útilegur. Á sýningunni sáum við hjólhýsi á tveimur hæðum. Við fórum að vísu ekki inn í það, þar sem það var lágmark 40 mín biðröðSmile, en þetta var voða flott það sem við sáum, það var með svölum og alltGrin. Á sýningunni var líka stórt og flott leiksvæði fyrir krakkana, sandkassi, hoppukastalar og dýnur, hjólabílar ofl, það var líka já sundlaug (við vorum að vísu ekki með sundföt)Grin. Þessi sýning var mjög flott og við fengum "nokkra bæklinga" til að finna út hvað við ætlum að gera í sumarLoL.  Þegar við komum heim fengum við okkur SS pylsur og Myllu pylsubrauð og horfðum svo saman í Incredibles (kann ekki að skrifa þetta)Tounge.

Í dag var svo farið á Antikmarkað þar sem frúin á heimilinu er alltaf að leita sér að fimm arma kertastjaka (fann hann samt ekki núna), hann var voða lítill og var því fljótt yfirfarinn. Við ákváðum síðan að fara í Madsbyparken þar sem við slepptum dýrunum lausum og fengum okkur nestiGrin. Þarna hlupu þeir um, renndu sér í rennibrautum, klifruðu í trjám, skoðuðum nokkur dýr ofl. Þetta var voða gaman og skemmtu sér allir svaka vel (Jóni fannst að vísu eitthvað kaltGrin, skil það ekkiSmile).

Við Jón kölluðum á Kormák í morgun til að spila UNO, hann mátti nú varla vera að því og var ekki lengi að vinna og fara aftur inn að leika sérGrin. Við hjónin ákváðum því að spila eitt SKIP-BO, fórum alveg eftir reglunum og höfðum 30 spil í bunkanum okkar.(það þekkja örugglega ekki allir þetta spil, en þeir sem það gera vita hvað ég er að meina). Þetta litla spil okkar tók okkur ca 4 tíma í spili, fyrir utan pásur. Þegar við vorum búin var ákveðið að hafa aldrei svona mörg spil afturGrin. EN ÉG VANNTounge.

Jæja kossar og knús

Bergþóra og co

 


Afmæli:)

Það verða bara afmæliskveðjur í dag, þar sem ég er afskaplega upptekinn manneskjaGrin.

Elsku afi innilega til hamingju með daginn í gærKissing.

Elsku amma innilega til hamingju með daginn þann 25 febKissing.

Vonandi eigið þið góða afmælisdaga.

Svo er það hún Stína systir Jóns en hún á afmæli í dag, innilega til hamingju með daginnKissing. Eigðu góðan dag. Við kíkjum svo bara í kaffi seinnaWhistling.

Það var nú það í bili, ég ætla að halda áfram að gera fínt hjá mér, heyrumst seinna.

Ég bíð nú líka spennt eftir Steina, hann sagðist nefnilega ætla að fljúga til okkar í dag, þannig að hann gæti komið með okkur á sýningu Ferie for alle, sem við erum að fara á, á morgun, hmmm trúlegt finnst ykkur ekkiTounge.

Knús og kossar

Bergþóra og co


Danir furðulegir:)(

Ég var svo yfir mig hissa í gær á Dönum, en það er kannski ekkert nýtt, ég allavega verð að segja ykkur frá þessu.

Ég fór í gær að kaupa rúðuþurrkur á bílinn minn, allt í lagi, hefur aldrei verið vandamál fyrir mig þar sem ég hef gengið inn á bensínstöð þarna heima á Íslandi og þessar elskur þar bara farið út náð í gömlu þurrkuna og skiptSmile. Hérna fór ég inn í svona búð sem er eins og Bílanaust eða N1 eða hvað þetta heitir. Þar sátu þrír menn og horfðu á mig og tölvuna til skiptis, ég ákvað að segja ekki neitt þar sem mér var ekki einu sinni boðið góðan daginn þegar ég kem inn. Eftir langar 3-5 mín, kemur einn og spyr hvort hann geti hjálpað mér, ég týpísk stelpa (í þetta skipti),"ég næ ekki rúðuþurrkunni af bílnum, getur þú hjálpað mér" segi ég og brosi voða blítt til hans, hann lítur á mig eins og ég sé að koma af fjöllum og segir svo við annan strák sem var greinilega bílstjóri hjá þeim " getur þú farið út og hjálpað dömunni", letin var semsagt of mikil hjá honum til að koma út og hjálpa mér. Allt í lagi þessi strákur nær rúðuþurrkunni af og ég fer inn að ath hvort þeir eigi rétta þurrku. Þar stend ég eins og hálfviti og er að reyna að mæla þetta, þar til ég bið annan um aðstoð, hann slær þessu upp í tölvunni og er ekki lengi að finna þetta. Síðan þegar ég spyr hvernig þetta eigi að vera þegar ég sit þetta á, fæ ég að vita að hann kunni þetta ekki, hann er ekki bilvélavirki, ég eigi bara að fara með bílinn á verkstæði, aarrrgggggGasp,  út af einu þurrkublaði. Ég reyni að setja þetta sjálf á, en þar sem ég hef aldrei gert þetta áður þorði ég ekki að taka á þessu, þannig að ég ákveð að maðurinn minn fái að gera þetta þegar hann kemur heim. Þessi elska fer út, kemur inn aftur eftir kannski 2 mín og þá er hann búinnLoL. Þetta var semsagt ekki mikið mál.

Jæja annað dæmi. Ég fór að ná í hann Kormák í skólann í gær og var búin að biðja hann um að spyrja eftir peysu sem hann hafði gleymt þar. Hann fékk þessa peysu í jólagjöf frá mömmu og pabba og vildi ég finna hana. Venjulega sé ég strax ef eitthvað vantar en í þessu tilfelli fór það framhjá mér og ég veit ekkert hvenær hann fór í henni. Hann var að sjálfsögðu of upptekinn að leika sér í skólanum til að spyrja um peysuna. Ég tala því við eina konu í gæslunni og hún segir að það sé bara þessi kassi sem er þarna, þar finn ég húfu af barninu sem ég var búin að kíkja mörgum sinnum eftir í þessum kassa. Ég fæ síðan lykil hjá henni til að labba inn á ganginn þar sem stofan hans er og ath hvort hún sé þar. Í lokinn (3skiptið) þegar ég kem til hennar segi ég"það hlýtur að vara annar staður fyrir óskilaföt, ekki bara þessi litli kassi", jú þá kemur í ljós að það sé kjallari líka (arg, ég var bara búin að spyrja nokkrum sinnum, um leið og ég fékk lykilinn og var að leita í þessum kassa), þannig að við máttum labba aftur til baka upp í gang nr2 og þar niður og eitthvað... NEI, NEI hvað sé ég peysan liggur þar á þessu borðiSmile. Við leituðum í 30 mín af þessari peysu, því að hún var svo upptekinn að hún gat ekki sagt okkur frá þessu straxAngry.

Mér finnst alveg furðulegt hvað allt virðist vera erfitt hérna hjá dönum, þetta er ekki í mínum verkahring, farðu eitthvað annað, eða þá að það þarf að draga allt upp úr þeim til að fá upplýsingar. Furðulegt lið, en hér ætla ég að búa í einhver ár í viðbót, þannig að ég verð að læra á þáWink.

Guðrún mín, ég verð því miður ekki heima um mánaðarmótin, kem aðeins seinna, bið samt að heilsa öllumGrin.

Kossar og knús

Bergþóra


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband